Morgunblaðið - 31.12.2020, Side 48
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2020
Norðurá I
Norðurá II
Munaðarnes
Allar upplýsingar gefur
Einar í síma 893 9111
eða einar@nordura.is
Spennandi og góð laxveiði í stórkostlegu
umhverfi. Glæsilegt veiðihús og frábært
atlæti. Jafnvel skemmtilegra en bestu
utanlandsferðir.
Í Norðurá II bjóðum við upp á fallegt og gott
veiðisvæði og er veitt á 3 stangir sem við
seljum saman. Fullbúið veiðihús fylgir með
í kaupunum,með 6 uppábúnum rúmum.
Þrif innifalin. Gott verð.
Veitt á 3 stangir. Borgar 2 stangir en veiðir
á 3 stangir. Selt saman. Frábært verð.
Veitt frámorgni til kvöldsmeð hádegishléi
kl. 13:00 til kl 16:00. Góð laxavon og fjöldi
fallegra veiðistaða.
Ég held að margir séu fastir í því að ostabakkar þurfi alltaf að vera eins en
það er svo fjarri lagi. Það má útbúa fagran ostabakka með lítilli fyrirhöfn á
stuttum tíma.
Þótt ég elski hefðbundna ostabakka með ostum, sultum og vínberjum
finnst mér gaman að prófa eitthvað nýtt og öðruvísi og slá út af venjunni.
Þessi tapas-ostabakki er afar einfaldur og þarf litla fyrirhöfn, hann er
engu að síður litríkur og fallegur og afar góður. Hér skiptir máli að blanda
saman góðum ávöxtum, hnetum, ostum, brauði og svo einhverju sætu. Ég var
með súkkulaðirúsínur og franskar vöfflur sem sætt en mér finnst algjör
skylda að hafa sætt með söltu. Stjarnan á bakkanum er klárlega vörurnar frá
Die Käsemacher.
Ostabakki
Pistasíuhnetur
saltar eða kryddaðar möndlur
súkkulaðirúsínur
sætmeti eins og franskar vöfflur, hægt að kaupa litlar eða eitthvað annað sætt
eins og litlar brúnkur
salamipylsa
hráskinka
snittubrauð, gott að grilla á grillpönnu sem dæmi
ostakexstangir (fást í Fjarðarkaup)
1 krukka fylltar smápaprikur frá Die Käsemacher (fæst í Fjarðarkaup)
1 krukka fylltar ólífur frá Die Käsemacher
1 krukka fyllt smágrasker frá Die Käsemacher
3-4 tegundir af ostum, sem dæmi brie, hvítlauksrjómaostur og tveir sterkari ost-
ar. Hér er uppskrift að heimagerðum hvítlauksrjómaosti ef þið viljið gera hann
sjálf en hann er sturlað góður.
tvær perur, fjórar plómur, blóðappelsína og döðlur, helst ferskar úr kæli
Aðferð
Skerið ávextina í þunnar sneiðar og skreytið líka með heilum óskornum
ávöxtum, það er svo fallegt.
Setjið ostana á bakka ásamt brauði og ostakexstöngunum.
Raðið svo hnetum, rúsínum og ávöxtum um allan bakkann.
Setjið ólífur, smágrasker og paprikur í skálar og setjið á bakkann.
Mér finnst oft gott að gera ostabakka aðeins áður en á að bera fram svo
ostarnir séu orðnir mjúkir og búnir að taka sig.
Punktar
Vörurnar frá Die Käsemacher fást í Fjarðarkaup, Hagkaup, stærri Krónu-
verslunum, Melabúðinni, Rangá og Kjöthöllinni Háaleitisbraut.
María Gomez
Ljósmynd/María Gomez
Sannkallaður veislubakki Hér blandar María saman alls kyns góðgæti sem
passar einstaklega vel saman.
Áramótaveisla
matarbloggaranna
Ostur á alltaf vel við á áramótum og gildir það bæði
um matarmikla og skemmtilega ostabakka og bak-
aðan ost. Hér erum við með þrjár ólíkar útgáfur frá
þremur af ástsælustu eldhúsdrottningum landsins.
Um 20 bitar
2 x Dalahringur
50 g hveiti
2 pískuð egg
60 g Panko-rasp
1 msk. söxuð steinselja
salt og pipar
um 300 ml olía
chilisulta
Aðferð:
Skerið ostinn í bita (um 10 bita hvern).
Setjið hveiti í eina skál, pískuð egg í aðra og Panko,
steinselju og salt og pipar í þá þriðju.
Veltið hverjum ostabita fyrst upp úr hveiti, dustið það
vel af og þekið næst vel með eggi og loks vel af raspi.
Raðið á bökunarpappír á bakka og setjið í frysti í eina
klukkustund áður en þið steikið (svo hann leki ekki út um
allt við steikinguna).
Hitið olíu í djúpri pönnu og hafið það mikið af olíu að
hún nái upp hálfan ostbita, steikið þá síðan í vel heitri ol-
íunni í 1-2 mínútur á hvorri hlið eða þar til þeir eru gull-
inbrúnir.
Leggið á eldhúspappír svo olían leki vel af, raðið svo í
skál og njótið með chilisultu.
Berglind Hreiðars
Ljósmynd/Berglind Hreiðars
Girnilegt Það er fátt sem toppar djúpsteiktan ost og þessi
uppskrift á eftir að slá í gegn á mörgum heimilum í kvöld.
Brie
1½ dl frosin brómber
1½ msk hlynsíróp
½ dl pekanhnetur
fersk brómber
snittubrauð
Aðferð:
Stilltu ofninn á 200°C og undir&yfir.
Settu ostinn í lítið eldfast mót og inn í ofn í 20 mín. eða
þar til osturinn er orðinn vel bólginn og mjúkur.
Á meðan osturinn er inni í ofni, settu þá frosin bróm-
ber í pott á lágan hita ásamt hlynsírópi, hrærðu varlega í
þar til berin eru bráðnuð og svolítill safi hefur myndast af
þeim. Takið ostinn út úr ofninum, hellið brómberjunum
yfir ásamt safanum.
Skerið pekanhenturnar niður og dreifið yfir ostinn.
Berið fram með snittubrauði og ferskum brómberjum.
Linda Ben.
Ljósmynd/Linda Ben
Á alltaf vel við Ofnbakaður ostur er einn af þessum rétt-
um sem tekur enga stund að búa til og klikkar aldrei.