Gerðir kirkjuþings - 2018, Page 9

Gerðir kirkjuþings - 2018, Page 9
9 Ávarp fjármála- og efnahagsráðherra, Bjarna Benediktssonar Biskup Íslands, fulltrúar kirkjuþings. Það er mér ánægja að fá þetta tækifæri til að ávarpa, hér í Vídalínskirkju í Garðabænum, þetta kirkjuþing. Ég stend hér í forföllum hæstvirts dómsmálalaráðherra, Sigríðar Á. Andersen. Mig langar að gera að umtalsefni samskipti þjóðkirkjunnar og ríkisins. Á þessu ári eru liðin tuttugu ár síðan lög nr. 78/1997 um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar tóku gildi. Lögin voru afrakstur nefndarstarfs sem staðið hafði frá árinu 1993 og höfuðforsendur þess voru þrjár: • Í fyrsta lagi að veruleg aukning á innra starfi kirkjunnar og örar breytingar á því kölluðu á breytingar á kirkjulöggjöfinni og jafnframt á aukna og styrkta stjórnsýslu á kirkjulegum vettvangi.  • Í öðru lagi að búsetu- og þjóðfélagsbreytingar, ásamt breyttum og bættum samgöngum, kölluðu á aukinn sveigjanleika í starfi kirkjunnar.  • Í þriðja lagi að umræða á pólitískum vettvangi um að endurskoða þyrfti samband ríkis og kirkju kallaði á svar stjórnvalda og kirkjunnar sjálfrar um heppilega og eðlilega framtíðarskipan um stöðu hennar.  Eins og þið heyrið, þá hljómar flest í þessum tuttugu ára gömlu forsendum mjög kunnuglega í dag. Enn stöndum við í þeim sporum að kirkjan þarf meiri sveigjanleika í sínu starfi og meira sjálfstæði. Bæði til að svara breyttum þjóðfélagsaðstæðum og til að svara ákalli um aukið sjálfstæði kirkjunnar frá ríkisvaldinu. Það er líka svo, að á vegum kirkjuþings hefur allt frá árinu 2007 staðið yfir vinna við endurskoðun laganna frá 1997. En það eru þó ekki bara lögin sjálf um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar sem hafa kallað á endurskoðun. Það sama á ekki síður við um þá samninga sem eru í gildi á milli ríkisins og kirkjunnar. Með svonefndu kirkjujarðasamkomulagi voru árið 1997 settar niður gamlar deilur um uppgjör vegna fjölda fasteigna sem ríkið hafði fengið frá kirkjunni. Fjárhagsleg samskipti ríkis og kirkju voru svo útfærð enn frekar í samningi árið 1998. Samkvæmt þessum samningum greiðir ríkið laun ákveðins hóps starfsmanna þjóðkirkjunnar, en kjararáð hafði það hlutverk að úrskurða um fjárhæð launanna og þar með um endanlega fjárhæð árlegs gagngjalds ríkisins fyrir umræddar jarðir. Nú hefur kjararáð verið lagt niður og um þessar mundir stendur yfir kynning á nýju fyrirkomulagi við launasetningu hjá miklum fjölda ríkisstarfsmanna. Það verður því einfaldlega ekki hjá því komist að endurskoða það hvernig við reiknum gagngjaldið frá ári til árs. Fulltrúar ríkisins og kirkjunnar hafa undanfarið ræðst við um hvernig eigi að bregðast við þessu og hvaða skref eigi að taka fram á við. Þær viðræður eru nú mjög langt komnar og mér virðist rétt að við reynum að ljúka þeim á allra næstu vikum. Ég tel langskynsamlegast að við notum þetta tækifæri til að taka stór skref til að þróa áfram fyrirkomulagið á samskiptum ríkis og kirkju. Ég vil setja fram nokkra punkta sem ég og dómsmálaráðherrann myndum gjarnan vilja að við yrðum öll sammála um.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.