Gerðir kirkjuþings - 2018, Page 5
5
Setningarræða forseta kirkjuþings, Magnúsar E. Kristjánssonar
Kirkjuþing 2018, 57. kirkjuþing hinnar íslensku þjóðkirkju er sett.
Velkomin til kirkjuþings, kirkjuþingsfulltrúar og góðir gestir og einkum þið sem sem
nú setjist á kirkjuþing í fyrsta skipti.
Ég býð fjármálaráðherra, Bjarna Benediktsson, velkominn og þakka honum fyrir þá
vinsemd sem hann sýnir kirkjuþingi með því að vera hér með okkur í dag.
Í dag er einnig rétt að heilsa sérstaklega gömlum félaga sem er kominn til kirkjuþings
á ný, í nýju hlutverki. Vertu hjartanlega velkominn sr. Kristján Björnsson vígslubiskup í
Skálholti, fyrrum kirkjuþingsfulltrúi og kirkjuráðsmaður.
Legg þú á djúpið eftir Drottins orði
og æðrast ei, því nægja mun þinn forði,
þótt ómaksför þú farir marga stund.
Ef trú og dáð og dugur ei þig svíkur,
er Drottinn lífs þíns ennþá nógu ríkur
og mild hans mund.
Legg þú á djúpið, þú, sem enn ert ungur,
og æðrast ei, þótt straumur lífs sé þungur,
en set þér snemma háleitt mark og mið,
haf Guðs orð fyrir leiðarstein í stafni
og stýrðu síðan beint í Jesú nafni
á himins hlið.
Þessi sálmur eftir Matthías Jochumsson er mér mjög eftirminnilegur. Sérstaklega 1. og 3.
versið sem ég las. Þegar sr. Bragi Friðriksson sóknarprestur hér í Garðasókn var með okkur
krakkana í fermingarfræðslu horfði hann í augun á okkur og sagði okkur að nú stæðum við
á tímamótum í lífinu. Við værum að slíta barnsskónum og þyrftum að undirbúa okkur fyrir
lífsbaráttuna. Ýmsar ákvarðanir sem við tækjum nú myndu hafa áhrif á allt okkar líf. Það
væri því mikilvægt að velja hvernig við stýrðum okkar fleyi. Lífið gæti verið mikið ævintýr en
enginn mundi komast í gegnum það án þess að takast á við áföll, áskoranir, ógn, tækifæri og
breytingar. Við værum að leggja í ferð, leggja á djúpið. Hann vildi að við lærðum þennan sálm
því boðskapur hans væri frábært veganesti. Sr. Bragi bað okkur um að hafa sálminn í huga,
ekki aðeins í fermingartímunum heldur í hvert sinn sem við stæðum á vegamótum í lífinu.
Fyrir fjórum árum óskaði ríkisvaldið eftir viðræðum við þjóðkirkjuna um fjárhagsleg
samskipti. Kirkjuþing varð við því og kosinn var viðræðunefnd sem í voru auk mín, þau
Jónína Bjartmarz og Óskar Magnússon. Af hálfu ríkisins voru viðræðurnar leiddar af
ráðuneytisstjórum í forsætis-, fjármála- og efnahags- og dómsmálaráðuneyti. Að auki
hafa ýmsir sérfræðingar komið að þessari vinnu.
Ég vil nota tækifærið og þakka fulltrúum ríkisins í þessum viðræðum fyrir góða
samvinnu, heiðarleg og hreinskiptin skoðanaskipti og fagleg og góð vinnubrögð.