Lögmannablaðið - 2019, Page 36
36 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 02/19
vegna umboðs og ábyrgðar stjórnarmanna og hvaða úrbóta
kann að vera þörf í íslenskri löggjöf þar að lútandi með
sérstakri hliðsjón til svokallaðra „hrunmála“. Boðið var
uppá fjórar áhugaverðar örmálstofur og var komið víða
við, fjallað um peningaþvætti, höfundarétt og gervigreind,
græn skuldabréf sem hafa verið að ryðja sér til rúms á
alþjóðlegum skuldabréfamörkuðum og að lokum Brexit
en áætlað hafði verið að 29. mars, á Lagadaginn, myndu
Bretar ganga úr Evrópusambandinu.
Eins og venjulega var mikið um dýrðir að kvöldi Lagadagsins
þegar lögfræðingar landsins skörtuðu sínu fínasta pússi
og héldu í Hörpuna til að njóta samveru, matar, drykkjar
og skemmtidagskrár undir frábærri stjórn lögmannanna
Víðir Smári Petersen lögmaður og málstofustjóri
í örmálstofum og Anna Ragnhildur Halldórs dóttir
lögfræðingur á regluvörslusviði hjá Íslands
banka sem fór yfir ný lög um aðgerð ir gegn
peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
Lára Herborg Ólafsdóttir lögmaður og Sindri M. Stephensen aðstoðarmaður dómara við EFTA
dómstólinn fjölluðu um höfundarétt og gervigreind og þær lagaflækjur sem geta komið upp
t.a.m. þegar hugbúnaður lærir að þróa og búa til nýja og áður óþekkta hluti, sem jafnvel hönnuði
hans óraði ekki fyrir.
Benedikt Bogason hæstaréttardómari og formaður stjórnar Dómstóla
sýslunnar, fer yfir nýja stöðu Landsréttar eftir dóm MDE.
Frá málstofunni „Tjáningar, fjölmiðla og upplýsingafrelsi“. Þórir Guðmundsson fréttastjóri
Stöðvar 2, Sigríður Rut Júlíusdóttir lögmaður hjá Rétti, Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra,
Halldóra Þorsteinsdóttir lektor við Lagadeild Háskólans í Reykjavík, Páll Hreinsson forseti EFTA
dómstólsins og rannsóknaprófessor við Lagadeild Háskóla Ísland og Eiríkur Jónsson deildarforseti
Lagadeildar Háskóla Íslands og formaður nefndar um umbætur á sviði tjáningar, fjölmiðla og
upplýsingafrelsis.
Skúli Magnússon dómari við Héraðsdóm
Reykjavíkur fræddi gesti Lagadags um Brexit.
Frá málstofu um Tjáningar, fjölmiðla og upplýsingafrelsi. Reimar
Pétursson lögmaður að spyrja fyrirlesara.