Morgunblaðið - 31.12.2020, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 31.12.2020, Blaðsíða 34
BAKSVIÐ Guðni Einarsson gudni@mbl.is Kórónuveirufaraldurinn hef-ur hefur haft margvíslegáhrif á heilbrigðiskerfiðsamkvæmt grein um starfsemi heilbrigðisþjónustu í ann- arri og þriðju bylgju Covid-19. Hún birtist í nýjasta tölublaði Talna- brunns, fréttabréfs landlæknis um heilbrigðisupplýsingar. Þar segir að þegar á heildina sé litið hafi farald- urinn haft almennt meiri áhrif á heilbrigðisþjónustu í fyrstu bylgju faraldursins (lok febrúar til fyrstu viku í maí) en í annarri og þriðju bylgju (ágúst-nóvember) þótt fleiri hafi greinst smitaðir samanlagt í ann- arri og þriðju bylgju en þeirri fyrstu. Nýgengi innanlandssmita var hæst um miðjan október og um svipað leyti kom upp hópsýking á Landakoti. Landspítali var settur á neyðarstig í fyrsta sinn í sögu spítalans. Val- kvæðum aðgerðum var frestað á tímabilinu 26. október til 11. nóv- ember. Skurðaðgerðum fækkaði Mikill munur var á fjölda tiltekinna skurðaðgerða á þessu ári miðað við sama tímabil í fyrra. Skýringin á því eru fyrirmæli landlæknis, sem heil- brigðisráðherra staðfesti, um að ekki skyldi gera valkvæðar skurðaðgerðir frá 23. mars til og með 3. maí og frá 27. október til og með 11. nóvember. Skoðaðar voru valdar skurð- aðgerðir á Landspítala. Það eru gerviliðaaðgerðir á mjöðm og hné og hjarta- og/eða kransæðamyndataka. Aðgerðum í öllum flokkum fækkaði í vikum 31-48 miðað við meðaltal sömu vikna síðastliðin fimm ár. Fækkunin var mest þegar valkvæðum og íf- arandi aðgerðum á Landspítala var frestað. Gerviliðaaðgerðir á mjöðm voru 132 í vikum 31-48 sem var fjórðungi færri en að meðaltali í sömu vikum undanfarin fimm ár. Slíkum gervi- liðaaðgerðum fækkaði um þriðjung í fyrstu bylgju miðað við fimm ára meðaltal. Gerviliðaaðgerðir á hné voru 123 í annarri og þriðju bylgju sem var fjórðungs fækkun miðað við sömu vikur síðastliðin fimm ár. Þess- um hnéaðgerðum fækkaði hins vegar mun meira í fyrstu bylgju faraldurs- ins, eða um 65% miðað við fimm ára meðaltal. Hjarta- og/eða kransæðamynda- tökur voru 373 í annarri og þriðju bylgju eða 42% færri en að meðaltali í sömu vikum síðastliðin fimm ár. Aukin fjarþjónusta Samskipti við heilsugæslu jukust um 20% þegar á heildina er litið sam- anborið við fyrra ár í vikum 31-48, þ.e. frá síðustu viku júlí til síðustu viku nóvember. Á því tímabili voru nú skráð rúmlega 940 þúsund samskipti við heilsugæslustöðvar á landinu öllu. Það var umfram árlega fjölgun sam- skipta síðustu ár en svipuð aukning og í fyrstu bylgju. Símtölum og rafrænum sam- skiptum fjölgaði mikið og var aukn- ingin á milli 2019 og 2020 meiri en á milli ára þar á undan. Aukningin varð mest í rafrænum samskiptum í ann- arri og þriðju bylgju. Til dæmis má nefna samskipti í gegnum Heilsuveru en þeim fjölgaði um 90% á milli ára. Komum á heilsugæslustöðvar fækk- aði í annarri og þriðju bylgju um 14% en um 41% í fyrstu bylgju. Mikill samdráttur varð í starfsemi sjálfstætt starfandi sérgreinalækna, tannlækna og sjúkraþjálfara í fyrstu bylgju faraldursins miðað við síðustu ár. Fjölgun varð hins vegar í vor og sumar en svipuð starfsemi og í með- alári í annarri og þriðju bylgju farald- ursins. Áhrif faraldursins á heilbrigðiskerfið Morgunblaðið/Eggert Breytingar Fleiri hringdu eða voru í rafrænum samskiptum við heilsugæsl- una en færri komu á heilsugæslustöðvar. Valkvæðum aðgerðum fækkaði. 