Morgunblaðið - 31.12.2020, Síða 53

Morgunblaðið - 31.12.2020, Síða 53
MINNINGAR 53 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2020 Elsku amma mín, daginn sem þú kvaddir okkur var ég staddur fyrir utan leiklistar- skólann minn í Bretlandi. Ég fann fyrir ótakmarkaðri sorg sem breyttist í söknuð sem ég finn ennþá fyrir á hverjum degi. Ég skrifaði ljóð til þín þetta kvöld sem hjálpaði mér að líta til baka yfir allar góðu stundirnar sem tíminn færði okkur. Þetta ljóð er fyrir þig elsku amma mín, takk fyrir allt. Fyrir ömmu Amma er farin að hitta afa þau eiga langþráð stefnumót saman. Afi er búinn að vera að æfa sig í íslensku. Tíminn líður svo hratt. Hver einasta stund einstök. Hver einasta stund einstök með þér elsku amma mín. Þú hafðir alltaf trú á mér sama hvað. Þú varst alltaf jákvæð sama hvað. Ég er svo þakklátur fyrir allar skötuveislurnar á Þorláksmessu. Ég er svo þakklátur fyrir Cartoon Network með þér og Vigdísi alla daga. Ég er svo þakklátur fyrir Fjarðarkaupsferðirnar. Fiskibollurnar. Ömmukaramellurnar. Kjötbollur í brúnni sósu með kartöflum. Ég man að ég gat borðað endalaust af þeim. Stekkjarkinn Lækjarberg Hrafnista. Ólíkar minningar en allar jafn fullkomnar. Ég mun aldrei gleyma þér elsku amma mín. Ég elska þig. Tómas Geir Howser Harðarson. Ég vildi að ég gæti upplifað alla mína ævi aftur til þess að geta verið í kringum elsku ömmu mína aftur. Hún var ekki venjuleg amma, hún var besta vinkona Lilja Hjartardóttir Howser ✝ Lilja Hjartar-dóttir Howser fæddist 27. desem- ber 1930. Lilja lést 13. mars 2020. Lilja var jarð- sungin frá Hafnar- fjarðarkirkju 1. apríl 2020. mín. Ég og hún átt- um einstakt sam- band alla mína tíð. Hún kenndi mér svo margt um lífið, galdra, samkennd, gleði, fjölskyldu og ástina. Betri mann- eskju var ekki hægt að finna. Ég er svo þakklát að hafa haft hana í lífi mínu svona lengi. Hún elskaði tónlist, leiklist, hún átti alltaf miða í Háskólabíó til þess að hlusta á sinfóníur. Ég fékk að vídeóspjalla við hana daginn áður en hún fór af þessari jörðu og fékk að heyra hana segja „elsku litla Vigdísin mín“ í síðasta sinn. Ég þakka fyrir það. Elsku amma mín. Ég sakna þín, ég sakna þess að knúsa þig og finna lyktina þína. Ég sakna þess að hlusta á sögur frá Patreksfirði. Ég sakna Fjarðarkaupsferðanna og matarboðanna. Ég sakna þess að hlæja og spjalla. Ég vildi ég hefði þig að- eins lengur. En þannig er það ekki. Nú ertu komin til afa og ég á núna tvo verndarengla sem passa mig. Eins og þú gerðir allt mitt líf. Hvíldu í friði amma mín. Vigdís Ósk Howser Harðardóttir. Hún hneigir sig, tjaldið fellur í síðasta sinn. Yndisleg kona hefur kvatt okkur en minningin um elsku ömmu sem vildi öllum svo vel lifir. Hlýja, umhyggja, traust og að sjá alltaf það góða í öllum voru kostir sem amma bjó yfir. Hún var einhvern veginn amma allra og vildi allt fyrir mann gera. Mætti á allar ballettsýning- ar og leyndi ömmustoltið sér aldr- ei. Ömmuhús var alltaf mitt annað heimili og oft mitt aðalheimili. Að hafa fengið að alast upp svona ná- ið með ömmu mótaði mig að miklu leyti að þeirri manneskju sem ég er í dag og myndi ég segja að allir þeir eiginleikar sem ég tók frá henni séu mínir bestu eiginleikar. Hún snerti hjörtu allra þeirra sem voru það heppnir að fá að kynnast henni með hlýju sinni og um- hyggju. Elsku amma mín. Að kveðja þig er eitt það erfiðasta sem ég hef þurft að gera en er þakklát fyrir að hafa fengið að faðma þig og kyssa á kinn í síðasta skiptið. Að geta ekki komið og fengið þitt hlýja faðmlag hefur verið mjög erfitt. Er svo þakklát fyrir tímann sem Róbert Ingi fékk með þér og að hann hafi fengið að kynnast þér. Að koma í langömmuhús var svo spennandi, fá kremkex og leika sér með allt dótið sem langamma átti. Það munaði svo litlu að Hafdís Delia fengi þitt hlýja faðmlag og mun ég aldrei gleyma hvað þú sagðir við mig í síðasta skipti sem við hittumst: „Ég bið að heilsa henni.