Morgunblaðið - 31.12.2020, Side 52
52 MESSUR UM ÁRAMÓT Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2020
Harpa Heimisdóttir
s. 842 0204
Brynja Gunnarsdóttir
s. 821 2045
Kirkjulundur 19 | 210 Garðabær
s. 842 0204 | www.harpautfor.is
ÁRBÆJARKIRKJA | Gamlársdagur.
Aftansöngur kl. 17, sent út á heima-
síðu Árbæjarkirkju www. arbaej-
arkirkja.is. Sr. Þór Hauksson þjónar
fyrir altari og prédikar. Krisztina
Kalló Szklenár organisti, félagar úr
kirkjukór Árbæjarkirkju syngja.
Marthial Nardeau leikur á þverflautu.
Einsöngur Margrét Einarsdóttir.
ÁSTJARNARKIRKJA | Gamlárs-
kvöld kl. 17. Prestar eru Arnór Bjarki
Blomsterberg og sr. Kjartan Jóns-
son. Kirkjukór Kálfatjarnarkirkju
syngur undir stjórn Davíðs Sig-
urgeirssonar sem leikur á gítar.
Þórður Sigurðsson leikur á orgel.
Barnakór Ástjarnarkirkju syngur und-
ir stjórn Helgu Loftsdóttur og Jó-
hanna Guðrún Jónsdóttir syngur ein-
söng.
Aftansöngnum verður streymt frá
www.astjarnarkirkja.is og Facebook-
síðu Ástjarnarkirkju.
BÚSTAÐAKIRKJA | Aftansöngur
sendur út frá Bústaðakirkju kl. 18 á
gamlársdag. Prestur er Pálmi Matt-
híasson. Kantor Jónas Þórir. Kór Bú-
staðakirkju syngur. Einsöngvari:
Anna Sigríður Helgadóttir. Gunnar
Kristinn Óskarsson leikur á trompet.
Á nýársdag er útsending frá hátíð-
arguðsþjónustu í Grensáskirkju kl.
14. Stundirnar er að finna á Facebo-
ok-síðu og Youtube-rás Fossvogs-
prestakalls ásamt heimasíðunum
kirkja.is og grensaskirkja.is.
FELLA- og Hólakirkja | Nýárs-
dagur. Helgistund streymt kl. 11 í
umsjá presta og félaga úr kór kirkj-
unnar.
GRAFARVOGSKIRKJA | Nýárs-
dagur. Hátíðarguðsþjónusta verður í
streymi kl. 14 á Facebook-síðu kirkj-
unnar. Eins verður hægt að horfa á
guðsþjónustuna á heimasíðu kirkj-
unnar, grafarvogskirkja.is.
Prestar safnaðarins þjóna. Sr. Guð-
rún Karls Helgudóttir prédikar. Kór
Vox Populi mun syngja. Björg Þór-
hallsdóttir syngur einsöng. Organisti
er Hilmar Örn Agnarsson. Björg
Brjánsdóttir leikur á flautu og Kristín
Lárusdóttir á selló.
GRENSÁSKIRKJA | Gamlársdagur:
Útsending frá aftansöng í Bústaða-
kirkju kl. 18. Nýársdagur: Útsending
frá hátíðarguðsþjónustu í Grens-
áskirkju kl. 14. Prestar eru Eva
Björk Valdimarsdóttir og María Guð-
rúnar. Ágústsdóttir. Kantor Ásta Har-
aldsdóttir. Félagar úr Kirkjukór
Grensáskirkju syngja. Helgihaldið er
að finna á Facebook-síðum Grensás-
kirkju og Bústaðakirkju ásamt you-
tube-rásinni Fossvogsprestakall. Sjá
einnig grensaskirkja.is og kirkja.is.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti |
Á gamlársdag verður send út guðs-
þjónusta kl. 18. Sr. Leifur Ragnar
Jónsson þjónar fyrir altari og sr. Karl
V. Matthíasson prédikar. Hrönn
Helgadóttir organisti leikur undir á
orgel kirkjunnar og á fiðlu leikur Sig-
rún Harðardóttir. Davíð Ólafsson
bassi, Hlöðver Sigurðsson tenór,
Heiðdís Hanna Sigurðardóttir sópran
og Hildigunnur Einarsdóttir mezzó-
sópran syngja.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Aftan-
söngur gamlársdag verður aðgengi-
legur á heimasíðu og Facebook-síðu
Hafnarfjarðarkirkju frá kl. 14 á gaml-
ársdag. Hátíðarsöngur sr. Bjarna
Þorsteinssonar, sálmar, orgelleikur,
lestrar og bænagjörð. Prestur Jón
Helgi Þórarinsson. Félagar í Barböru-
kórnum syngja. Organisti Guð-
mundur Sigurðsson.