34 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2020 Árið 2020 hófstmeð fréttumaf nýrri kór- ónuveiru í Kína. Fyrst í stað bar ekki mikið á þeim en fljót- lega yfirtóku þær allt og fregnir um út- breiðslu smita, harðar sótt- varnaaðgerðir, dauðsföll og heimsfaraldur yfirtóku flest ann- að. Það var að vísu ekki fyrr en í mars sem Alþjóðaheilbrigð- isstofnunin skilgreindi nýju kór- ónuveiruna sem heimsfaraldur, en flestir aðrir voru þá fyrir löngu búnir að átta sig á ástandinu. Sem betur fer höfðu sumir þeirra þekk- ingu til að hanna og þróa mótefni við veirunni skæðu. Mikil óvissa var lengst af um hve langan tíma tæki að þróa mótefni og koma því í framleiðslu og sumir bentu raunar á að engin trygging væri yfirleitt fyrir því að mótefni fyndist. Það mundi að minnsta kosti ekki tak- ast að koma því út á þessu ári enda væri þá um fordæmalausan hraða í þróun bóluefnis að ræða. En þetta eru fordæmalausir tímar eins og bent hefur verið á í fáein skipti á árinu og þess vegna var við hæfi að nánast sá eini sem hélt því fram að bóluefnið yrði komið í umferð fyrir áramót væri fordæmalaus forseti Bandaríkj- anna, sem nú er við það að kveðja embætti, og gerir það auðvitað líka á fordæmalausan hátt. Sá sem tekur við í janúar er líka einstakur í sinni röð, af öðrum ástæðum þó. Hann hefur lengri reynslu en aðrir sem tekið hafa við þessu mikilvæga embætti og von- andi nýtist hún honum í þeim ólgusjó sem fram undan er, því það eina sem hægt er að fullyrða um framtíðina og verkefni þeirra sem standa í stafni er að þau minna gjarnan á ólgusjó. Sá sem nú er að kveðja Hvíta húsið hefur náð töluverðum árangri í Mið-Austurlöndum þó að fáir hefðu spáð því. Þar er að sumu leyti friðvænlegra en oft áður, ekki síst fyrir vini Bandaríkjanna í Ísrael, og búið er að taka á Írön- um eftir misheppnaða samninga sem gerðir voru í tíð Obama for- seta og Bidens varaforseta. Hætt er við að Biden endurtaki mistök- in og friðmælist við Írana. Síðast þegar það var gert voru Írönum færðar fúlgur fjár sem nýst hafa til að styðja við hryðjuverka- starfsemi á svæðinu. Vonandi hef- ur Biden lært af þeirri reynslu. Fleiri verkefni bíða á þessum slóðum. Samskiptin við Natóríkið Tyrkland eru ekki einföld og samningar þess við Rússland um hergagnakaup eru áhyggjuefni. Það sama má segja um deilur Tyrkja og ríkja Evrópusambands- ins um Kýpur og hafsvæðið þar í kring. Vesturlönd þurfa á því að halda að eiga góð samskipti við Tyrki og eftir alvarleg mistök í samskiptum við stjórnvöld þar í landi þegar uppreisnarástand ríkti hefur traustið minnkað veru- lega. Rússar hafa skilning á þessu og leggja sig fram um að eiga góð samskipti við Tyrki þó að þessar þjóðir séu ekki alltaf samstiga í deilum eða átökum sem upp koma. En Rússar hafa til dæm- is með því að gefa Tyrkjum leyfi til að framleiða Spútnik- bóluefni sitt sýnt vinarhug sem Tyrkir kunna