Morgunblaðið - 31.12.2020, Page 8

Morgunblaðið - 31.12.2020, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2020 Árið 2020 hefur einkennst afmargvíslegum öfgum. Kórónuveirufaraldurinn er aug- ljóslega þar á meðal. Veiran hef- ur valdið miklum usla þó að ósýni- leg sé og líka þó að hana skorti allt það sem við mundum kalla hefðbundna skynsemi. En hún smýgur áfram og eitrar samfélagið og sýnir að slík eyðilegging krefst engrar skyn- semi, aðeins örsmárrar veiru sem ekki er einu sinni talin lif- andi.    En þær eru fleiri öfgarnar.Eitt af því sem skotið hefur upp kollinum á undanförnum misserum og vaxið ásmegin á því ári sem nú er að líða er útilok- unaráráttan í stjórnmálum og í þjóðmálaumræðu almennt.    Útilokunaráráttan birtist tildæmis í því að tilteknir stjórnmálaflokkar eða stjórn- málamenn útiloka samstarf við aðra á þeirri forsendu að hinir séu ekki aðeins á röngu róli póli- tískt heldur beinlínis slæmir flokkar eða slæmar manneskjur.    Allir hinir, þeir sem ekkihljóta náð fyrir augum úti- lokunarsinnanna, eru óalandi og óferjandi og þá verður að útiloka frá öllum opinberum embættum, einangra þá og helst auðmýkja opinberlega. Samfélagsmiðlar virðast hafa ýtt undir þessa ómenningu enda hefur fólk til- hneigingu til að verða öfgafullt í bergmálshellum þeirra.    Ekki er líklegt að bóluefnifinnist við þessari hvimleiðu veiru, en vonandi tekst mann- kyninu þó að kveðja hana líkt og hina. Ár öfganna STAKSTEINAR Fulltrúar bílgreinarinnar hér á landi komu færandi hendi í Borg- arholtsskóla skömmu fyrir jól og gáfu skólanum hjólastillingartæki, að andvirði 4,2 milljóna króna. Fremstur í flokki fór Einar Sig- urðsson frá Bifreiðaverkstæði Reykjavíkur, sem er innflytjandi þessa tækis. Bílgreinasambandið (BGS) lagði þá vinnu í verkið að það gæti orðið að veruleika og mætti María Jóna Magnúsdóttir, fram- kvæmdastjóri BGS, einnig í skól- ann. Sömuleiðis Guðmundur Ingi Skúlason frá Kistufelli, sem hefur komið mikið að menntamálum fyrir BGS og Iðuna fræðslusetur. Fjár- mögnun fyrir tækið kom að mestu úr félaginu Sögu bílsins en að því stendur fjöldi fyrirtækja í bíl- greinum. Fyrir hönd Borgarholtsskóla veittu Marín Björk Jónasdóttir sviðsstjóri og Hreinn Ágúst Ósk- arsson, kennari á bílgreinasviði, gjöfinni viðtöku. Tæknin á bak við nýja tækið kom fyrst fram árið 2017 og hefur gjör- breytt allri vinnu við hjólastill- ingar. Er þetta mun afkastameira og einfaldara í notkun en gamla tækið sem skólinn notaðist við. Hjólastillingartæki til Borgarholtsskóla Borgarholtsskóli Hjólastillingartækið afhent skólanum, frá vinstri María Jóna, Guðmundur Ingi, Einar Sigurðsson, Marín Björk og Hreinn Ágúst. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Alþjóðlega fragtflugfélagið Bláfugl hefur sagt upp ellefu flugmönnum fyrirtækisins í hagræðingarskyni en þeir voru allir félagar í Félagi íslenskra atvinnuflugmanna og voru langlaunahæstu starfsmenn fyrirtækisins. Flugmennirnir voru af ýmsum uppruna; m.a. íslenskir, danskir, þýskir, belgískir og hollenskir. Eft- ir að uppsagnirnar koma til fram- kvæmda verða starfsmenn Bláfugls 29 og sjálfstætt starfandi flugmenn 40. Sigurður Örn Ágústsson, for- stjóri Bláfugls, segir í tilkynningu að aðgerðirnar séu nauðsynlegar til að tryggja samkeppnishæfni fyrir- tækisins á markaði sem hafi tekið örum breytingum á undanförnum árum. Nú eigi Bláfugl möguleika á að hefja vaxtarskeið – með tilheyr- andi fjölgun starfa á Íslandi. „Bláfugl er eftir sem áður mann- að vel hæfu fólki með metnað fyrir sínum störfum. Aðgerðirnar munu því ekki koma niður á starfsemi fyrirtækisins,“ segir í tilkynning- unni. Fyrirtækið hefur þegar ráðist í fjölbreyttar hagræðingaraðgerðir á árinu, svo sem fækkun stöðugilda, flutning í hagkvæmara húsnæði og útvistun hluta af starfsemi þess. Þá hafa aðrir starfsmenn fyrirtækisins tekið á sig tímabundna kjaraskerð- ingu á árinu. Bláfugl segir upp ellefu flugmönnum  Flugmennirnir voru langlaunahæstu starfsmenn fragtflugfélagsins Morgunblaðið/Jim Smart Bláfugl Forstjóri félagsins segir uppsagnirnar vera nauðsynlegar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.