Gerðir kirkjuþings - 2018, Page 19

Gerðir kirkjuþings - 2018, Page 19
19 Finnbjarnardóttir fulltrúi, Arnór Skúlason arkitekt, verkefnisstjóri á fasteignasviði og Skúli Guðmundsson, lögfræðingur kirkjuráðs, sviðsstjóri fasteignasviðs kirkjumálasjóðs og lögfræðingur kirkjuþings. Verkefni kirkjuráðs á starfsárinu Reglulegt kirkjuþing, 56. kirkjuþing 2017, var haldið í Vídalínskirkju og hófst hinn 11. nóvember 2017. Hinn 15. nóvember var því frestað og framhaldið 10. mars 2018. Alls voru 22 mál á dagskrá þingsins og 19 þeirra voru afgreidd frá því. Eitt mál var dregið til baka, einu máli var vísað frá þinginu og eitt mál var ekki afgreitt. Kirkjuráð lagði fram sex mál, biskup Íslands flutti fimm mál, löggjafarnefnd þrjú mál, kirkjuþing unga fólksins eitt mál og þjóðmálanefnd eitt mál. Þingmannamál voru sex. Aukakirkjuþing var haldið í Neskirkju hinn 30. mars 2017. Tvö mál voru á dagskrá og voru þau bæði afgreidd frá þinginu. Skal nú gerð grein fyrir störfum kirkjuráðs við framkvæmd samþykkta kirkjuþings. Ályktanir og samþykktir 5. kirkjuþings 2017 og viðbrögð kirkjuráðs við þeim. Mál 56. kirkjuþings sem vísað var til kirkjuráðs eða kirkjuráð ákvað að taka á dagskrá sína voru tekin fyrir á (2)72. fundi kirkjuráðs hinn 12. desember og þar afgreidd með eftirgreindum hætti: 1. 1. mál, skýrsla kirkjuráðs. Kirkjuþing 2017 ályktar um mikilvægi þess að bæta stöðu kynningar- og upplýsingamála þjóðkirkjunnar. Kirkjuþing ályktar að tímabært sé að auka samstarf og sameiningu sókna, jafnt í þéttbýli sem dreifbýli og tekur undir það að Jöfnunarsjóður sókna veiti sóknum sem sameinast fjárstyrki vegna þess. Forseti kirkjuráðs lagði til að sérstakt átak verði gert til að tryggja máli þessu framgang. Kirkjuþing ályktar að starfshópur um skírnarfræðslu, sbr. áfangaskýrslu á fylgiskjali með skýrslu kirkjuráðs, sem lögð hefur verið fram á kirkjuþingi til kynningar, haldi áfram störfum og leggi fyrir næsta kirkjuþing tillögur sínar í samræmi við framangreinda áfangaskýrslu. Lagt til að veitt verði einni milljón króna í verkefnið. 2. 7. mál. Þingsályktun um hlutdeild unga fólksins í kirkjustarfi og stjórn. Kirkjuþing 2017 beinir því til biskups Íslands, forsætisnefndar kirkjuþings og kirkjuráðs að fara yfir eigið skipulag og starfsemi, svo og þær nefndir og önnur fjölskipuð stjórnvöld, nefndir og ráð sem starfa á þeirra vegum og leggja fram á kirkjuþingi 2018, eftir því sem þurfa þykir, tillögur að nauðsynlegum breytingum á starfsreglum til að ná markmiðum í ályktun tólfta þings Lúterska heimssambandsins frá árinu 2017 um þátttöku unga fólksins í stjórn aðildarkirkna sambandsins. Kirkjuráð ályktar að starfsliði þess verði falið að vinna að framgangi málsins. 3. 8. mál. Þingsályktun um jöfn hlutföll kynja í stjórnum, nefndum og ráðum innan þjóðkirkjunnar.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.