að meta. Samskiptin við Kína eru annað viðfangsefni fram undan og þau verða ekki einföld frekar en fyrri daginn. Kína hefur sýnt það í kór- ónuveirufaraldrinum að upplýs- ingum þaðan er ekki treystandi. Til marks um það eru til dæmis handtökur þeirra Kínverja sem viljað hafa segja fréttir af ástand- inu. Vesturlönd hljóta að spyrja stjórnvöld í Kína hvað þau hafi að fela og almenningur á Vestur- löndum hlýtur að taka upplýs- ingum frá Kína með miklum fyrir- vara, hvort sem það eru upplýsingar um kórónuveiruna, öryggi á tæknisviðinu eða áform á hernaðarsviðinu. Þó að árið hafi allt einkennst af kórónuveirufaraldrinum og áhrif- in muni óhjákvæmilega teygja sig langt inn á næsta ár hið minnsta, þá er ekki svartnætti alls staðar og tækifæri er einnig að finna. Efnahagslega höggið hefur verið tilfinnanlegt hvarvetna. Þetta þýðir þó ekki að við séum dæmd til langvarandi kreppu, við gætum jafnvel horft fram á óhóflegan uppgang á næstu árum því að hag- kerfið fer gjarnan í ökkla eða eyra. Á þriðja áratug liðinnar ald- ar varð mikill uppgangur eftir samdrátt og hörmungar vegna heimsstyrjaldar. Þriðji áratugur þessarar aldar, sem nú er að hefj- ast, gæti orðið eins. Ef til vill þurf- um við innan fárra missera eða ára að óttast meira hrun á hluta- bréfamarkaði en þá kreppu í raun- hagkerfinu sem við glímum nú við. Í miðjum heimsfaraldrinum og efnahagslegu niðursveiflunni höf- um við horft upp á ævintýralegan vöxt margra fyrirtækja á hluta- bréfamarkaði og gríðarlega já- kvæðar viðtökur nýrra hlutabréfa á markaði. Við sáum sem betur fer jákvæðar viðtökur hér á landi þegar Icelandair þurfti á nýjum fjárfestum að halda en það bliknar þó í samanburði við æðið sem runnið hefur á fjárfesta í Banda- ríkjunum. Þar í landi hefur í ár safnast nær 60% meira í frum- útboðum á hlutabréfamarkaði en nokkru sinni fyrr. Þessar sterku viðtökur eru að sjálfsögðu að hluta til að minnsta kosti vegna óvenjulegra aðstæðna á fjármálamörkuðum, en geta líka verið til marks um að fjárfestar telji að hagkerfið rétti hratt úr kútnum. Og hagkerfið getur vissulega gert það. Þegar, ekki lengur ef, bóluefnið verður komið með næga útbreiðslu verður slak- að á sóttvörnum og hjól efnahags- lífsins fara þá að snúast óhindrað. Verði vel á málum haldið hér á landi hafa Íslendingar alla burði til að nýta sér til fulls þau tæki- færi sem í þeim breyttu aðstæðum felast. Morgunblaðið óskar lesendum sínum gleðilegs árs og þakkar samfylgdina á liðnum árum. Árið hófst á atlögu kórónuveirunnar og kveður þegar hillir undir sigur á henni} Við áramót Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Á árinu sem er að líða fór sem oftar að atburðirnir tóku á sig allt aðra mynd en nokkurn gat órað fyrir. Í kjölfar norðanóveðurs undir lok síðasta árs heilsaði nýja árið með snjóflóðum á Flateyri og í Súgandafirði og jarðskjálftum og landsigi nálægt Grindavík. Undir lok ársins féllu aurskriður á Seyðisfjörð þannig að rýma þurfti bæinn og íbúarnir máttu þola margvíslegar þjáningar og eigna- tjón. Þá er ótalinn faraldurinn sem hrjáð hef- ur heiminn með vaxandi þunga allt frá því fréttir fóru að berast af nýrri tegund kórónu- veiru í