HALLGRÍMSKIRKJA | Útvarps-
guðsþjónusta á gamlársdag: Aftan-
söngur kl. 18. Sr. Irma Sjöfn Ósk-
arsdóttir prédikar og þjónar ásamt
sr. Sigurði Árna Þórðarsyni. Félagar
úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja
undir stjórn Harðar Áskelssonar.
Organisti er Björn Steinar Sólbergs-
son.
KÁLFATJARNARKIRKJA |
Aftansöngur gamlárskvöld kl. 17.
Prestar eru Arnór Bjarki Blomster-
berg og Kjartan Jónsson. Kirkjukór
Kálfatjarnarkirkju syngur undir stjórn
Davíðs Sigurgeirssonar sem leikur á
gítar. Þórður Sigurðsson leikur á org-
el. Barnakór Ástjarnarkirkju syngur
undir stjórn Helgu Loftsdóttur og Jó-
hanna Guðrún Jónsdóttir syngur ein-
söng. Aftansöngnum verður streymt
frá www.kalfatjarnarkirkja.is og Face-
book-síðu Ástjarnarkirkju.
SELJAKIRKJA | Aftansöngur á
gamlársdag kl. 17 í beinu streymi á
seljakirkja.is. Hátíðartón sr. Bjarna
Þorsteinssonar sungið. Sr. Ólafur Jó-
hann Borgþórsson prédikar og þjón-
ar fyrir altari. Félagar úr Kór Selja-
kirkju syngja við undirleik Tómasar
Guðna Eggertssonar organista. Nýár-
skveðja kl. 11 á nýársdag á selja-
kirkja.is. Kór Seljakirkju syngur ný-
árssálma við undirleik Tómasar
Guðna og sr. Ólafur Jóhann fer með
ritningarlestur og bæn.
SELTJARNARNESKIRKJA | Helgi-
stund í streymi á Facebook-síðu Sel-
tjarnarneskirkju á gamlársdag kl.
18. Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar.
Friðrik Vignir Stefánsson er org-
anisti. Þórleifur Jónsson og Elísabet
F. Eiríksdóttir lesa ritningarlestra og
bænir. Streymi á nýársdag á Facebo-
ok-síðu Seltjarnarneskirkju kl. 14.
Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar. Ólaf-
ur Sigurðsson, fv. varafréttastjóri,
flytur ræðu. Ólafur Egilsson, Anna
Einarsdóttir og Kristrún Heimisdóttir
lesa bænir og ritningarlestra. Þor-
steinn Freyr Sigurðsson syngur ein-
söng. Tæknimaður í báðum athöfn-
um er Sveinn Bjarki Tómasson.
Orð dagsins:
Drottinn er minn
hirðir, mig mun
ekkert bresta.
(Sálm. 23:1)
Morgunblaðið/Ómar
Hallgrímskirkja.
✝ Jóhannes Jóns-son fæddist í
Reykjavík 19. febr-
úar 1945. Hann
lést á líknardeild
Landspítalans 25.
nóvember 2020.
Foreldrar hans
voru Margrét Jó-
hannesdóttir og
Jón Elías Helga-
son. Systkini Jó-
hannesar voru:
Sigurrós Helga, Gunnlaugur og
Magnús.
Eiginkona Jóhannesar var
Ingigerður Sigurðardóttir
kennari. Sonur
þeirra er Guð-
mundur Ingi og
sambýliskona hans
María Aðal-
steinsdóttir.
Jóhannes starf-
aði sem flugvirki
og flugvélstjóri hjá
Loftleiðum/
Flugleiðum allan
sinn starfsaldur.
Jóhannes var
meðlimur í frímúrarastúkunni
Mími.
Útför hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hins látna.
Nú er hann Jói bróðir allur
eftir langa baráttu við vágest í
22 ár.
Á þeim tíma átti hann marga
áfangasigra og líka töp en á
milli góð og gefandi tímabil þar
sem hann gat sinnt vinnu og
áhugamálum, en áhugamál Jóa
utan fjölskyldunnar voru stang-
veiði og sumarbústaðurinn.
Í byrjun ársins fór að halla
undan fæti og Jói varð fyrir
hverju áfallinu á eftir öðru sem
að lokum lögðu hann að velli.
Hann tók þessu með æðruleysi
og gafst ekki upp fyrr en í fulla
hnefana.
Jói naut umhyggju á líkn-
ardeildinni og ber að þakka alla
þá frábæru þjónustu sem hann
naut þar.
Líknardeildin er einstök og á
sér ekki aðra líka.
Við systkinin vorum fjögur,
Didda elst, Gulli annar í röðinni,
svo kom Jói og svo ég, hreið-
urböggullinn. Foreldrar okkar
og nær allir áar okkar voru
Vestfirðingar, mamma Álftfirð-
ingur og pabbi úr Jökulfjörðum
og Eyrarhreppi.