“ Ég mun sjá til þess að kveðjan skili sér um ókomna framtíð. Þín Lilja Guðrún. Það var alltaf svo skemmtilegt og skrítið að koma til Lilju frænku í Stekkjarkinn. Hún Lilja var nefnilega gift honum Gogga frænda, og áður en hann varð Goggi frændi átti hann heima í Ameríku, og hin framandi heimur Ameríku bjó hjá Lilju og Gogga í Stekkjarkinninni í Hafnarfirðin- um. Lilja talaði amerísku, og gaf okkur rauðar og safaríkar vatns- melónur, og sagði við okkur alvar- leg í bragði: „Ekki kyngja stein- unum, þeir eru stórhættulegir“ og við borðuðum með bestu lyst með lífið í lúkunum þennan ljúffenga ávöxt sem Lilja bar á borð úr búð- inni uppi á Velli. Lilja var alltaf jákvæðnin sjálf uppmáluð, alveg sama hvað kom upp á teninginn, hún gat alltaf séð björtu hliðarnar. Svo talaði hún um hluti sem aðrir sjaldan ræddu, konungsborið fólk fyrri alda í Evrópu var t.d. alveg eðlilegt um- ræðuefni þegar Lilja átti í hlut. Hún var óþrjótandi viskubrunnur þegar kom að bókum og tónlist sem hún benti okkur á að væri þess virði að lesa eða hlusta á. Svo var hún Lilja líka „norn“ og þau voru ófá skiptin sem hún bauð okkur upp á ýmsa spádóma um ókomna framtíð, og var það alltaf á léttu nótunum og borið fram af væntumþykju. Lilja var með eindæmum góð- ur kokkur og safnaði matarupp- skriftum héðan og þaðan úr heim- inum og prófaði þær flestar. Í dag eigum við systurnar allar ljósrit af mataruppskriftum, og greinum um ýmis málefni sem Lilju þótti mikilvægt að við hefð- um í fórum okkar, svo ekki sé tal- að um fróðleiksmola um ættmenni fyrri alda og allt sem þeim viðkom og hún vissi um. Lilju frænku er og verður sárt saknað. Draumanna höfgi dvín, dagur í austri skín, vekur mig, lífi vefur mjúka mildings höndin þín. Dagleiðin erfið er, óvíst hvert stefna ber, leið mig langa vegu mjúka mildings höndin þín. Sest ég við sólarlag, sátt er við liðinn dag, svæfir mig svefni værum mjúka mildings höndin þín. (Eygló Eyjólfsdóttir) Vertu ávallt Guði falin elsku Lilja frænka. Sigríður (Sigga), Þorbjörg (Böggý), Elína Hrund (Ellý) og Karítas (Kata). Ég var svo lánsöm að kynnast Lilju í byrjun árs 2000 þegar ég hóf störf hjá Hollustuvernd ríkisins en Lilja starfaði þar. Lilja var alveg einstaklega góð í að taka á móti við- skiptavinum og svara í símann og tókst henni að láta flesta vera glaða og voru þetta allt miklir kunningjar og vinir í hennar augum. Lilja var hlý og gaf mikið af sér og gleymdi þar af leiðandi oft sjálfri sér. Lilja var góður hlustandi og hún var mjög hæversk og tranaði sér aldrei fram. Í gegnum árin lærði maður að hún kvartaði aldrei, ekki einu sinni þegar hún fékk krabbameinið skömmu eftir að hún hætti að vinna. Það var einungis verkefni í hennar augum að losa sig við krabbann, sem henni tókst. Samband okkar Lilju varð að sterku vináttusambandi þegar hún fór á eftirlaun. Það var alltaf gaman að fara í kaffi til Lilju þar sem yfir- leitt dró hún upp tarotspilin og rún- irnar og ég fékk spá fyrir daginn eða mánuðinn eða jafnvel árið. En Lilja var mjög áhugasöm um and- leg málefni og sá oft meira en við