Morgunblaðið - 31.12.2020, Side 41
STJÓRNMÁL 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2020
Aldrei hefði mig órað fyrir því í upphafi ársins sem kveð-ur nú senn, að þetta ár skyldi einkennast af hatrammriheimsstyrjöld gegn ósýnilegum óvini af stofni kórónu-veiru. Að þessi áramótagrein mín í Morgunblaðinu
myndi öðrum þræði fjalla um Covid-19 og þær afleiðingar og
hörmungar sem heimsfaraldurinn hefur haft á okkur öll. Ein-
angrun, sóttkví, ótti og dauði eru hugtök sem við þekkjum orðið
allt of vel. Hugtök sem fylgja og einkenna þessa styrjöld þar sem
öll heimsbyggðin er undir. Ég ætla þó ekki bara að skrifa um
þetta heldur líka það stóra verkefni sem bíður okkar allra á nýju
ári. Bjartsýni, samstaða og samkennd skulu verða einkunnar-
orðin.
Hvern hefði grunað?
Öll þekkjum við söguna. Í janúar sl. tóku fréttir að leka út frá
Wuhan í Kína um stórhættulega veiru sem virtist dreifa sér með
ógnarhraða og valda miklum skaða. Hér var á ferðinni óþekkt af-
brigði sem síðar kom í ljós að lagðist harkalegast á eldra fólk og
þau sem voru með undirliggjandi sjúkdóma. Það var þó ekki al-
gilt og veiran felldi einnig ungt, hraust fólk sem kenndi sér ekki
nokkurs meins, en það heyrði fremur til undantekninga.
Svona getur lífið sífellt komið okkur öllum á óvart. Með nýjum
degi fæðast oft nýjar áskoranir. Hið sama má auðvitað segja um
árin. Í árslok 2019 grunaði engan að við þyrftum öll að glíma við
óþekktan og skæðan smitsjúkdóm á árinu 2020.
Við upplifum öll þessa baráttu með mismunandi hætti vegna
þess að við búum við ólíkar aðstæður. Sjálf get ég einungis sagt
frá því hvernig veiran heggur að mér og mínum nánustu, í þeirri
von að mín saga segi þeim sem lesa og eiga erfitt að þau eru ekki
ein. Við erum öll að upplifa þessa baráttu í sameiningu. Öll mynd-
um við eina heild sem nú skal stefna til sigurs á veirunni á nýju
ári.
Dóttir okkar sýktist
Nú verð ég svolítið væmin, en veit að þið sem eigið börn skiljið
hvað ég er að meina. Það er alveg sama þótt barnið okkar sé full-
orðið, þá er það alltaf barnið okkar. Dóttir mín fékk Covid-19 í
mars. Ung og hraust, starfandi hjúkrunarfræðingur. Hún lenti
ekki inni á sjúkrahúsi, enda bjó hún ekki hjá mér, móður sinni,
sem hefði örugglega drifið hana þangað um leið og ljóst var að
hún átti erfitt með öndun. En svona er heilbrigðisstarfsfólkið
okkar, dugmikil, hugrökk, úrræðagóð og þrautseigar mann-
eskjur sem taka þarfir annarra alltaf fram yfir sínar eigin.
Ástkær dóttir mín barðist við óværuna vikum saman áður en
Covid-teymið útskrifaði hana sem hún væri búin að ná bata. Hún
var svo sem ekki lengur smitandi fyrir aðra, en eftirköstin eftir
þessa útskrift voru vægast sagt ömurleg. Þar á meðal voru sótt-
hitaköst, orkuleysi og andnauð við minnstu hreyfingu. Þarna
gátu allir sem til þekktu, og þar með ég, séð að hvergi fór á milli
mála að hér var engin venjuleg veiruflensa á ferð, þótt til séu þeir
sem vilja halda öðru fram. Sem betur fer eru það þó mun fleiri
sem viðurkennt hafa þá dauðans alvöru sem veiran ber með sér.
Sóttkví og einangrun
Ég er svo lánsöm að eiga báða foreldra á lífi. Pabbi er ríflega
níræður og mamma rúmlega áttræð. Það er fallegt samband á
milli þeirra þrátt fyrir að þau hafi slitið hjúskap fyrir rúmum
fjörutíu árum. Misjafnt er hvernig elli kerling sækir okkur heim.