Við strákarnir vorum sendir
á sumrin vestur í sveit til
frændfólks okkar og vorum við
Gulli á sama bæ, Hamri í Naut-
eyrarhreppi, og áttum þar góð-
an tíma, Gulli var þar oft og átti
þar „unaðsstað“, en Jói bróðir
fór í sveit á Kjaransstöðum í
Dýrafirði og hafði eftir það gott
samband við Ella og aðra ábú-
endur.
Á milli okkar Jóa voru nær 5
ár svo ég var polli þegar hann
hleypti heimdraganum 17 ára
gamall og fór að læra flugvirkj-
un í Noregi hjá Bråtens Safe í
Stavangri.
Jóa fannst ekki gott að vera
þar, sagði að Norðmennirnir
segðu „god middag“ og færu
svo heim að éta brauð.
Hann yfirgaf Noreg og fór til
Tulsa í Oklahoma þar sem fjöldi
landa okkar hafði verið á undan
honum og lauk flugvirkjanám-
inu þar.
Að loknu námi fór Jói að
vinna fyrir Loftleiðir, fyrst í
New York og síðan hér heima
og ferðaðist þá út um allan heim
starfsins vegna. Jói var alltaf
„Loftleiðamaður“ og starfaði
hjá Loftleiðum alla sína starfs-
ævi en Loftleiðir hafa jú skipt
um nafn nokkrum sinnum á
leiðinni.
Samskipti okkar bræðra voru
afar stopul meðan hann var að
mestu í Bandaríkjunum og við
Sigrún í Noregi og þegar við
vorum báðir búsettir hér heima,
orðnir fulltíða með eigin fjöl-
skyldur og allt það basl sem
fylgir uppbyggingu fjölskyldu,
var ekki mjög mikið samneyti
okkar á milli, en þegar um fór
að hægjast hjá okkur fórum við
að hittast og spjalla saman
reglulega.
Sigrún hló oft að okkur
bræðrum þegar við spjölluðum
saman og fannst henni stundum
vera skrítnar þagnir í samtöl-
unum, en við þurftum ekki að
tala í síbylju, okkur fannst nær-
veran oftast nægjanleg.
Jói var mjög hæglátur og yf-
irvegaður, greiðvikinn og
traustur, ekki talaði hann af sér
en vildi hann segja eitthvað fór
það ekki á milli mála né framhjá
nokkrum.
Flestir hlutir léku í höndun-
um hans og átti það líka við
matargerð því hann var af-
bragðskokkur.
Jói bróðir var frímúrari og
sýndu þeir honum á lokametr-
unum mikinn sóma sem ég vil
þakka.
Bróðir sæll, nú stendur bara
eftir að kveðja, ég veit að þér
líður betur núna, laus við sárs-
aukann og kominn á hinar eilífu
veiðilendur þar sem laxinn tek-
ur þurrfluguna á loft, bið að
heilsa Gulla.
Bless.
Magnús (Maggi) bróðir.
Vinur minn og starfsfélagi til
fjölda ára, Jóhannes Jónsson
flugvirki, hefur nú kvatt okkur.
Ég kynntist Jóa fyrst þegar
hann ásamt nokkrum félögum
sínum komu frá Spartan og
byrjuðu að vinna með okkur
flugvirkjum Loftleiða á Kefla-
víkurflugvelli 1965.
Það sást fljótt að Jói var dug-
legur og úrræðagóður flugvirki
og var hann mikils metinn hjá
yfirmönnum viðhaldsdeildar
Loftleiða síðar Icelandair og var
honum falið að gegna ýmsum
trúnaðarstörfum fyrir félagið.
Við Jórunn og Jói og Inga
festum okkur sumarhúsalönd
hlið við hlið í Kjósinni og byrj-
uðum að byggja 1975. Við
bjuggum í tjöldum á árbakk-
anum meðan við vorum að reisa
húsin, allt unnið með höndum í
þá daga, grafið, steypt og sag-
að.
Margar góðar stundir höfum
við átt þar og Jói naut þess að
vera á veröndinni við grillið og
horfa út dalinn og hlusta á foss-
inn, með bauk í hendi. Við vor-
um saman í veiðiholli með
nokkrum Loftleiðamönnum, í
Langá um árabil, og það var
gott að vera á stöng með Jóa,
því hann var naskur veiðimaður
og þurfti ekki einu sinni veiði-
gleraugu til að sjá laxinn.
Minningarnar hlaðast upp og
ég á oft eftir að horfa yfir á ver-
öndina hjá Jóa með bauk í
hendi og segja skál gamli vinur
og félagi.
Elsku Inga, Gummi og
María, innilegustu samúðar-
kveðjur.
Geir og Jórunn.
Jóhannes
Jónsson