Gerðir kirkjuþings - 2018, Page 20

Gerðir kirkjuþings - 2018, Page 20
20 21 Kirkjuþing 2017 ályktar að jöfn hlutföll kynja skuli ávallt vera í öllum stjórnum, nefndum og ráðum á vegum þjóðkirkjunnar, eins og kveðið er á um í jafnréttisstefnu þjóðkirkjunnar frá 2009, með síðari breytingum. Skulu að jafnaði sitja þar að minnsta kosti 40% konur og að minnsta kosti 40% karlar. Kirkjuráð fylgi því eftir að við þessi viðmið sé staðið eins og kostur er. 4. 10. mál. Þingsályktun um ráðningu jafnréttisfulltrúa þjóðkirkjunnar. Kirkjuþing 2017 samþykkir að fela kirkjuráði að auglýsa stöðu jafnréttisfulltrúa og ráða í hana. Um hálft starf er að ræða og mun jafnréttisfulltrúinn vinna náið með jafnréttisnefnd kirkjunnar að framkvæmdaáætlun jafnréttisstefnu þjóðkirkjunnar auk þess að vinna að jafnréttismálum kirkjunnar almennt. Hér er um tilraunaverkefni til fimm ára að ræða. Kirkjuráð felur framkvæmdastjóra að leggja drög að lýsingu á umbúnaði starfsins og auglýsingu um það og kynna kirkjuráðsmönnum fyrir næsta fund. 5. 11. mál. Þingsályktun um Víkurgarð í Reykjavík. Kirkjuþing 2017 felur kirkjuráði að koma á framfæri við þar til bær stjórnvöld að lög og reglur um niðurlagða kirkjugarða séu virt hvað varðar Víkurgarð í Reykjavík. Ennfremur vill kirkjuþing benda á að í 33. gr. laga um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu nr. 36/1993, með síðari breytingum, segir: „Niðurlagðan kirkjugarð má ekki nota til neins þess sem óviðeigandi er að dómi prófasts (prófasta). Ekki má þar jarðrask gera né reisa nein mannvirki.“ Kirkjuráð ályktar að fela framkvæmdastjóra að koma ályktuninni á framfæri við rétt yfirvöld. 6. 16. mál. Þingsályktun um umhverfisstefnu þjóðkirkjunnar. Atriði í aðgerðaráætlun umhverfismála fyrir árin 2018-2020. Kirkjuráð ályktar að umhverfisnefnd og starfsmaður hennar vinni að framgangi áætlunarinnar. 7. 18. mál. Þingsályktun um að auka tengsl þjóðkirkjunnar við samtök evangelískra kirkna í Evrópu GEKE/CPCE. Kirkjuþing 2017 samþykkir að beina því til biskups Íslands að kanna möguleika á auknu samstarfi þjóðkirkjunnar við samtök evangelískra kirkna í Evrópu sem miði að því að kirkjuþing 2018 fái til umfjöllunar og afgreiðslu umsókn um fulla aðild að samtökunum. 8. 19. mál. Starfsreglur sem samþykktar voru á kirkjuþingi og birtar í Stjórnartíðindum. Upplýst var að fjórar starfsreglur sem kirkjuþing 2017 samþykkti hefðu verið birtar í B-deild Stjórnartíðinda. Starfsreglurnar eru þessar: a. Breyting á starfsreglum um val og veitingu prestsembætta nr. 144/2016, með síðari breytingum, var birt 27. nóvember og er nr. 1024/2017. b. Starfsreglur um kirkjutónlist á vegum þjóðkirkjunnar voru birtar 8. desember og eru nr. 1074/2017. c. Starfsreglur um kjör til kirkjuþings voru birtar 8. desember og eru nr. 1075/2017. d. Breyting á starfsreglum um prestssetur og aðrar fasteignir þjóðkirkjunnar nr. 950/2009, með síðari breytingum, var birt 8. desember og er 1076/2017.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.