Mamma er eins og unglamb sem býr ein í lítilli íbúð, á meðan
pabbi getur ekki lengur sinnt daglegum þörfum sínum sjálfur og
býr nú hjá mér í Reykjavík. Það dapra við það er að hann vildi
aldrei fara í burtu frá heimabæ okkar Ólafsfirði þar sem hann
hefur lifað nánast allt sitt líf. Enginn veit sína ævina eins og þar
stendur.
Ég þarf ekki einungis að vernda elsku pabba minn gegn veir-
unni hér heima, heldur og manninn minn og um langan tíma ung-
an dótturson sem flutti til okkar þegar móðir hans veiktist af
óværunni. Þess vegna hef ég þurft að sinna sérstaklega vel öllum
sóttvörnum bæði heima og að heiman. Það lætur nærri að um sex
mánuði ársins hafi ég verið í sjálfskipaðri sóttkví og nánast ein-
angrun á heimili okkar þar sem enginn hefur farið út nema brýn
nauðsyn krefði. Aðföng til heimilisins hafa verið keypt gegnum
netið.
Fátækt í kjölfar veiru
Sem alþingismaður hef ég aðlagast algjörlega nýju starfsum-
hverfi og nýrri tækni sem er það eina jákvæða sem hefur komið
með veirunni og ég kem auga á í augnablikinu. Fjarfundabúnaður
og annað sem tilheyrir netinu býður upp á frábærar lausnir sem
gerði okkur kleift að sinna störfum okkar heiman frá. Ekki veit
ég hreinlega hvernig heimurinn hefði komist af í gegnum þessar
þrengingar ef við hefðum ekki haft netið.
Daglegir fjarfundir fastanefnda þingsins hafa á þessu ári ein-
kennst af því að leitast við að slökkva þá elda sem tendruðust af
völdum veirunnar.
Aldrei í heila öld höfum við orðið fyrir öðru eins efnahagsáfalli
og nú.
Aldrei önnur eins skuldasöfnun, sem lætur nærri að verði um
600 milljarðar króna á þessu ári og hinu nýja sem gengur í garð á
miðnætti.
Aldrei annað eins atvinnuleysi og önnur eins vaxandi fátækt og
ójöfnuður.
Örbirgð sem einkennst hefur af vonleysi og vanlíðan yfir því að
vera fastur í það rammgerðri fátæktargildru að engin leið er að
brjótast úr henni. Lengdar raðir kvíðinna sorgmæddra foreldra
og einstaklinga við hjálparstofnanir sem gefa fátæku fólki mat
segja okkur allan sannleikann um það.
Ríkisstjórnin ber skömm
Ég viðurkenni að krefjandi og öflugt verk hafi verið unnið af
hálfu stjórnvalda í þeim aðstæðum sem hafa skapast. Þetta hefur
iðulega verið gert undir mikilli pressu og við í Flokki fólksins höf-
um sýnt fullan vilja til að greiða fyrir framgöngu og styðja mörg
verk ríkisstjórnarinnar. Við höfum þó gagnrýnt og reynt að vara
við þegar okkur hefur þótt stefna í óefni, svo sem fyrst þegar
veiran var að koma fram og stjórnvöld virtust fljóta sofandi að
feigðarósi. Einnig vorum við ósátt við opnun landamæranna í
sumar og alltof linar reglur varðandi umferð um þau allar götur
síðan. Þetta voru dýrkeypt mistök sem skrifast alfarið á stjórn-
arflokkana og við erum enn að súpa seyðið af. En nóg um það að
sinni.
Það sem ríkisstjórnin má þó skammast sín mest fyrir, er að
hafa ekki á slíkum hættutímum tekið betur utan um þau sem eiga
bágast í samfélaginu. Já, ég segi það aftur. Þau mega skammast
sín, því með aðgerðaleysi sínu í þágu þeirra sem standa höllustum
fæti, þá viðhalda þau og gera illt verra í aðstæðum þessa fólks.
Það magnast upp fátækt sem kemur harðast niður á saklausum
börnunum sem ekki geta með nokkru móti skilið ástæður þess að
þau eru sett hjá garði, skilin útundan og fá ekki að taka þátt með
öðrum börnum.
Ég hef þungar áhyggjur af stöðu atvinnulausra, ekki síst
barnafjölskyldna í þeim hópi, en líka einstæðra foreldra. Gamla
fólkið okkar þjáist og öryrkjarnir líka.
