Morgunblaðið - 31.12.2020, Síða 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2020
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Veitur, dótturfélag Orkuveitu
Reykjavíkur, eru með það til skoð-
unar að bora eftir heitu vatni í
Krýsuvík fyrir suðursvæði höfuð-
borgarsvæðsins, Kópavog, Garðabæ
og Hafnarfjörð. Krýsuvík er jarð-
hitasvæði á Reykjanesskaga, sunn-
an við Kleifarvatn.
Heitavatnsnotkun höfuðborgar-
svæðins hefur nánast tvöfaldast frá
árinu 1990 og vegna heimsfaraldurs
kórónuveirunnar hefur notkunin
verið sérstaklega mikil á þessu ári.
Því þurfa Veitur að huga að aukinni
vatnsöflun næstu áratugina.
„Við höfum enn stækkunarmögu-
leika á varmastöð Hellisheiðarvirkj-
unar og þessar hugmyndir (um
Krýsuvík) eru hluti af framtíðarsýn
til áratuga,“ segir í svari Breka
Logasonar, sérfræðings í sam-
skiptum hjá Veitum við fyrirspurn
Morgunblaðsins.
Verkefnið á byrjunarreit
Hugmyndirnar séu enn á þróun-
arstigi en HS Orka er með rann-
sóknarleyfi í Krýsuvík. „Þar sem
verkefnið er á byrjunarreit höfum
við enn sem komið er ekki sett fé í að
hanna veituna. Það er til dæmis enn
óljóst hvaða hitastig við værum að fá
en hvorttveggja kæmi til greina af
okkar hálfu að sækja í háhita með
svipuðum hætti og á Nesjavöllum og
Hellisheiði eða í lægri hita sem kann
að vera norðan við háhitasvæðið.
Nýtingin væri þá meira í ætt við það
sem við sjáum á vatninu úr Mosfells-
bænum og af Laugarnessvæðinu,“
segir í svari Breka.
Staða hitaveitunnar komst í frétt-
irnar í byrjun desember þegar spáð
var miklu kuldakasti og Veitur báðu
fólk að fara sparlega með vatnið.
Veðurspár í gerðu ráð fyrir að á höf-
uðborgarsvæðinu yrði allt að 12
stiga frost í nokkra daga, að við-
bættri vindkælingu. Þessar spár
gengu ekki eftir og frostið var 3,5-4
gráðum minna en búist var við.
„Almenningur brást vel við kalli
okkar og nýting á vatni var alveg
innan þess sem Veitur ráða við. Í
kuldakastinu var mest verið að nota
um 15.000 rúmmetra af vatni á
klukkustund. Það er svipað og Laug-
ardalslaugin sé fyllt 10 sinnum.
Reyndar þarf alltaf að nýta heita
vatnið skynsamlega, rétt eins og
aðrar auðlindir,“ var haft eftir Ólöfu
Snæhólm Baldursdóttur, upplýs-
ingafulltrúa OR, í Morgunblaðinu.
Vatnið er leitt langar leiðir
Borholur í Mosfellsbæ og Reykja-
vík sjá noðursvæði höfuðborg-
arinnar fyrir heitu vatni. Heita vatn-
ið á suðursvæðum höfuðborgar-
svæðisins kemur í dag frá virkjunum
á Nesjavöllum og Hellisheiði. Heita
vatnið er leitt um Nesjavallaæð (25
km) eða Hellisheiðaræð (19 km) að
heitavatnsgeymum og dælustöð á
Reynisvatnsheiði. Þaðan er svo um
20 kílómetra lagnaleið að nýbygg-
ingarsvæðunum á Völlunum í Hafn-
arfirði. Heita vatnið er þá búið að
fara um 39-45 km leið frá virkjun til
viðskiptavina.
Án þess að nokkrar lagnaleiðir frá
hugsanlegu nýtingarsvæði í Krýsu-
vík hafi verið skoðaðar, hvað þá
ákveðnar, segir Breki Logason að
samt sem áður megi áætla að lagna-
leið frá Krýsuvík til höfuðborgar-
svæðisins yrði á bilinu 25-35 km
löng. „Það er hlutverk okkar að vera
með sýn fyrir hitaveitu höfuðborg-
arsvæðisins til langs tíma. Þá erum
við að tala um allt að hundrað ár
fram í tímann. Í því samhengi er
mikilvægt að horfa bæði til eft-
irspurnar og náttúruváar eins og
átakshópur Stjórnarráðsins um úr-
bætur í innviðum í kjölfar fárviðr-
isins 2019 benti á. Nýlegar jarð-
hræringar á Suðurnesjum hafa sett
orkuöryggi hitaveitu fyrir almenn-
ing á fjölmennasta svæði landsins í
kastljósið ásamt því að mikil eft-
irspurnaraukning eftir heitu vatni á
höfuðborgarsvæðinu kallar á að
horft sé til fleiri svæða en Heng-
ilsins,“ segir Breki.