Kína í byrjun ársins. Þegar árið er gert upp verður að draga rétta lærdóma af viðburðum þess. Ber þar fyrst að nefna mátt samstöðu og samheldni þjóðarinnar. Sjálfboðaliðar í björgunar- og hjálparsveitum gegna lykilhlutverki við hlið heilbrigðisstarfsmanna, lögreglu og annarra viðbragðs- aðila þegar náttúruöflin sýna mátt sinn. Ósérhlífni þessa góða fólks er ómetanleg. Samhugur hefur einnig ríkt meðal þjóðarinnar varðandi þær umfangsmiklu aðgerðir sem nauðsynlegt hefur verið að grípa til vegna faraldurs- ins þar sem fjöldi fyrirtækja og einstaklinga hefur þurft að færa miklar fórnir. Farsæl hagstjórn síðustu ára kemur sér vel á þessum erfiðu tímum þar sem áhersla var lögð á að greiða niður skuldir ríkissjóðs og byggja upp öflugan gjaldeyris- varasjóð. Sú fyrirhyggja er lærdómsrík því hún hefur auðveldað okkur förina í gegnum efnahagslega erfiðleika ársins. Ríkisstjórnin hefur lagt áherslu á samstöðu þjóð- arinnar um brýnustu verkefnin. Nefna má uppbyggingu innviða og mikinn stuðning við þá sem orðið hafa fyrir skakkaföllum. Áður hafði ríkisstjórnin lagt drjúgan skerf til lífs- kjarasamninga 2019 sem reynst hafa mikið gæfuspor. Í árslok hafa orðið þau straumhvörf að far- ið er að bólusetja þjóðina gegn kórónuveir- unni og vonir glæðast um bjartari tíma fram undan. Samhliða skiptir máli að grundvöllur hefur verið lagður fyrir öfluga viðspyrnu í at- vinnu- og efnahagslífi landsmanna. Áherslur Sjálfstæðisflokksins endurspegl- ast í fjölmörgum aðgerðum ríkisstjórnar- innar á kjörtímabilinu. Við leggjum áherslu á frjálst markaðshagkerfi því við vitum að það mun auka hagsæld þjóðarinnar. Boðskapur okkar um öflugt atvinnulíf er ekki orðin tóm því þannig sköpum við störf og um leið tekjur heimilanna. Þegar bólusetningum lýkur bíður okkar það mikilvæga hlutverk að endurreisa hagkerfið, tryggja fyrirtækjum góð rekstrarskilyrði og berjast gegn þeirri vá sem atvinnuleysi er. Í stuttu máli þurfum við að vaxa út úr efnahagsvandanum, skapa aukinn hagvöxt, ný störf og fjárfestingar í efnislegum innviðum, hugviti o.s.frv. Stilla ber skattheimtu í hóf en verja um leið grunnþjón- ustu hins opinbera. Í þessu felast verkefnin á nýju ári. Fram undan er ár mikilla tækifæra og full ástæða er til aukinnar bjartsýni. Ég lýk þessum orðum með því að óska öllum landsmönnum friðar og hagsældar á komandi ári. Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir Pistill Fram undan er ár tækifæra Höfundur er dómsmálaráðherra STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Umtalsverður samdráttur hefur orðið í notkun sýklalyfja á þessu ári. Útleystum sýkla- lyfjaávísunum fækkaði um 27% í fyrstu bylgju faraldursins og um 24% í annarri og þriðju bylgju. Einkum dró úr notkun sýklalyfja meðal barna yngri en fjögurra ára eða um 67% í fyrstu bylgju faraldursins miðað við meðaltal sömu vikna síð- ustu tveggja ára. Í annarri og þriðju bylgju var sýklalyfja- notkun barna á þessum aldri um 45% minni en að meðaltali árin tvö þar á undan. Samdráttur í sýklalyfjum FARALDURINN Morgunblaðið/Sverrir Lyf Mun minna var leyst út af sýklalyfjum en undanfarin ár.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.