Morgunblaðið - 31.12.2020, Qupperneq 62
maður ekki neitt. Þá var alveg óljóst
hvort deildakeppnin í Þýskalandi
myndi halda áfram og hvort Meist-
aradeildin yrði spiluð. Manni fannst
minni líkur vera á því að Meistara-
deildin færi aftur af stað með til-
heyrandi ferðalögum. Sem betur fer
fengum við að spila.“
Þegar upp er staðið er velgengnin
mikil hjá Söru á árinu eins og fram
hefur komið. Hvort sem það er með
félagsliði í Þýskalandi, í Frakkklandi
eða íslenska landsliðinu og Sara lék
flesta leikina. En það er nokkuð
merkilegt að oftar en einu sinni var
hún tæp vegna meiðsla. Var það
nógu alvarlegt til þess að hún hafði
áhyggjur af gangi mála en það slapp
fyrir horn og nú í lok árs er hún
verkjalaus.
Ekki glampandi sól alla daga
„Hlé sem gert var vegna veir-
unnar síðasta vetur gerði mér kleift
að ná mér af meiðslum í hné og há-
sinum. Fyrir vikið gat ég klárað
deildakeppnina með Wolfsburg en
þegar farið var af stað aftur var
álagið mjög mikið. Liðið spilaði oft
þrjá leiki í viku. Eftir þá törn var ég
slæm í hásinunum og það var
óheppilegur tímapunktur því ég var
að skipta um félag. Ég sleppti síð-
asta leiknum í deildinni hjá Wolfs-
burg út af þessu og hafði smá
áhyggjur enda vildi ég vera heil
heilsu hjá nýju liði. Ég fékk pásu í
níu daga og þá fékk ég góða hvíld. Í
framhaldinu gat ég æft á fullu og
spilað, sem var í raun ótrúlegt. En
ég var ennþá mjög tæp í hásinunum
í Meistaradeildinni og í franska bik-
arúrslitaleiknum. Ég fékk litla hvíld
og þegar kom að landsleikjunum
gegn Lettlandi og Svíþjóð var ég
sárþjáð ef ég á að vera hreinskilin.
Ég hafði gengið á líkamann eins og
ég hef kannski gert áður. Það er
greinilegt að maður lærir aldrei.
Maður hefði haldið að maður yrði
skynsamari með aldrinum en ég er
bara svo þrjósk,“ sagði Sara Björk
en henni er ekki alls varnað í þessum
efnum því hún tók skynsamlega
ákvörðun í framhaldinu.
„Eftir landsleikina ákvað ég að
taka þriggja vikna pásu og missti af
tveimur eða þremur leikjum með
Lyon. Ég þurfti á þessari hvíld að
halda og hef ekki fundið fyrir verkj-
um síðan. Á árinu eru margir sætir
sigrar en ég man líka eftir erfiðum
dögum þar sem ég var að drepast í
líkamanum þegar ég fór fram úr á
morgnana. Stundum þurfti ég að
berjast áfram í gegnum þetta en ég
er þakklát fyrir að hafa fengið að
taka þátt í þessum keppnum á ári
þar sem fullt af íþróttafólki gat ekki
keppt vegna kórónuveirunnar. Þeg-
ar upp er staðið þá gekk þetta allt
saman upp.“
Metnaðinum er ekki svalað
Sara hefur nánast unnið allt það
helsta sem hægt er að vinna með fé-
lagsliði. Það eina sem hægt væri að
tína til væri að reyna sig í banda-
rísku deildinni en sú deild er vart
Þráði svo rosalega heitt
að verða Evrópumeistari
Þakklæti og gleði hjá Söru Björk Gunnarsdóttur íþróttamanni ársins
eftir viðburðaríkt ár Margir sætir sigrar en líka mjög erfiðir dagar
AFP
Evrópumeistari Sara Björk Gunnarsdóttir í úrslitaleik Meistaradeildar
Evrópu í San Sebastián í ágústmánuði þar sem hún skoraði þriðja mark
Lyon í 3:1 sigrinum á fyrrverandi samherjum hennar í Wolfsburg.
