Morgunblaðið - 24.12.2020, Page 64
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
Mánudaga - föstudaga 11-18:30 Helgar 12-18
Gledilega-
hátíd-
afgreiðslutími
50%
Sparadu-
af jólavörum
Í DESEMBER
SIRIUS LIVA
Hjarta, hvítt. 80 LED ljós. Ø64 cm. 7.995 kr. NÚ 3.998 kr.
aðfangadagur - Lokað
Jóladagur - lokað
Annar í jólum - lokað
27. des. sunnudagur - 12-18
Mán. - mið. 11-18:30
gamlársdagur - lokað
Nýársdagur - Lokað
Lau. og sun. - 12-18
Virkir dagar - 11-18:30
vefverslun - ávallt opin
Jólatónleikum Sinfóníuhljómsveitar
Íslands verður sjónvarpað á RÚV og
útvarpað á Rás 1 í dag, aðfangadag,
kl. 13.25 og endursýndir á morgun,
jóladag, kl. 13.15. Meðal gesta sem
koma fram með hljómsveitinni eru
Páll Óskar Hjálmtýsson, Valgerður
Guðnadóttir, Kolbrún Völkudóttir og
Már Gunnarsson ásamt barnakórum
og hljóðfærahópum. Hljómsveitar-
stjóri er Bjarni Frímann Bjarnason
og kynnir er trúðurinn Barbara en
tónleikarnir eru túlkaðir á táknmáli.
Jólatónleikar
Sinfóníunnar í dag
FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 359. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
„Mesta stressið var í upphitun þeg-
ar ég horfði yfir völlinn og sá leik-
menn eins og Mikkel Hansen og
Nikola Karabatic og ég spurði sjálf-
an mig hvað ég væri að gera
hérna,“ segir handboltamaðurinn
Kristján Örn Kristjánsson sem skor-
aði sjö mörk gegn stórliði PSG í sín-
um fyrsta leik með Aix í
Frakklandi og hefur síð-
an verið á mikilli sigl-
ingu með liðinu. »54
Spurði sjálfan mig
hvað ég væri að gera
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Kristín Sigfúsdóttir stofnaði Prjóna-
hópinn Furugerði 1 í Reykjavík fyrir
rúmlega tveimur árum og síðan hafa
konurnar prjónað saman tvisvar í
viku og gefið bágstöddum flíkur
tvisvar á ári. Auk þess hafa þær safn-
að peningum til að kaupa jólamat
handa barnafjölskyldum. „Þetta hafa
verið frjáls framlög á laugardögum,“
segir Kristín um fjárstuðninginn.
„Ég er þannig gerð að ég hlusta
mikið eftir því hvar hægt er að gera
gagn og hjálpa,“ segir Kristín um
framtakið. Í september 2018 hafi
mikil umræða verið um að klæðnað
vantaði fyrir fátæka, jafnt börn sem
fullorðna, og fólki, sem leitaði skjóls í
bílnum hjá Frú Ragnheiði, væri kalt.
„Ég hugsaði með mér: „Það hljóta að
vera margar konur hérna sem kunna
að prjóna.“ Ég útbjó auglýsingu þar
sem fram kom að mig vantaði marg-
ar hendur til þess að prjóna alls kon-
ar flíkur handa þeim sem þyrftu á að
halda.“ 20 konur mættu á tilteknum
tíma og eftir að klúbburinn var stofn-
aður var önnur auglýsing gerð og
stofnunin tilkynnt. „Við óskuðum
jafnframt eftir garni, sem hætt væri
að nota og fólk væri í vandræðum
með. Viðbrögðin létu ekki á sér
standa, okkur bárust heilir og hálfir
pokar af dásamlegu garni og lopa.“
Konurnar hittast á miðvikudögum
og laugardögum frá klukkan tvö til
fjögur. „Okkur finnst svo skemmti-
legt og notalegt að hittast að við
mætum oft upp úr klukkan hálftvö
og byrjum að prjóna.“ Á miðviku-
dögum fá þær sér kaffisopa og
frjálst er að mæta með meðlæti en á
laugardögum skiptast þær á að
koma með eitthvað gott með kaffinu.
„Þá vanda allar sig sérstaklega og
dýrindistertur eða pönnukökur eru
á borðum.“
Kórónuveirufaraldurinn hefur
raskað skipulaginu en ekki komið í
veg fyrir prjónaskapinn. „Enginn
óviðkomandi hefur mátt koma, við
þurfum að gæta að því að hafa hæfi-
lega fjarlægð á milli okkar og við
snertum bara okkar eigin áhöld. Við
reynum að passa okkur eins vel og
við mögulega getum.“
Tók lykkjuna snemma
Móðir Kristínar kenndi henni
snemma að prjóna. „Hún lét mig
mjög fljótt læra að taka lykkjuna,
eins og hún sagði, en ég byrjaði ekki
að prjóna af alvöru fyrr en ég var
átján ára.“ Þá hafi hún verið komin
með eiginmann, sem hafi verið sjó-
maður og þurft mikið af ullar-
sokkum og -vettlingum. Auk þess
hafi hún prjónað og saumað á öll níu
börnin sín.
Kristín, sem er úr Mývatnssveit,
leggur áherslu á að þær fái gjafir,
bæði garn og fatnað, alls staðar að af
landinu. Þær prjóni allar stærðir af
sokkum, vettlingum, húfum, treflum
og peysum. Tvisvar á ári afhendi
þær Hjálparstofnun kirkjunnar,
Kvennaathvarfinu, Frú Ragnheiði
og Rauða krossinum afraksturinn og
samtökin sjái síðan um að deila út
flíkunum. „Við höfum aldrei sent frá
okkur færri en 100 stykki og núna í
desember fórum við með 214 stykki.
Auk þess afhentum við Hjálpar-
stofnun kirkjunnar um 60 þúsund
krónur til styrktar barnafjölskyld-
um vegna jólamatar í fyrra og núna
var upphæðin 82 þúsund.“
Þegar klúbburinn var stofnaður
var samþykkt að tala aldrei illa um
nokkurn mann og við það hefur verið
staðið. „Skilyrðið er að tala fallega
um fólk og svo erum við svo heppnar
að það er píanó í prjónastofunni. Ég
get spilað dægurlög, geri það oftast,
og þá syngur allur hópurinn um leið
og hann prjónar. Þetta er yndislegur
vinahópur.“
Prjónahópurinn Furugerði 1 Frá vinstri: Stína, Kristín, Birna, Ingibjörg G., Gísli starfsmaður, Ásthildur, Elena
starfsstúlka, Jóhanna, Ragnheiður, Unnur, Ingibjörg A. og Guðrún. Á borðinu er sýnishorn af handverki þeirra.
Kærleikurinn ofar öllu
Prjóna fyrir bágstadda og gefa fjölskyldum jólamat
Morgunblaðið kemur næst út
mánudaginn 28. desember.
Öflug fréttaþjónusta verður á
mbl.is yfir jólin. Hægt er að
senda ábendingar um fréttir á
netfangið netfrett@mbl.is.
Þjónustuver áskriftar-
deildar er opið í dag, að-
fangadag, frá kl. 8-12. Lokað
er á jóladag og annan dag jóla.
Þjónustuverið verður opnað
aftur 28. des. kl. 7.
Netfang þjónustuvers er
askrift@mbl.is.
Auglýsingadeild er lokuð til
28. desember. Netfang
hennar er augl@mbl.is.
Hægt er að bóka dánar-
tilkynningar á mbl.is.
Fréttaþjónusta
mbl.is um jólin