Gerðir kirkjuþings - 2018, Side 6

Gerðir kirkjuþings - 2018, Side 6
6 7 Á ýmsu hefur gengið á þessum fjórum árum en í haust komst skriður á samtal milli aðila og stutt er í að drög að samkomulagi verði tilbúinn. Gerð verður grein fyrir stöðunni á þessum viðræðum á sérstökum fundi kl. 13.00 á þriðjudag. Í upphafi viðræðnanna vildi ríkið hafa það að leiðarljósi í samtalinu að stefnt væri að mjög auknu sjálfstæði þjóðkirkjunnar og að fjárhagsleg samskipti ríkis og kirkju væru einfölduð. Þegar þessar viðræður fóru aftur af stað í haust kom enn betur í ljós að það er vilji ríkisins að það hafi sem minnst afskipti af starfi kirkjunnar. Hugmynd ríkisins er að þjóðkirkjan annist um öll sín mál sjálf, prestar verði starfsmenn kirkjunnar en ekki embættismenn ríkisins. Fjármál öll, þ.m.t. bókhald og endurskoðun, verði ekki á ábyrgð ríkisins heldur taki þjóðkirkjan við þeim verkefnum öllum. Ráðherra annist ekki um verðskrá fyrir aukaverk presta og greiðslur samkvæmt kirkjujarðasamkomulaginu verði ekki háðar fjölda presta eða annarra starfsmanna. Sem sagt sjálfstæð þjóðkirkja sem ber ábyrgð á sjálfri sér. Þjóðkirkja sem þarf að leggja á djúpið við talsvert breyttar aðstæður. Ef niðurstaða samtalsins verður þessi og ef í framhaldinu samþykki kirkjuþing og Alþingi slíkan samning mun það þýða breytingar. Þetta mun kalla á lagabreytingar og að kirkjuþing setji starfsreglur sem komi í stað þeirra laga sem verður breytt eða felld á brott. Þá er spurning hvort skipulag kirkjunnar sé það skipulag sem best hentar henni til að takast á við þær áskoranir sem blasa við. Að mínu mati þarf kirkjuþingið að ræða í hreinskilni hvar þjóðkirkjan er stödd, hvert fólk vilji að hún fari og svo auðvitað hvernig komast megi á áfangastað. Auknu sjálfstæði fylgir aukin ábyrgð. Ríkisvaldið ætlast til þess að ef þessar breytingar verði að veruleika þá sé umsýsla kirkjunnar með þá fjármuni sem ríkið mun greiða þjóðkirkjunni vönduð, reglur skýrar, ákvarðanataka og uppgjör í samræmi það sem best þekkist í þeim efnum. Það eru og hagsmunir þjóðkirkjunnar að svo sé. Vönduð stjórn og fjársýsla hefur áhrif á viðhorf fólksins í landinu til kirkjunnar og það viðhorf mun skipta miklu. Sjálfstæðari kirkja í breyttu lagaumhverfi mun þurfa að taka ábyrgð í ríkari mæli á ýmsum viðfangsefnum. Breytt lög um skráningu barna í trúfélög munu hafa áhrif á fjölda þeirra sem skráðir eru í þjóðkirkjuna þegar þau börn sem fædd eru eftir að lögin tóku gildi verða 16 ára. Þjóðkirkjan þarf að huga að félagatali sínu, ekki bara eftir 10 ár heldur strax. En það er ekki einfalt. Ný persónuverndarlög gera þetta erfitt. Má í því sambandi vísa í frétt í Morgunblaðinu s.l. fimmtudag á bls. 6 um breyttar reglur hjá Þjóðskrá Íslands. Fjöldi félaga í þjóðkirkjunni hefur bein áhrif á greiðslur til þjóðkirkjunnar samkvæmt kirkjujarðarsamkomulaginu og greiðslum til sjóða sem og auðvitað heildarupphæð sóknargjalda. Til að tryggja fjárhagsstöðu kirkjunnar þarf að huga að fjölda skráðra sóknarbarna. Þau koma upp í hugann orðin úr Matteusi 4. kafla, 19. versi: „Komið og fylgið mér, og mun ég láta yður menn veiða“. Þetta verður eitt af stóru verkefnum þjóðkirkjunnar til að tryggja félagafjölda, getu til að veita fólki góða þjónustu og svo auðvitað til að sinna skyldu sinni samkvæmt 28. kafla Matteusarguðspjalls um kristniboðsskipunina í versi 19. og 20. Það er ekki ósennilegt að það þurfi að svara spurningunni: „Af hverju á ég að vera í þjóðkirkjunni, hvað fæ ég út úr því?“ Á að vera munur á aðgengi að þjónustu eftir því
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.