Morgunblaðið - 31.12.2020, Side 43
STJÓRNMÁL 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2020
Einn færasti leiðtogi sögunnar, Júlíus Sesar, skildiað hann væri ófær um að miðstýra her sínum tilfulls í hringiðu bardagans. Til að þeir hlutar hers-ins sem yrðu viðskila við heildina yrðu ekki
stjórnlausir þá braut hann hefð sem herforingjar hans tíma
höfðu viðhaft. Í stað þess að boða aðeins þá hæst settu á
herráðsfundi til að ræða hernaðaráætlun komandi bardaga,
þá sendi hann einnig fundarboð á þá lægst settu, hundraðs-
höfðingjana. Vitandi hvernig bardaginn myndi líklega þróast
gátu hundraðshöfðingjarnir tekið upplýstar sjálfstæðar
ákvarðanir þegar samskiptalínurnar slitnuðu óhjákvæmilega
meðan á bardaganum stóð.
Margt sjálfboðastarf á internetinu virkar með þessum
hætti. Einstaklingar setja fram skýra framtíðarsýn um
frjálst stýrikerfi, frjálsa alfræðiorðabók og frjálsan gjald-
miðil, sem netverjar vilja sjá verða að veruleika og taka
áhugasamir til starfa án skipana. Venjulegt fólk og margar
af helstu hetjum mannkynssögunnar hafa borið kyndil rétt-
indaverndar og aukinnar þátttöku almennings og gert hann
bjartari. Grunnstefna Pírata er að bera þessi grunnréttindi
inn í 21. öldina og efla þau enn frekar.
Framtíð fyrir alla
Lykilatriði í stefnu Pírata er að við eigum öll rétt á að
koma að ákvörðunum sem okkur varða. Mikill meirihluti
landsmanna vill norrænt velferðarsamfélag sem verndar
samkeppni á markaði. Fyrir fyrstu kosningarnar sem Pírat-
ar komust á þing útskýrði leiðari í tímaritinu The Economist
að til þess að skapa slíkt samfélag þyrfti að uppræta spill-
ingu og sérhagsmunagæslu. Til að minnka sérhagsmuna-
gæslu þarf kjörna fulltrúa sem ekki eru háðir sérhags-
munum. Fulltrúa sem dreifa valdi og tryggja aðkomu fólks
að ákvarðanatöku.
Þjóðin er alveg nógu efnuð til að hafa gjaldfrjálsa heil-
brigðisþjónustu. Þess í stað hefur heilbrigðiskerfið verið
undirfjármagnað í áratugi og ríkið hefur ekki samið við
hjúkrunarfræðinga í áratug, ekki einu sinni í miðjum heims-
faraldri meðan þau hættu lífi sínu og heilsu í framlínunni
gegn veirunni. Þeir sem fá hins vegar alltaf sitt í gegn eru
óligarkarnir, auðuga yfirstéttin sem hefur hagnast óstjórn-
lega á kerfunum sem pólitíkin hefur skapað þeim.
Óligarkarnir sem fengu fiskinn okkar til að veðsetja og þó
lögin banni veðsetningu kvótans þá yfirveðsetja þeir bara
skipin í staðinn fyrir verðmæti kvótans. Óligarkarnir sem
fengu bankana okkar á útsölu og blésu þá upp í tífalt hag-
kerfi landsins svo við, á litla Íslandi, lentum í einu stærsta
bankahruni heimsins.
En þetta þarf ekki að vera svona. Með Pírata sem sjávar-
útvegsráðherra getur þjóðin úthlutað kvótanum eins og hún
telur best. Til dæmis væri hægt að endurúthluta 5 prósent-
um aflaheimilda á markaðsverði árlega, sem stæðist lög og
stjórnarskrá. Með Pírata sem fjármálaráðherra fær þjóðin
að ráða hvort það eigi að einkavæða bankana aftur. Í stuttu
máli: Með Pírata við stjórnvölinn hefði fólk aðkomu að lausn
málanna sem gamla pólitíkin hefur ekki getað ráðið úr sjálf.
Nýja stjórnarskráin er svo skilyrði fyrir þátttöku Pírata í
ríkisstjórn, og með nýju stjórnarskránni fær þjóðin sjálf
valdið til að stöðva sérhagsmunagæslu stjórnmálamanna til
frambúðar.
Tvær leiðir til framtíðar
En það er fleira sem gamla pólitíkin á í erfiðleikum með.
Sjálfvirknivæðingin er hafin og áætlað er að tölvur og vél-
menni muni taka yfir helming starfa á næstu tveimur ára-
tugum. Í því er fólgin gríðarleg verðmætasköpun og tæki-
færi til mikillar velmegunar fyrir okkur öll, ef almannavaldið
er notað í þágu okkar allra í stað sérhagsmuna. Helstu hætt-
urnar við þessa þróun eru tvær. Hin fyrri er að allt launa-
fólk mun vera í samkeppni við vélar um vinnuna og mun
þurfa að velja hvort það vill halda starfinu eða halda
óbreyttum launum, þangað til það á endanum lendir á at-
vinnuleysisbótum. Hin síðari er að verðmætasköpunin vegna
þessarar sjálfvirknivæðingar starfa muni nánast öll fara til
hinna efnameiri. Til þess að bregðast við þessari þróun er
ljóst að við þurfum að hugsa margt upp á nýtt; efnahags-
stefnuna, stuðningskerfin okkar og menntun. Skattastefnan
er svo eitt lykilatriðið í þessari endurskoðun og hefur verið
lagt til, t.a.m. af greinendum tímaritsins The Economist, að
skattaþróun 21. aldarinnar eigi að einkennast af lægri skött-
um á tekjur samhliða hærri sköttum á fjármagn.
Sjálfvirknivæðingin mun skapa tækifæri til að njóta meira
frelsis og velmegunar, styttri vinnudags og hærri launa í
störfum sem byggjast á félagsfærni og sköpunargáfum eins
og fram kemur í tímamótaskýrslu frá Oxford um „Framtíð
starfa“ (The Future of Employment: How susceptible are
jobs to computerisation?). Það gerist hins vegar ekki af
sjálfu sér, það þarf meðvitaða ákvarðanatöku svo að nýta
megi sjálfvirknivæðinguna til heilla fyrir alla.
Ríki heims standa nefnilega frammi fyrir tveimur val-
kostum á þessari stundu. Önnur leiðin sér til þess að við
fáum öll tækifæri til að njóta meira frelsis og velmegunar
sem sjálfvirknivæðingin gerir mögulega. Hin leiðin er að
gera lítið þar til tæknin umturnar vinnumarkaðnum og lífs-
viðurværi fólks. Því mun fylgja vaxandi misskipting þar sem
vald sérhagsmuna á stjórnmálunum verður algjört. Sífellt
fleiri okkar verða læst í samkeppni við vélar á lágum launum
á meðan fáir á toppnum eru frjálsir til að leika sér og eign-
ast heiminn, líka lýðræðið.
Á komandi kosningaári getum við kosið hvora leiðina við
förum. Á komandi kosningaári getum kosið okkur framtíð og
kosið flokka sem hugsa til framtíðar.
Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Framtíðin verður
frábær ef við kjósum svo
Nýja stjórnarskráin er svo skilyrði fyrir þátttöku
Pírata í ríkisstjórn, og með nýju stjórnarskránni
fær þjóðin sjálf valdið til að stöðva sérhags-
munagæslu stjórnmálamanna til frambúðar.