Morgunblaðið - 31.12.2020, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 3 1. D E S E M B E R 2 0 2 0
Stofnað 1913 307. tölublað 108. árgangur
SKÁK AÐ HÆTTI
FRIÐRIKS
ÓLAFSSONAR
SÝN STJÓRN-
MÁLAMANNA
Á ÁRIÐ 2021
SEGÐU JÁ
Í STAÐ ÞESS
AÐ SEGJA NEI
VIÐ ÁRAMÓT 37-44 SPÁ SIGGU KLING 50-51QUEEN’S GAMBIT 26
Bóluefni Oxford-AstraZeneca hlaut
bráðaleyfi í Bretlandi í gær. Bresk
stjórnvöld hafa pantað 100 milljónir
skammta af bóluefninu, sem dugir til
að bólusetja 50 milljónir manna, og
munu bólusetningar með efninu hefj-
ast 4. janúar. Það, ásamt pöntunum á
bóluefni Pfizer-BioNTech, nægir til
að bólusetja alla bresku þjóðina, að
sögn Matt Hancock heilbrigðisráð-
herra.
Bóluefnið hefur ekki enn hlotið
markaðsleyfi innan Evrópusam-
bandsins, en Noel Wathion, yfirmað-
ur hjá Lyfjastofnun Evrópu, sagði í
fyrradag að AstraZeneca hefði ekki
enn sótt um skilyrt markaðsleyfi í
Evrópu og mætti telja ólíklegt að það
fengist samþykkt í janúar.
Rúna Hauksdóttir Hvannberg, for-
stjóri Lyfjastofnunar, segir í samtali
við Morgunblaðið
að hvert Evrópu-
ríki hafi leyfi til að
meta sjálft og
gefa út svokallað
bráðaleyfi á und-
anþágu og það
hafi Bretar gert.
Því væri hægt að
veita slíkt bráða-
leyfi á Íslandi áð-
ur en bóluefnið öðlast markaðsleyfi í
Evrópu. Það hefur þó ekki komið til
tals, hvorki hér á landi né í öðrum
Evrópulöndum, að sögn Rúnu.
Spurð hvers vegna Bretar fari
þessa leið en ekki aðrir, segist Rúna
ekki geta dæmt um það. „Bretar
standa náttúrlega í miðjum faraldr-
inum og eru núna eftir morgundaginn
[daginn í dag] farnir úr Evrópusam-
bandinu svo hugsanlega er þetta
tengt því. En þeim bráðliggur á að
bólusetja, eins og fleirum.“
Hún segir ekki liggja fyrir ná-
kvæmlega hvenær bóluefnið fær
markaðsleyfi hjá Lyfjstofnun Evrópu
en bendir á að það sé nú í svokölluðu
áfangamati sem og belgíska bóluefni
Janssens.
Næst til umfjöllunar hjá Lyfja-
stofnun Evrópu er bóluefni lyfjafyr-
irtækisins Moderna, sem vonast er til
að fái markaðsleyfi 6. janúar. Íslend-
ingar hafa tryggt sér 128.000
skammta af bóluefninu, sem dugar til
að bólusetja 64.000 manns, en bólu-
efnið kemur til Íslands fyrir milli-
göngu Svía innan Evrópusamstarfs-
ins. alexander@mbl.is
Vilja bíða eftir ESB
Bóluefni AstraZeneca hefur fengið bráðaleyfi í Bretlandi
Ekki komið til tals að veita slíkt bráðaleyfi á Íslandi
Rúna Hauksdóttir
Hvannberg
MBóluefni »4, 6 & 32
Wellington-steikur njóta sívax-
andi vinsælda um hátíðarnar hér
á landi, og seljast í tonnavís. Víða
seldust steikurnar upp fyrir jól.
Sala fyrir áramótin gengur
sömuleiðis mjög vel. Samkvæmt
lauslegri samantekt Morg-
unblaðsins má ætla að sala á
Wellington muni nema nálægt
eitt hundrað milljónum króna í
desember. Meðal þess sem gerir
steikina vinsæla er hve einfalt er
að elda hana. »30
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hátíð Wellington frá Sælkerabúðinni.
Wellington í tonna-
vís um hátíðarnar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Reynisfjara Einn fjölfarnasti áningarstaður ferðamanna var ansi tómlegur um hátíðirnar. Aðeins spor í sandinum eftir ljósmyndara Morgunblaðsins, sem gekk þarna um, aleinn.
Gleðilegt nýtt ár!
Ármúli 8 I 108 Reykjavík I Sími 516 0600 I www.birgisson.is
Óskum viðskiptavinum og landsmönnum öllum
gleðilegrar hátíðar með þökk fyrir viðskiptin
á árinu sem er að líða.
Umfangsmikið jarðfall varð í
þorpinu Ask í Noregi í gær. Þorpið
er um 25 km norðaustur af Ósló.
Fleiri er enn saknað en 700 hefur
verið bjargað af heimilum sínum
sem eru nærri áhrifasvæði jarð-
fallsins og fluttir á brott. Flatarmál
áhrifasvæðisins er um 210 þúsund
fermetrar. Slæmt veður og skyggni
hefur tolvelt björgunarstörf. Í það
minnsta fóru 14 götunúmer í skurð-
inn. Tíu slösuðust, þar af einn al-
varlega. Lögreglan hefur lýst vett-
vanginn hamfarasvæði. Katrín
Jakobsdóttir hefur sent Norð-
mönnum kveðjur. »32
Íbúa Ask saknað
700 verið bjargað
Hamfarir í Ask í Gjerdrum í Noregi
AFP