Það skal sagt hér og aldrei of oft tekið fram. Hratt versnandi
félagslegar aðstæður tugþúsunda Íslendinga er mannanna verk
og alfarið á ábyrgð valdhafanna. Flokkur fólksins hefur lagt fram
hverja tillöguna og frumvarpið á fætur öðru bæði á þessu löggjaf-
arþingi og hinum fyrri á kjörtímabilinu. Öll okkar mál snúast um
það að hjálpa öllum en ekki bara sumum. Við berjumst gegn
hvers konar mismunun og fátækt.
Orrustan sem má ekki tapast
Nú hafa um 82 milljónir manna sýkst af Covid-19 og tæplega
1,8 milljónir dáið af völdum sjukdómsins. Glíman við að halda far-
sóttinni í skefjum hefur án efa verið ein sú mesta raun sem þjóðin
hefur þurft að glíma við á lýðveldistímanum. Árið 2020 verður
fæstum harmdauði. Þess vegna, kæru lesendur, er ástæða til að
gleðjast yfir því sem við flest a.m.k. höfum beðið eftir. Við höfum
loks fengið vopn í hendur sem kveða óvættinn niður. Sigur er í
augsýn og við skulum ganga bjartsýn til framtíðar.
Bóluefni sem ver okkur gegn veirunni er farið að berast til
landsins. Fyrsti bólusetningardagurinn 29. desember 2020 er
dagur mikilla væntinga og vafalaust tímamótadagur fyrir okkur
öll í þessari hatrömmu styrjöld við ósýnilegan óvæginn andstæð-
ing sem við ætlum að gjörsigra á nýja árinu. Nú hvílir sú skylda á
ríkisstjórninni að útvega nægt bóluefni bæði fljótt og hnökra-
laust. Öryggi og framtíð okkar heilbrigðu og hraustu þjóðar velt-
ur á því að við náum vopnum okkar á nýju ári. Vei þeim ef þau
klúðra þessu. Þessi lokaorrusta er til úrslita og þar er tap enginn
valkostur.
Stöndum saman
Ég hvet okkur öll til dáða. Slökum ekki á sóttvörnunum strax,
það er alls ekki tímabært þótt daginn sé tekið að lengja og sólin
að hækka á lofti á ný. Snúum bökum þétt saman og verndum
hvert annað sem aldrei fyrr. Við verðum vitni að ömurlegum mis-
tökum æðstu stjórnenda sem ítrekað hafa sniðgengið reglurnar,
en látum þeirra mistök ekki verða okkar fordæmi. Til að sigra í
stríðinu þarf herinn að standa saman sem einn maður. Einn fyrir
alla og allir fyrir einn, það er kjörorðið okkar í dag.
Þegar við drögum svo sigurfánann að húni á nýju ári þá taka
við nýjar áskoranir. Við þurfum að reisa við efnahag heillar þjóð-
ar. Það munum við gera öll sem eitt.
Við búum í landi þar sem innviðir eru sterkir þrátt fyrir allt.
Mannauðurinn er okkar dýrmætasta eign. Þjóðin er vel mennt-
uð, hraust og úrræðagóð. Ég er ekki í nokkrum vafa um að okkur
muni á árinu 2021 takast að vinna til baka það sem hefur tapast í
efnahagslegu tilliti á árinu 2020.
Fólkið fyrst
„Fólkið fyrst og svo allt hitt,“ eru kjörorð Flokks fólksins.
Verkefni stjórnmálanna á nýju ári liggja augljóslega í endur-
reisninni. Okkur ber öllum skylda til þess að hjálpa þeim sem
hafa orðið fyrir skakkaföllum í þeim hremmingum sem sam-
félagið okkar allra varð fyrir á árinu sem er að líða.
Stjórnmálamönnum ber að hafa þetta í huga við endurreisn-
ina. Bitur reynsla eftir hrunið 2008, ætti að kenna okkur að sam-
félag okkar mun einungis tapa og bíða tjón sem seint eða aldrei
fæst bætt, ef við komumst frá þessari farsótt með þúsundir brot-
inna borgara sem fallið hafa í hyldýpi fátæktar.
Höfum bjartsýni, samkennd og samstöðu að leiðarljósi á nýju
ári og þá mun okkur farnast vel. Skiljum engan út undan og mun-
um að lítið bros getur dimmu í dagsljós breytt.
Ég óska landsmönnum öllum gæfu og friðar á nýju ári.
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Höfum bjartsýni, samkennd og samstöðu að
leiðarljósi á nýju ári og þá mun okkur farnast vel.
Skiljum engan út undan og munum að lítið bros
getur dimmu í dagsljós breytt.
Stöndum saman
og höfum fullan
sigur á nýju ári