Gerðir kirkjuþings - 2018, Síða 8
8 9
áherslur þarf samt ekki að þýða að við getum ekki öll unnið vel saman. Með því að bera
virðingu fyrir ólíkum skoðunum forðumst við sundurlyndi en sundurlyndið hefur lengi
verið slæmt mein innan þessarar kirkju.
Að lokum langar mig að vitna í setningarræðu Péturs Hafstein, forseta kirkjuþings, á
aukakirkjuþingi 2011.
„Við verðum að draga bjálkann úr eigin auga og leggja allt í sölurnar til að endurheimta
traust og trúnað þjóðarinnar svo að áfram geti verið hér í landi sú samfylgd kirkju og
ríkis, kirkju og þjóðar, sem verið hefur burðarás í menningu og siðferði landsmanna
um aldabil. Það gerum við einungis með því að efla svo innviði kirkjunnar að hún geti
sinnt köllun sinni í samhljómi við lífið í landinu. Til þess þurfum við annars vegar að
efla og styrkja samheldni og einingu innan kirkjunnar og hins vegar að færa kirkjuna
enn fram á veg lýðræðis og nútímalegri starfshátta. Ef þjóðkirkjan vill vera þjóðkirkja í
lífrænum tengslum við fólkið í landinu verður hún að leita til grasrótar sinnar en ekki
upphefja sjálfa sig sem óumbreytanlega stofnun í guðfræðilegum skilningi. Við verðum
að kalla miklu fleira fólk til ábyrgðar og ákvarðanatöku í kirkjunni, meðal annars með
gerbreytingu á öllu fyrirkomulagi kosninga innan kirkjunnar, bæði biskupskosninga og
kosninga til kirkjuþings. Við verðum að kalla eftir enn ríkari sjálfsákvörðunarrétti og
um leið meiri ábyrgð þjóðkirkjunnar, ekki síst kirkjuþings, og verðum að leggja hlustir
við kröfu tímans um nútímalegri stjórnhætti sem gefa um leið betra færi en áður til þess
að veita skilvirka forystu í siðferðis- og trúarefnum“.
Ég hef ekki neinu við þessi orð Péturs Hafstein að bæta. Tek undir þau og geri að mínum.
Þá er ekki annað eftir en að fá að þakka fyrir mig. Þakka öllu því frábæra fólki sem
ég hef átt samstarf við. Þakka einstöku starfsfólki biskupsstofu fyrir góða samvinnu,
skynsamlegar ráðleggingar og mikið og óeigingjarnt starf fyrir kirkjuþing. Ég þakka biskupi
Íslands frú Agnesi M. Sigurðardóttur fyrir samstarfið og mörg góð samtöl. Varaforsetum,
formönnum fastanefnda, kirkjuráðsmönnum og öllum kirkjuþingsfulltrúum fyrr og nú
þakka ég fyrir samleiðina.
Ykkur öllum óska ég velfarnaðar í störfum fyrir þjóðkirkjuna. Þið leggið á ný djúp,
farnist ykkur vel og Guð ykkur geymi.
Takk fyrir mig.