Lögmannablaðið - 2019, Qupperneq 7
LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 02/19 7
rekstri félagsdeildar kr. 1.714.579. Rekstrarafgangur varð í
rekstri Námssjóðs en hann var rúmlega 700 þúsund krónur.
Framkvæmdastjórinn fjallaði jafnframt um einstaka
rekstrarliði sem höfðu tekið breytingum milli ára. Ekki
var lögð til hækkun á félagsgjöldum en tekið fram að gæta
þyrfti aðhalds í rekstri.
Breytingar á samþykktum félagsins
Stjórn Lögmannafélagsins lagði fram tillögu um breytingar
á samþykktum félagsins og var hún samþykkt samhljóða.
Fela breytingarnar m.a. í sér heimild til að halda félagsfundi
með rafrænum hætti, að siðareglur séu háðar samþykki
félagsfundar og að meirihluti stjórnar riti firma félagsins í
stað formanns og eins stjórnarmanns sameiginlega. Ákvæði
um skoðunarmenn voru tekin út þar sem félagið mun
nú kjósa endurskoðanda og öðrum ákvæðum breytt til
samræmis. Ákvæði um hlutverk stjórnar var einnig breytt
en nú er tekið fram með ótvíræðum hætti að stjórn beri að
hafa eftirlit samkvæmt lögmannalögum og siðareglum og
geti þ.a.l. beint erindum til úrskurðarnefndar lögmanna.
Þá var um að ræða breytingar til staðfestingar á venju
bundinni framkvæmd, breytingar á skipulagi ákvæða
eða orðalagsbreytingar. Að öðru leyti vísast til breyttra
samþykkta félagsins.
Breytingar á reglum félagsdeildar LMFÍ
Tillaga um breytingar á reglum félagsdeildar LMFÍ var
einnig samþykkt á fundinum. Breytingarnar fela fyrst og
fremst í sér orðalagsbreytingar m.t.t. þess að um sé að ræða
deild en ekki félag. Þá voru ákvæði uppfærð til samræmis
við sambærileg ákvæði í samþykktum Lögmannafélagins,
m.a. um firmaritun.
Kosingar í stjórn og nefndir
Sjálfkjörið var í stjórn Lögmannafélagsins. Berglind Svavars
dóttir var endurkjörinn formaður félagsins. Sigurður Örn
Hilmarsson og Viðar Lúðvíksson voru kjörnir í stjórn. Auk
þeirra þriggja sitja áfram í stjórn Hjördís E. Harðardóttir
og Stefán Andrew Svensson. Í varastjórn voru kjörin Birna
Hlín Káradóttir, Jónína Lárusdóttir og Grímur Sigurðarson.
Endurskoðandi félagsins var kosinn Þorvaldur Þorvaldsson,
löggiltur endurskoðandi.
Þá voru kjörin í laganefnd félagsins þau Grímur Sigurðarson,
Einar Farestveit, Almar Þór Möller, Jón Gunnar Ásbjörns
son, Aldís Geirdal Sverrisdóttir, Geir Gestsson og Benedikt
Egill Árnason.