Morgunblaðið - 31.12.2020, Page 65
AF KVIKMYNDUM
Gunnar Ragnarsson
Nú er glatt á hjalla í kvik-myndakreðsum því tíðárslista er upp runnin.
Fyrir íslenska bíónördið líkjast
erlendu listarnir hlaðborði með
framandi kræsingum sem óvíst er
hvort eða hvenær það fær að gæða
sér á. Í ár er einn girnilegasti bit-
inn bak við búðarborðið án efa
kvikmyndabálkur breska leikstjór-
ans Steves McQueens Smáöxi (e.
Small Axe).
McQueen er þungavigtarkappi
og á að baki fjórar frásagnar-
myndir sem einkennast af form-
rænni fágun og pólitískri vigt. Í
vinsældum flaug hæst þrælahalds-
ræman Þræll í tólf ár (2013) en
hún varð fyrsta kvikmyndin eftir
svartan leikstjóra (sem og fram-
leiðanda) til að hljóta Óskars-
verðlaun sem besta mynd. Smáöxi
brýtur blað í verkum McQueens
því í fyrsta sinn snýr sögusvið og
umfjöllunarefni með beinum hætti
að hans eigin uppruna – samfélagi
svartra Lundúnabúa ættaðra frá
Vestur-Indíum.
Hulin fortíð
Vestur-Indíur eru eyjaklasi í
Karabíska hafinu en hugtakið á
upptök sín í landfundum Kólum-
busar. Eyríkin voru flest nýlendur
evrópsku stórveldanna langt fram
á tuttugustu öld en fimmtán
þeirra, þ.á m. Jamaíka og Trínidad
og Tóbagó, heyrðu undir bresku
krúnuna. Eftir mannfall seinni
heimsstyrjaldar hvöttu bresk yfir-
völd þegna nýlenda og samveld-
isríkja sinna til að flytja til
„móðurjarðarinnar“ í þeirri von að
brúa bilið á vinnumarkaði. Tölu-
verður fjöldi fólks fluttist yfir Atl-
antshafið en móttökurnar voru
ekki hlýjar. Rasismi var allsráð-
andi og ódulinn í bresku samfélagi
og þar að auki kerfisbundinn og
stofnanavæddur í eðli sínu. Smáöxi
fjallar um fortíð sem hefur verið
mörgum hulin og um leið varpar
hún ljósi á sögulegt samhengi
átaka samtímans.
Fimm frásagnir Smáaxar eiga
sér stað frá lokum sjöunda áratug-
arins til byrjunar þess níunda og
sýna mismunandi sjónarhorn á
raunveruleika svartra í Bretlandi
þess tíma. Þrjár þeirra, Mangrove,
Rautt, hvítt og blátt (e. Red, White
and Blue) og Alex Wheatle, eru
byggðar á raunverulegum atburð-
um og persónum (réttarhöldin yfir
Mangrove-nímenningunum árið
1971, New Cross-bruninn og Brix-
ton-óeirðirnar árið 1981 m.a.) og
eiga sameiginlegt að fjalla með
einum eða öðrum hætti um stöðu
svartra gagnvart lögreglu og yfir-
völdum. Lokahnykkurinn Menntun
(e. Education) byggist með óbein-
um hætti á uppvexti leikstjórans
og greinir frá því hvernig svörtum
börnum var mismunað innan
skólakerfisins.
Stórfengleg tónlist
Elskendarokk (e. Lovers
Rock) sker sig þó talsvert úr
fjöldanum og virðist vera uppá-
haldsstykki margra. Frásögnin
gerist öll á einni kvöldstund þar
sem fylgst er með línulegri fram-
vindu „blúspartís“ sem fer fram í
einkahúsi í Lundúnum árið 1980.
Hljóðkerfi er sett upp, rýmið
skreytt og gestir tínast inn.