hin. Og þegar kom að jólum þá var ég svo heppin að fá að smakka þekkta eggjapúnsið hennar ásamt macin- tosh-sælgæti. Þetta varð hluti af jólaundirbúningi mínum að koma við hjá Lilju og fá smá „amerísk jól“ en Georg maður Lilju var banda- rískur og var þetta siður sem kom inn í hjónaband þeirra. Lilja hafði ekki bara áhuga á tarotspilunum. Hún var líka alveg einstök áhugamanneskja um kónga- og keisarafólk Evrópu. Í hennar huga voru þetta allt vinir hennar og kunningjar hvort sem viðkomandi var lifandi eða ekki. Hún þekkti alla rússnesku keis- arafjölskylduna sem og þá dönsku. Því varð það einn af hápunktum lífs Lilju þegar hún fór með Stínu dóttur sinni til St. Pétursborgar árið 2007. Í þeirri ferð sá hún vetr- arhöllina og sumarhöllina og sigldi á ánni og fékk mynd af sér við mál- verkið af uppáhaldinu hennar, Nikulási keisara. Á heimleiðinni var svo stoppað í Danmörku til að skoða aðeins dönsku konungsfjöl- skylduna. Lilja flutti í þjónustuíbúð á Hrafnistu fyrir ekki svo mörgum árum og leið henni vel þar. Í gegn- um rúm 20 ár naut ég þess að koma við og fá kaffisopa og yfir- leitt meðlæti með. Lilja átti alltaf eitthvað í skápunum og svo var hún mikil kaffimanneskja eins og ég og hafði gaman af því að bera kaffi fram í fallegum mánaðarboll- um. Elsku Lilja, ég vil þakka þér al- veg einstaka vináttu í gegnum ár- in. Ég veit að þú ert glöð núna þar sem þú ert með Georg þínum sem þú hefur saknað í mörg ár. Ég sendi innilegar samúðar- kveðjur til Lauru, Hjartar og Stínu (Delíu) og fjölskyldna þeirra. Þórey Ingveldur Guðmundsdóttir. Sími 5 @utfarir.is · www.utfarir.is· 67 9110 · utfarir Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Þorbergur Þórðarsson Elís Rúnarsson Stofnað 1990 Traust fjölskyldufyrirtæki í áratugi Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, ÞORSTEINN HELGI JÓHANNESSON vélvirki, Ferjuvaði 11, Reykjavík, áður búsettur í Borgarnesi, lést á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð sunnudaginn 27. desember. Útför hans fer fram frá Seljakirkju laugardaginn 2. janúar klukkan 11. Vegna aðstæðna verða eingöngu nánustu aðstandendur viðstaddir. Útförinni verður streymt frá seljakirkja.is. Svanlaug Vilhjálmsdóttir Vilhjálmur Þorsteinsson Olga Hafsteinsdóttir Jenný Vigdís Þorsteinsdóttir Gísli Fannar Gylfason og barnabörn Faðir minn og tengdafaðir, GUÐMUNDUR VIGFÚSSON verkamaður, Sólbakka, Þórustíg 14, Ytri-Njarðvík, lést miðvikudaginn 1. janúar 2020 á HSS. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Bjarni Sigurður Guðmundsson Steinunn Jakobsdóttir og barnabörn hins látna Ástkæra móðir okkar, tengdmóðir, amma og langamma, ERLA ÞÓRISDÓTTIR dagmóðir, lést á heimili sínu þriðjudaginn 22. desember. Útförin verður auglýst síðar. Kristín Þorsteinsdóttir Halla Þorsteinsdóttir Þórir Þorsteinsson Ingibjörg N. Smáradóttir Guðmundur Þorsteinsson Gunnar Þorsteinsson barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, KRISTINN HAUKUR JÓHANNSSON frá Ketilsstöðum, lést á dvalarheimilinu Lundi mánudaginn 28. desember. Útförin fer fram frá Selfosskirkju miðvikudaginn 6. janúar klukkan 13. Í ljósi aðstæðna verða aðeins nánustu aðstandendur viðstaddir en athöfninni verður streymt á vefsíðu Selfosskirkju. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á dvalarheimilið Lund á Hellu. Fyrir hönd aðstandenda, Rúnar Hauksson Bryndís Hanna Magnúsdóttir Jóhanna V. Hauksdóttir Páll M. Stefánsson Örn Hauksson Gréta Steindórsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.