Morgunblaðið - 31.12.2020, Síða 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2020
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Stefnt er að því að nýr leikskóli og
fjölskyldumiðstöð rísi árið 2022 á
reit sem kenndur er við Njálsgötu-
róló. Reiturinn afmarkast af Grett-
isgötu, Njálsgötu, Rauðarárstíg og
Snorrabraut og mun byggingin rísa
fyrir aftan Austurbæjarbíó. Á
næsta ári verður unnið við hönnun
hússins og framkvæmdin undirbúin
fyrir útboð. Vonast er til að fram-
kvæmdir geti hafist síðla árs 2021.
Reykjavíkurborg í samstarfi við
Arkitektafélag Íslands efndi í sum-
ar til opinnar hönnunar- og fram-
kvæmdasamkeppni um nýjan mið-
borgarleikskóla og fjölskyldu-
miðstöð á reitnum og voru úrslit
kunngjörð rétt fyrir jólin.
Fyrstu verðlaun hlutu Basalt
arkitektar og Landslag. 2.-3. verð-
laun hlutu THG arkitektar og
Landform og Andrúm arkitektar.
Undirbúningur að byggingu á
nýjum miðborgarleikskóla á Njáls-
göturóló hófst árið 2018 þegar stýri-
hópurinn Brúum bilið var stofn-
aður. Hópnum var falið að finna
leiðir til að brúa bil á milli fæðing-
arorlofs og leikskóla. Eitt af
áhersluatriðum var að fjölga leik-
skólaplássum í borginni. Gert er ráð
fyrir að nýr miðborgarleikskóli
rúmi um 116 börn á aldrinum eins
til sex ára. Einnig verður starfrækt
fjölskyldumiðstöð í byggingunni.
Fjölmargir arkitektar og hönnuðir
sýndu þessu verkefni áhuga. Inn-
sendar tillögur voru 29 talsins og
komu víðsvegar að úr heiminum.
Keppendur settu fram hug-
myndir sínar í samræmi við keppn-
islýsingu, s.s. byggingarform, innri
og ytri tengingar, stærðir og um-
hverfi. Í leikskólanum Miðborg hef-
ur starfsfólk þróað flæði í leik og
námi barna. Það felur í sér að börn-
in fái sjálf að velja sér viðfangsefni
og flæða áfram í leiknum án leið-
sagnar og kennslu. Sjálfræði skipar
þar stóran sess því börnin fá að vera
leiðtogar í eigin námi, segir í frétt
frá borginni.
„Tillagan er einstaklega vel unnin
og svarar mjög vel áherslum í for-
sögn og þörfum starfseminnar.
Byggingarform er fágað og látlaust
með ávölum hornum og umlukt
málmmöskva, sem skapar áhuga-
vert spil skugga, sjónrænnar dýpt-
ar, lokunar og gagnsæis. Litaval er
lágstemmt en þó líflegt. Byggingin
fer einstaklega vel í götumyndinni.
Innri rýmismyndun byggingarinnar
skapar áhugavert mótvægi við ytri
ásýnd, en rifjur úr krosslímdu
timbri gefa rýminu allt í senn hlý-
leika, hrynjandi og uppbrot. Þessar
andstæður gefa byggingunni sér-
stöðu, á áhrifaríkan hátt þegar horft
er inn frá leikskólalóð og þakgörð-
um,“ segir meðal annars í umsögn
dómnefndar.
Byggingin er á þremur hæðum.
Aðalinngangur er úr garði, sem
tengir lóð og leikskóla. Á annarri
hæð verða heimastofur elstu
barnanna ásamt aðstöðu starfsfólks.
Fjölskyldumiðstöð verður á þriðju
hæð og tengist þakgarði.
Nýr leikskóli rís á Njálsgöturóló
Basalt arikektar
og Landslag hlut-
skörpust í samkeppni
Tölvumynd/Basalt arkitektar
Njálsgöturóló Litaval er lágstemmt en þó líflegt og byggingin fer einstaklega vel í götumyndinni segir í niðurstöðu dómnefndar arkitektasamkeppninnar.
Óskum landsmönnum
farsældar á nýju ári 2021