Gerðir kirkjuþings - 2018, Blaðsíða 10
10 11
1. Í fyrsta lagi vil ég árétta að sú greiðsla sem ríkið greiðir kirkjunni árlega á grundvelli
kirkjujarðasamkomulagsins felur í sér gagngjald fyrir fasteignir. Það framlag verði
ekki skert með neinum hætti. Það er mikilvægt að halda þessu skýrlega til haga því í
opinberum umræðum heyrast oft raddir sem ganga út frá því að þetta framlag ríkisins
sé einhvers konar örlætisgerningur sem megi missa sín. Þetta framlag þarf hins vegar
að verða ótengt innri starfsemi þjóðkirkjunnar, svo sem launagreiðslum einstakra
starfsstétta eða rekstrarkostnaði.
2. Í öðru lagi tel ég rétt að kirkjan taki alfarið við eigin starfsmannamálum.
3. Í þriðja lagi tel ég að við eigum að reyna að einfalda fjárhagslega umgjörð um samskiptin
þannig að þær greiðslur sem í dag renna í Kristnisjóð, kirkjumálasjóð, Jöfnunarsjóð
sókna og til höfuðkirkna, fari einfaldlega til kirkjunnar og hún beri sjálf ábyrgð á því
hvernig hún ver þessu fé. Ríkið hlutist sem minnst um fjárhagsmálefni hennar eða
skiptingu og ráðstöfun fjárframlaga. Ég vil líka árétta að af minni hálfu stendur ekki til
að þessi framlög skerðist frá því sem nú er.
Allt kallar þetta á umræður og ég þykist vita að þið eigið eftir að ræða þessi mál hér á
þinginu. Dómsmálaráðherra hefur líka farið yfir það frumvarp til nýrra þjóðkirkjulaga
sem síðasta kirkjuþing ályktaði um. Niðurstaða þeirrar yfirferðar er að það frumvarp gæti
að langmestu leyti verið lagt fyrir Alþingi sem stjórnarfrumvarp, þótt ráðuneytið telji
auðvitað nauðsynlegt að fara yfir einstök efnisatriði.
Ég vil ekki skorast undan því að ræða í þessu samhengi um þá ágjöf sem við sitjum
undir, sem freistum þess að ná sáttum um að þróa áfram fyrirkomulagið á fjárhagslegum
samskiptum ríkis og kirkju. Það er lítil sanngirni í málflutningi sumra þeirra sem hæst
tala um aðskilnað ríkis og kirkju og um að best færi á því að ríkið hætti algjörlega að hafa
nokkur afskipti af fjármálum neinna trúfélaga.
Oft virðist manni sem málflutningur af þessu tagi stafi einkum frá mjög ungu fólki,
sem ekki hefur lent í neinum áföllum og hefur ekki séð það starf sem kirkjan vinnur við
sálusorgun og ýmiss konar félagsþjónustu.
En jafnvel á Alþingi er töluverður hópur þingmanna sem virðist ekki tilbúinn til að
viðurkenna að neinu leyti að þjóðkirkjan hafi hlutverk eða eigi erindi við samtímann. Ekki
heldur til að virða þá samninga sem gerðir hafa verið.
Þetta gerir það enn brýnna en ella að ríkið og kirkjan nái sem fyrst saman um að þróa
áfram samband sitt og sjálfstæði kirkjunnar innan skynsamlegs ramma, sem unnt er að ná
sæmilega víðtækri sátt um.
Ágætu fundarmenn.
Starf þjóðkirkjunnar er mikilvægt, ekki síður en starfsemi ríkisins og miklu skiptir að störf
ykkar sem hafa valist á kirkjuþing verði farsæl. Framundan er þing sem ég vona að verði
bæði starfsamt og árangursríkt. Ég óska ykkur blessunar og velgengni í störfum ykkar.