62 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2020
England
Tottenham – Fulham ........................ frestað
Newcastle – Liverpool ............................. 0:0
Staðan:
Liverpool 16 9 6 1 37:20 33
Manch. Utd 15 9 3 3 31:23 30
Leicester 16 9 2 5 29:20 29
Everton 15 9 2 4 26:19 29
Aston Villa 14 8 2 4 28:14 26
Chelsea 16 7 5 4 31:18 26
Tottenham 15 7 5 3 26:15 26
Manch. City 14 7 5 2 21:12 26
Southampton 16 7 5 4 25:19 26
West Ham 16 6 5 5 23:21 23
Leeds 16 7 2 7 30:30 23
Wolves 16 6 3 7 15:21 21
Arsenal 16 6 2 8 16:19 20
Newcastle 15 5 4 6 17:24 19
Crystal Palace 16 5 4 7 20:29 19
Burnley 15 4 4 7 9:20 16
Brighton 16 2 7 7 18:25 13
Fulham 15 2 5 8 13:23 11
WBA 16 1 5 10 11:35 8
Sheffield Utd 16 0 2 14 8:27 2
B-deild:
Brentford – Bournemouth....................... 2:1
Swansea – Reading .................................. 0:0
Staða efstu liða:
Norwich 22 13 5 4 30:20 44
Brentford 22 11 8 3 36:21 41
Swansea 22 11 7 4 25:12 40
Bournemouth 21 10 8 3 36:18 38
Watford 21 10 7 4 24:15 37
Reading 22 11 4 7 32:27 37
Stoke 22 9 8 5 26:21 35
Barnsley 22 10 4 8 27:28 34
Middlesbrough 21 9 6 6 25:17 33
Bristol City 22 10 3 9 23:24 33
Preston 22 10 2 10 30:30 32
Huddersfield 22 9 4 9 27:30 31
Luton 22 8 6 8 20:24 30
Blackburn 22 8 5 9 36:27 29
Cardiff 22 8 5 9 29:25 29
Millwall 20 5 10 5 17:18 25
Ítalía
B-deild:
SPAL – Brescia........................................ 2:3
Birkir Bjarnason kom inn á sem vara-
maður á 76. mínútu hjá Brescia og skoraði
sigurmarkið, Hólmbert Aron Friðjónsson
lék ekki með liðinu vegna meiðsla.
Chievo – Venezia ..................................... 1:1
Bjarki Steinn Bjarkason kom inn á sem
varamaður á 66. mínútu hjá Venezia, Óttar
Magnús Karlsson var allan tímann á
bekknum.
Svíþjóð
Kristianstad – Varberg ...................... 31:19
Teigur Örn Einarssonskoraði 3 mörk
fyrir Kristianstad og Ólafur Andrés Guð-
mundsson 1.
Guif – Önnered .................................... 32:27
Daníel Freyr Ágústsson varði 16 skot og
skoraði 1 mark í marki Guif.
Aranäs – Alingsås................................ 26:31
Aron Dagur Pálsson skoraði 1 mark fyr-
ir Alingsås.
Staða efstu liða:
Malmö 27, Ystad IF 27, Sävehof 26, Alings-
ås 25 Skövde 23, Lugi 23, Kristianstad 22,
IFK Ystad 17, Hallby 16.
Þýskaland
Leverkusen – Göppingen ................... 24:19
Hildigunnur Einarsdóttir skoraði 2
mörk fyrir Leverkusen.
B-deild:
Bietigheim – Ferndorf........................ 33:27
Aron Rafn Eðvarðsson varði 10 skot í
marki Bietigheim. Hannes Jón Jónsson
þjálfar liðið.
Dormagen – Gummersbach ............... 24:24
Elliði Snær Viðarsson skoraði 6 mörk
fyrir Gummersbach. Guðjón Valur Sigurðs-
son þjálfar liðið.
Danmörk
Aarhus United – Horsens ................... 29:18
Thea Imani Sturludóttir skoraði ekki
fyrir Aarhus United.
Vendsyssel – Ajax................................ 24:30
Steinunn Hansdóttir skoraði 1 mörk fyr-
ir Vendsyssel. Elín Jóna Þorsteinsdóttir
varði 11 skot í marki liðsins.
Þýskaland
Giessen – Fraport Skyliners .............. 75:74
Jón Axel Guðmundsson skoraði 11 stig,
tók 5 fráköst og gaf 4 stoðsendingar á 27
mínútum hjá Fraport Skyliners.
NBA-deildin
Cleveland – New York ......................... 86:95
Detroit – Golden State ..................... 106:116
Indiana – Boston............................... 111:116
Philadelphia – Toronto ...................... 100:93
Washington – Chicago ..................... 107:115
Miami – Milwaukee ............................ 97:144
Oklahoma City – Orlando ................ 107:118
Phoenix – New Orleans ..................... 111:86
LA Clippers – Minnesota ................ 124:101
Sacramento – Denver ...................... 125:115
Theódór Elmar Bjarnason verður
eftir áramótin þrettándi íslenski
knattspyrnumaðurinn til að spila í
grísku úrvalsdeildinni en hann gekk
í gær til liðs við Lamia sem er frá
samnefndri borg í miðhluta Grikk-
lands. Liðið situr á botni deild-
arinnar með aðeins tvö stig úr fyrstu
tíu leikjum sínum.
Fyrir eru í deildinni núna þeir
Sverrir Ingi Ingason hjá PAOK og
Ögmundur Kristinsson hjá Olympi-
acos.
Elmar hefur leikið í Tyrklandi frá
2017, síðast með Akhisarspor, en
Grikkland verður hans sjöunda land
á ferlinum. Hann hefur áður leikið á
Íslandi (KR), Skotlandi (Celtic),
Noregi (Lyn), Svíþjóð (Gautaborg),
Danmörku (Randers og AGF) og
Tyrklandi (Elazigspor, Gazisehier
og Akhisarspor). Samtals hefur
Elmar, sem er 33 ára gamall, leikið
330 deildaleiki á ferlinum og 41 A-
landsleik fyrir Íslands hönd.
vs@mbl.is
Sá þrettándi í Grikklandi
AFP
Lamia Theódór Elmar Bjarnason
reynir að forða liðinu frá falli.
