Morgunblaðið - 31.12.2020, Side 10

Morgunblaðið - 31.12.2020, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2020 VINNINGASKRÁ 449 12936 23104 32978 42954 52913 63950 70891 464 13199 23123 34176 44303 53262 64511 71338 536 13640 23270 34244 45000 53373 64552 71446 692 14258 24107 34403 45166 53697 64578 71620 703 14436 24556 34720 45228 53846 64611 71921 2038 14608 24697 34754 45255 53890 64777 72053 2455 14973 25179 35297 45275 54067 64975 72656 2665 14992 27156 35615 45733 54607 65464 73045 2878 15132 27505 35825 45855 54864 65665 73468 3556 15141 27563 35832 46091 55010 66054 74074 4230 15298 28269 35893 46354 55194 66179 74261 4306 15697 28304 36201 46576 55853 66440 74792 4355 15756 28326 36301 46740 56150 66500 75302 4428 15805 28353 36321 46980 56259 66810 75564 4531 16000 28447 36586 47212 56578 67043 75885 5800 16053 28563 36614 47374 56758 67054 76014 6185 16253 28827 36728 47598 56805 67362 76143 6441 16442 28962 36778 47616 57125 67601 76360 6519 16710 29273 36786 47808 57217 67848 76653 6697 17220 29352 36942 47860 57281 68012 77249 7592 17627 29364 37234 48670 57304 68244 77276 7637 17694 29636 37698 48811 57419 68299 78237 8053 17760 29792 37906 48858 57452 68358 78300 8385 18499 30694 38069 49735 59116 68622 78414 8576 18794 30790 38454 49914 59432 68788 78570 8762 19342 30870 38752 50075 59537 68920 78639 8782 19646 30873 39040 50558 59882 69236 79020 8945 19723 31249 39262 50594 59954 69423 79174 8997 19744 31417 39334 50625 60414 69555 79583 9430 20251 31787 39344 50795 61380 69649 79613 10553 20271 31828 39543 50853 61660 69656 79861 10934 21000 31898 40047 51238 61816 69873 11031 21895 32011 41186 51266 62665 70142 11297 22044 32423 42011 51429 62872 70163 11467 22374 32457 42183 51435 63094 70371 12620 22501 32813 42816 52433 63551 70531 12781 22767 32976 42891 52830 63774 70805 1319 11668 21512 30753 41924 51938 62741 74099 1740 12160 21528 31954 42069 53346 62910 74774 3101 12361 21613 32749 43074 55121 63157 75021 3198 13035 22686 35574 43759 56418 63738 75372 3628 13368 23984 35837 44297 56546 63746 75712 3711 13793 23988 36068 44601 56944 65677 76584 4211 15521 24056 37312 45915 57792 66483 77585 5262 16379 25402 38731 46458 57857 66491 78467 5801 16526 26700 38844 47438 57977 67497 78736 8926 17453 27765 38863 49199 58470 69305 10279 17753 29026 39386 50961 58612 71078 10632 21010 29109 40972 51239 60705 71443 10638 21495 30705 41162 51571 61763 72005 Næstu útdrættir fara fram 7., 14., 21. & 28. jan 2021 Heimasíða: www.das.is Vinningur Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 25.000 Kr. 50.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur) 10061 33478 41926 47044 47129 Vinningur Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 262 11219 24682 46604 65688 73464 487 13341 36145 55118 66766 76177 7416 13985 42678 56441 70229 77221 8183 18361 44921 57160 70379 79217 Aðalv inningur Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur) 4 2 9 1 0 35. útdráttur 31. desember 2020 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Ég hef sennilega aldrei neytt fjöl- breyttari fæðu en nú, eftir að ég gerðist vegan,“ segir Björk Gunn- arsdóttir, meðstjórnandi í Sam- tökum grænkera á Íslandi, félagi þeirra sem forðast að neyta dýra- afurða. Tilgangur starfsins er að veita fræðslu um mikilvægi veg- anisma og minnka eftirspurn eftir afurðum sem frá dýrum falla. Und- anfarið hafa samtökin bent sérstaklega á þau umhverfisáhrif sem fylgi breyttum matarvenjum; minni neysla á kjöti og öðrum slík- um afurðum dragi úr þeirri lofts- lagsvá sem blasir við. Samtök grænkera sendu nýlega hvatningu til sveitarfélaganna um að í öllum leik- og grunnskólum