Kvöldið hefst í diskótakti en fær-
ist hægt og bítandi í elskenda-
rokk (breskt sálarskotið og
rómantískt reggíafbrigði, gjarnan
sungið af kvensöngkonum) og ná-
inn og ritúalískur mökunardans
tekur við. Síðla nætur er döbbið í
algleymi og sveinarnir standa eft-
ir í manískri karlorkunni. Á milli
þessara stunda sjáum við ýmsar
hliðar mannlífsins en smáatriði
þess gera söguheiminn og persón-
urnar afar sannfærandi. Frásögn-
in nær á magnaðan hátt utan um
tilfinninguna sem fylgir því að
vera ungur. Átök við ráðandi hóp
samfélagsins færast hér í bak-
grunn (þótt þau hverfi aldrei al-
veg) og ungmennin eiga hér sitt
rými sem þau eru frjáls í. Tónlist-
in, líkt og í bálknum í heild, er
stórfengleg (eins og við má búast
í sögu fólks sem tilheyrir tví-
heimum Vestur-Indía) og gegnir
lykilhlutverki. A cappella-söngur
dansgólfsins á ástaróði Janet Kay
„Silly Games“ (heilalím frá himn-
um ofan) ljær honum óvænta póli-
tíska vídd og er án efa kvik-
myndalegur hápunktur. Eitt og
sér er Elskendarokk afar sterkt
verk en það eflist enn frekar í
sambandi við heildina. Gleðin
væri ekki söm án pólitíska sam-
hengisins og taugaspennunnar
sem upphafshljómur Mangrove
slær. Og þá skal vikið stuttlega
að örlítið úldnu þrætuepli – er
Smáöxi bíó eða sjónvarp?
Fljótandi mörk
Höfundar Smáaxar tala um
verkið sem kvikmyndabálk, þ.e.a.s.
fimm stakar kvikmyndir (en ekki
sjónvarpsþætti) sem mynda stærra
verk. Slíkir merkimiðar eru ekki
nýir af nálinni hjá listrænum leik-
stjórum sem framleiða efni fyrir
sjónvarp og má nefna Berlín Alex-
anderplatz Fassbinders (1980) og
Boðorð Kieslowskis (1988) sem
dæmi. Mörk milli forma hafa þó
aldrei verið jafn fljótandi og nú og
umræður sem þessar verða æ tíð-
ari. Sjá má að Mangrove og Elsk-
endarokk (sem vermdi toppsæti
lista Sight&Sound t.a.m.) voru
báðar hátt skrifaðar á bíóárs-
listum beggja vegna Atlantshafsins
en breski menningarmáttar-
stólpinn The Guardian hafði heild-
arverkið aðeins í sjónvarps-
uppgjöri sínu en hunsaði smærri
hluta þess bíómegin. Verðlaun
gagnrýnendasamtaka Los Angel-
es-borgar bættu svo grátt ofan á
svart og útnefndu Smáöxi í heild
sinni sem bestu kvikmynd ársins.
Hártoganir sem þessar eru
fyrst og fremst ætlaðar þeim sem
standa að verðlaunahátíðum og
eru á engan hátt mikilvægar til
þess að njóta verksins. Líklega er
bara bæði betra. Virðingarsess
Steves McQueens sem kvikmynda-
leikstjóra er þó meginástæða þess
að Smáöxi varð að veruleika og er
það mikilvægt í heildarsamheng-
inu. Verkið er framleitt af BBC og
sýnt þar og er stórsigur að jafn
hápólitískt og beinskeytt listaverk,
sem fjallar um afglöp þarlendra
yfirvalda, berist til sem flestra
landsmanna. Sem stendur er að-
gengi íslenskra áhorfenda að Smá-
öxi enn óráðið en óskandi væri að
RÚV tryggði sér sýningarréttinn
enda um mikilvægt menningar-
verk með ríkulega alþjóðlega skír-
skotun að ræða. Mörg hver höfum
við smakkað á ópíumi fólksins
undanfarin misseri og er erfitt að
ímynda sér betra móteitur en
Smáöxi til þess að rifja upp fyrir
hvað krúnan stendur í raun og
veru.
Smáöxi fellir stórt tré
Elskendarokk Úr einni af kvikmyndum Steves McQueens, Lovers Rock, sem er hluti af bálkinum Smáöxi.
» VirðingarsessSteves McQueens
sem kvikmyndaleik-
stjóra er þó megin-
ástæða þess að Smáöxi
varð að veruleika og er
það mikilvægt í heildar-
samhenginu.
MENNING 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2020
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI.
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
FRÁBÆR NÝ JÓLA TEIKNIMYND
JÓLAMYNDIN 2020