Morgunblaðið - 31.12.2020, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2020
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Meðalhiti í byggðum landsins árið
2020 er sjónarmun undir meðaltali
síðustu tíu ára (-0,3 stig), en vel yfir
eldri meðaltölum. Þetta segir
Trausti Jónsson veðurfræðingur á
Moggablogginu. Sé litið á spásvæði
hefur verið kaldast á Suðurlandi og
við Faxaflóa, þar raðast árið í 17.
hlýjasta sæti (af 20) á öldinni. Aftur
á móti var hlýjast að tiltölu á Aust-
fjörðum. Þar er árið það 9. hlýjasta á
öldinni.
Desember sem nú kveður verð-
ur að teljast hagstæður um landið
sunnan- og vestanvert og með snjó-
léttara móti, segir Trausti.
Mjög úrkomusamt var aftur á
móti norðaustan- og austanlands og
virðist stefna í úrkomusamasta des-
embermánuð sem vitað er um á all-
mörgum veðurstöðvum í þeim lands-
hlutum.
Veðurstofan gerir árið 2020 upp
á fyrstu dögum ársins 2021. Meðal-
hiti í Reykjavík fyrstu ellefu mánuði
ársins var 5,4 stig sem er 0,7 stigum
ofan meðallags áranna 1961 til 1990
en -0,5 stigum undir meðallagi síð-
ustu tíu ára. Meðalhitinn raðast í 40.
sæti á lista 150 ára. Á Akureyri var
meðalhiti mánaðanna ellefu 4,8 stig.
Það er 1,1 stigi ofan meðallags ár-
anna 1961 til 1990 en -0,2 stigum
undir meðallagi síðustu tíu ára. Með-
alhitinn þar raðast í 22. til 24. sæti
sæti á lista 140 ára. Útkoma ársins í
heild ætti að vera nærri þessu.
Tíð var óhagstæð og illviðrasöm
fram undir páska – þó skárri í mars
heldur en í janúar og febrúar en þeir
mánuðir voru óvenjuillviðrasamir,
segir Trausti á blogginu. Maí og júní
voru hagstæðir, en víða var fremur
kalt í júlí sem var víðast hvar kaldari
heldur en ágúst. Framan af ágúst
rigndi mjög um landið sunnan- og
vestanvert en hlý og hagstæð tíð var
þá norðaustanlands. Sunnanlands
hefði áður fyrr jafnvel verið talað um
rigningasumar í heyskap. Fremur
svalt var í september en aftur á móti
hlýtt að tiltölu í október og vindar
oftast hægir. Heldur illviðrasamara
var í nóvember, en samgöngur voru
greiðar og tíð almennt hagstæð.
Árið í heild hefur verið úrkomu-
samt. Þannig var úrkoman 13% um-
fram meðallag í Reykjavík, en 26%
umfram meðallag á Akureyri fyrstu
11 mánuði ársins.
Úrkomumet falla fyr-
ir austan og norðan
Morgunblaðið/Eggert
Rigningaár Árið 2020 telst vera í blautara lagi. Úrkoman í Reykjavík og á Akureyri hefur verið yfir meðallagi.
Meðalhiti á landinu árið 2020 sjónarmun undir meðaltali
Mörkin 6 - 108 Rvk.
s: 781-5100
Lokað gamlársdag og
nýársdag. Opnum aftur
laugardag 2.jan.: Kl.11-15.
Þökkum ánægjuleg viðskipti á liðnu ári
Gleðilegt nýtt ár!
Söfnum í neyðarmatarsjóð til matarkaupa
hjá Fjölskylduhjálp Íslands
fyrir þá fjölmörgu sem lægstu
framfærsluna hafa.
Þeim sem geta lagt okkur lið
er bent á bankareikning
0546-26-6609,
kt. 660903-2590.
Fjölskylduhjálp Íslands, Iðufelli 14 Breiðholti
og Baldursgötu 14 í Reykjanesbæ.
Neyðarsöfnun í matarsjóðinn
Guð blessi ykkur öll
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Alls hafa borist 47 tilkynningar
vegna tjóna á Seyðisfirði í kjölfar
aurskriðufalla. Þar af eru 16 tilkynn-
ingar vegna tjóns á innbúi en í heild
er um að ræða tjón á 31 húseign. Al-
tjón er á 10-12 húsum.
Þetta kemur fram hjá Huldu
Ragnheiði Árnadóttur, fram-
kvæmdastjóra Náttúruhamfara-
tryggingar. Segir hún að búast megi
við fleiri tilkynningum áður en yfir
lýkur.
„Sumt er sama húsið þar sem
bæði er um að ræða tjón á húsi og
innbúi,“ segir Hulda.
Hún segir að það hafi verið vitað
að fleiri hús hafi verið skemmd held-
ur en kom fram fyrstu dagana eftir
skriðuföllin. Í mörgum tilfellum er
um að ræða vatnstjón sem fólk hefur
eðli málsins samkvæmt ekki komist
heim til þess að kanna nema á allra
síðustu dögum í besta falli.
„Það er í raun ekki enn komið í
ljós hvert umfangið er. Við reiknum
með fleiri tilkynningum,“ segir
Hulda.
Hafa ekki komist á staðinn
Starfsfólk Náttúruhamfaratrygg-
ingar hefur ekki komist á staðinn til
þess að meta tjón eftir að stærsta
skriðan féll. Það mun takast í upp-
hafi árs. Þrátt fyrir aukinn fjölda til-
kynninga hefur upphaflegt mat á
tjóninu upp á milljarð króna ekki
breyst.
„Við höfum ekkert breytt skoðun
okkar um það að þetta verði ein-
hvers staðar í kringum milljarð. Það
er sú tala sem við reiknum með. Það
helgast af því að við erum með kort
og gerðum í upphafi ráð fyrir
ákveðnum fjölda tilkynninga þótt við
séum ekki búin að fá þær allar í
hendur núna,“ segir Hulda.
„Við hvetjum fólk til að tilkynna
tjón sem fyrst svo það fái þjón-
ustuna sem fyrst,“ segir Hulda.
Morgunblaðið/Eggert
Seyðisfjörður Miklar skemmdir urðu á mörgum húsum eftir aurflóðin.
47 tjónatilkynn-
ingar eftir flóðin
Altjón á 10-12 húsum á Seyðisfirði
Frá 1. janúar eykst greiðsluþátt-
taka sjúkratrygginga í kostnaði við
tannlækningar öryrkja og aldraðra
úr 50% í 57%, og er áætlaður kostn-
aður ríkisins um 200 milljónir
króna vegna þessa samkvæmt gild-
andi fjármálaáætlun. Lækkunin er
liður í áætlun Svandísar Svav-
arsdóttur heilbrigðisráðherra um
að lækka greiðsluþátttöku sjúk-
linga, og stefnt er að því að þátt-
taka sjúkratrygginga vegna tann-
lækniskostnaðar þessara hópa
verði komin í 75% árið 2024. Komu-
gjöld í heilsugæslu munu því lækka
úr 700 krónum í
500 krónur eftir
áramót og fellt
verður niður
sérstakt komu-
gjald hjá þeim
sem sækja aðra
heilsugæslustöð
en þeir eru
skráðir hjá. Þá
mun heilsugæslan um allt land taka
við skimunum fyrir krabbameini í
leghálsi og lækkar þá gjald fyrir
leghálsstrok úr 4.818 krónum í 500
krónur.
Gjöld fyrir heilsugæslu- og tannlækninga-
þjónustu lækka eftir áramót