Danski knatt-
spyrnumaðurinn
Lasse Petry er
farinn frá Ís-
landsmeisturum
Vals og búinn að
semja við Köge í
heimalandi sínu.
Petry, sem er 28
ára gamall, hefur
verið í stóru hlut-
verki á miðjunni hjá Val undanfarin
tvö ár. Hann lék 17 af 18 leikjum
liðsins í deildinni í ár og skoraði tvö
mörk, og alls lék hann 29 leiki í
deildinni og skoraði fimm mörk en
Daninn missti af nær hálfu tíma-
bilinu 2019. Köge er í sjöunda sæti
B-deildarinnar.
Petry heim til
Danmerkur
Lasse Petry
Þýskur meistari með Wolfs-
burg fjórða árið í röð.
Þýskur bikarmeistari með
Wolfsburg fjórða árið í röð.
Franskur bikarmeistari
með Lyon.
Evrópumeistari með Lyon.
Tilnefnd sem einn þriggja
bestu miðjumanna Meist-
aradeildar Evrópu.
Tilnefnd í vali UEFA á úr-
valsliði Evrópu.
Valin ein af 20 bestu knatt-
spyrnukonum Evrópu af
breska tímaritinu FourFo-
urTwo.
Fyrirliði íslenska landsliðs-
ins sem tryggði sér sæti á EM.
Sló íslenska lands-
leikjametið.
Í 24. sæti á lista breska
blaðsins The Guardian yfir
bestu knattspyrnukonur
heims.
Kjörin íþróttamaður ársins
á Íslandi.
Árið 2020
hjá Söru
BEST 2020
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Sara Björk Gunnarsdóttir, landsliðs-
fyrirliði í knattspyrnu úr Hafn-
arfirði, segir sæmdarheitið íþrótta-
maður ársins hjá Samtökum
íþróttafréttamanna toppa magnað
ár hjá sér. Meðlimir í samtökunum
voru samstiga að þessu sinni því
Sara var sett í 1. sæti á hverjum ein-
asta atkvæðaseðli.
„Þetta er ótrúlega mikill heiður og
ég er því stolt af þessari viðurkenn-
ingu. Að vera kjörin íþróttamaður
ársins er eitt það stærsta sem hægt
er að vinna sem íþróttamaður á Ís-
landi. Í raun hefur þetta verið ótrú-
legt ár og fyrir mig má segja að
þessi viðurkenning hafi toppað
magnað ár,“ sagði Sara þegar Morg-
unblaðið náði tali af henni.
Konurnar stálu senunni í þetta
sinn því lið ársins var kvennalands-
liðið í knattspyrnu og þjálfari ársins
var Elísabet Gunnarsdóttir, sem
einnig var valin þjálfari ársins í
kvennadeildinni í Svíþjóð. Sara varð
einnig fyrir valinu árið 2018 og er
fyrst íslenskra kvenna til að fá
sæmdarheitið oftar en einu sinni.
„Já, það eru víst tímamót. Auðvitað
er gaman að því en vonandi eigum
við eftir að sjá það gerast hjá fleiri
konum í framtíðinni. Þetta var
kvennaár, það er alveg á hreinu. Ég
er mjög stolt af landsliðinu að
tryggja sig inn á EM eftir langa og
stranga undankeppni. Að komast
inn á EM fjórum sinnum í röð er frá-
bær árangur. Beta [Elísabet Gunn-
arsdóttir] er ein af bestu þjálf-
urunum erlendis og verðskuldar
þær viðurkenningar sem hún hefur
fengið.“
Langþráðu takmarki náð
Hápunktur ársins hjá Söru var
sigurinn í Meistaradeild Evrópu
með Lyon. Hún hafði áður leikið til
úrslita í keppninni með Wolfsburg
árið 2018 og hefur lengi horft til þess
að ná Evrópumeistaratitlinum.
„Já, það er eins konar hápunktur
að ná þeim titli. Það hefur verið
markmið í langan tíma og ótrúlega
sætt að ná því. Sérstaklega þar sem
mikið gekk á hvort sem það voru fé-
lagaskipti eða heimsfaraldurinn.
Auk þess var smá rússíbani í kring-
um þetta allt saman eins og að mæta
sínu gamla liði í úrslitaleiknum. Það
var rosa margt í gangi á þessu ári og
þegar ég var heima í mars þá vissi
Birkir Bjarnason
var hetja Brescia
í 3:2-sigri á SPAL
í ítölsku B-
deildinni í fót-
bolta í gærkvöld.
Birkir byrjaði á
bekknum hjá
Brescia og kom
inn á sem vara-
maður á 76. mín-
útu í stöðunni 2:2.
Ellefu mínútum síðar var hann bú-
inn að skora sigurmarkið. Hólmbert
Aron Friðjónsson lék ekki með
Brescia vegna meiðsla. Markið er
það annað sem Birkir skorar í des-
ember en hann komst einnig á blað
gegn Salernitana fyrr í mánuðinum.
Birkir skoraði
sigurmarkið
Birkir
Bjarnason