Hitar vatn frá Krýsuvík húsin?
Veitur eru með til skoðunar að bora eftir heitu vatni í Krýsuvík fyrir suðursvæði höfuðborgar-
svæðsins Hugmyndin er enn á þróunarstigi Vatnsöflun skoðuð allt að 100 ár fram í tímann
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Krýsuvík Öflugt jarðhitasvæði á Reykjanesskaga. Möguleg uppspretta á heitu vatni fyrir íbúa höfuðborgarsvæðis.
Uppruni heita vatnsins á höfuðborgarsvæðinu
MOSFELLSBÆR
REYKJAVÍK
KÓPAVOGUR
GARÐABÆR
Reykjahlíð
Reykir
Grafarholt
Öskjuhlíð
Elliðaárdalur
Reynisvatnsheiði
HAFNARFJÖRÐUR
Laugarnes
Heitt vatn frá borholum í Laugarnesi, Elliðárdal og Mosfellsbæ
Upphitað grunnvatn frá Nesjavöllum og Hellisheiði
Möguleg nýting vatns frá Krýsuvík (engin lagnaleið ákveðin)
Nesjavallaæð
Hellisheiðaræð
K
o
rt
a
g
ru
n
n
u
r:
O
R
Dómnefnd um hæfni umsækjenda um
embætti dómara hefur skilað umsögn
sinni um umsækjendur í fjögur emb-
ætti héraðsdómara, sem auglýst voru
laus til umsóknar í september sl. Frá
þessu er greint á heimasíðu dóms-
málaráðuneytisins en dómsmálaráð-
herra skipar í embættin.
Um er að ræða tvö embætti dóm-
ara með fyrsta starfsvettvang hjá
Héraðsdómi Reykjavíkur, eitt emb-
ætti dómara með fyrsta starfsvett-
vang hjá Héraðsdómi Reykjaness og
eitt embætti dómara með fyrsta
starfsvettvang hjá Héraðsdómi Norð-
urlands eystra.
Umsóknarfrestur var til 12. októ-
ber 2020. Samtals bárust 26 umsóknir
um embættin fjögur en sex umsækj-
endur drógu umsóknir sínar síðar til
baka.
Það er niðurstaða dómnefndar að
Björn L. Bergsson, skrifstofustjóri
Landsréttar, og Jóhannes Rúnar Jó-
hannsson lögmaður séu hæfastir um-
sækjenda til að hljóta skipun í emb-
ætti tveggja héraðsdómara með
fyrsta starfsvettvang hjá Héraðsdómi
Reykjavíkur og embætti eins héraðs-
dómara með fyrsta starfsvettvang hjá
Héraðsdómi Reykjaness og að ekki
séu efni til að greina á milli hæfni
þeirra tveggja.
Jafnframt er það niðurstaða dóm-
nefndar að Björn Þorvaldsson sak-
sóknari og Hulda Árnadóttir lögmað-
ur komi næst þeim tveimur og ekki
séu efni til að greina á milli hæfni
þeirra tveggja.
Loks er það niðurstaða dómnefnd-
ar að Arnbjörg Sigurðardóttir, að-
stoðarmaður dómara, og Hlynur
Jónsson lögmaður séu hæfust um-
sækjenda um embætti eins héraðs-
dómara með fyrsta starfsvettvang hjá
Norðurlandi eystra og ekki séu efni
til að greina á milli hæfni þeirra
tveggja.
Dómnefndina skipuðu: Eiríkur
Tómasson formaður, Heiðrún E.
Jónsdóttir, Kristín Benediktsdóttir,
Ragnheiður Harðardóttir og Sigríður
Þorgeirsdóttir. sisi@mbl.is
Morgunblaðið/Þór
Metin hæfust í emb-
ætti héraðsdómara
Fjögur embætti voru auglýst laus
...algjör snilld! Hlaða Draga út og vefja Þrýsta og skera Geyma
• Klippir plastfilmur og ál
• 35% sparnaður
• Ódýrari áfyllingar
• Má setja í uppþvottavél
Engar flæk
jur
Ekkert vese
n
Ómissandi í eldhúsið
Fæst í FK, Hagkaupum, Byko, Nettó, Krónunni og Húsasmiðjunni
www.danco.is
Heildsöludreifing