verði grænkerafæði jafngilt kjöti og fiski á matseðlum og í boði fyrir alla minnst vikulega. Með slíku sé óskum mætt, aukheldur sem þetta falli vel að almennum markmiðum um að minnka kolefnisspor. Matarvenjum verði breytt Markmið Íslendinga í loftslags- málum eru háleit, segir Björk, og rannsóknir sýna að stórt skref til þess að draga úr loftslagsvánni sé að matarvenjum verði breytt. Bendir hún á að á Nýja-Sjálandi sé talið að slíkar breytingar, sem og minni matarsóun, geti dregið úr losun gróðurhúsalofttegunda tengdra matvælum um allt að 42%. „Mér finnst miður að áherslan á loftslagsmál og matvæli hér á landi beinist að mestu að því að gera framleiðslu dýraafurða umhverfis- vænni. Rannsóknir sýna að slíkt er einfaldlega ekki nóg. Fyrir þessu tala samtökin nú gagnvart forystu sveitarstjórna auk þess sem ráð- herrar og þingmenn sem vitað er að eru jákvæðir fyrir málstaðnum fá brýningu. Í dag er það undir hverjum og einum skóla komið hvort og þá hversu oft grænkera- fæði stendur til boða. Sumir skólar standa sig vel í þessu en ekki eru allir svo heppnir,“ segir Björk og heldur áfram: „Foreldrar hafa stundum þurft að standa í baráttu svo börn þeirra fái grænkerafæði. Í sumum til- fellum treysta skólar sér ekki til að koma til móts við þá og þurfa foreldrar þá að koma með nesti fyrir börnin. Það að þurfa að hafa svona mikið fyrir þessu getur dregið úr annars áhugasömu fólki sem er jafnvel búið að breyta matarvenjum heima fyrir. Þetta er þó alltaf að verða betra og á flest- um stærri vinnustöðum er, það ég best veit, boðið upp á grænkera- fæði jafnhliða kjöti, fiski eða öðru sem er á matseðlinum. Tíminn vinnur með þessari þróun.“ Ódýrara og oftar í boði Á Barnaþingi árið 2019 kom, að sögn Bjarkar, fram skýr vilji ís- lenskra barna til að skólarnir yrðu vegan. Börnin töldu að hægt væri að ná þessu með því að hafa græn- meti ódýrara. „Að börnum bjóðist grænkera- fæði óski þau og foreldrar þess er mikilvægt mannréttindamál. Ein- hver sveitarfélög, svo sem Mos- fellsbær, hafa stigið stór skref í þessa átt og vonandi fylgja fleiri þeim,“ segir Björk sem sjálf hætti að borða kjöt fyrir sex árum. Steig svo skrefið til fulls fyrir þremur árum og gerðist vegan. Björk segir Samtök grænkera leggja áherslu á að fræða fólk um að það þurfi ekki að vera flókið að gerast vegan. „Við gefum til dæm- is út uppskriftahefti í tengslum við Veganúar nú um áramótin og vinna er hafin við þýðingu og stað- færingu á ráðleggingum um plöntumiðað mataræði, nokkuð sem er löngu kominn tími á. Kjötið mengar Ég hef áhyggjur af loftslagsmál- unum og vil leggja mitt af mörkum til að draga úr þeirri þróun. Ég fann fyrir samviskubiti vegna kjöt- neyslu minnar og einfaldlega hætti. Sjónir fólks hafa einkum beinst að nautakjöti og hve meng- andi framleiðslan á því er. Það er þó ekki bara nautakjötið sem þarf að horfa til. Mengunin sem fylgir framleiðslu á einu kílói af íslensku lambakjöti er til dæmis svipuð og sú mengun sem reiknast á hvern farþega í flugi milli Íslands og Evrópu samkvæmt nýútkominni skýrslu hér á landi. Svona má bregða mælistiku á allt – og þróun loftslagsmála verður ekki breytt nema við endurskoðum venjur okkar og líf heildstætt,“ segir Björk. Morgunblaðið/Árni Sæberg Eldhúsið Björk Gunnarsdóttir við matargerð og auðvitað með grænmetið hér í takinu. Með á myndinni eru synirnir Heiðar Ingi og Hilmir Berg, nær móður sinni. Strákar sem vaxa hratt og þurfa því talsvert að bíta og brenna. Tíminn vinnur með grænkeramenningu  Vegan vex  Fjölbreytt fæða  Áskorun grænkeranna Veisla Grænt, gott og girnilegt og fallega framreitt á diskinum. Veistu um góðan rafvirkja? FINNA.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.