Gerðir kirkjuþings - 2018, Page 35

Gerðir kirkjuþings - 2018, Page 35
35 1. mál 2018 Fskj. C Starfshópur um skírnarfræðslu – skýrsla til kirkjuráðs Skírnin Vefsíða Við vísum til fyrri skýrslu sem lögð var fyrir kirkjuráð haustið 2017. Áfram unnum við að kynningarmálum, en sr. Sigfús Kristjánsson verkefnisstjóri fræðslumála hefur unnið undanfarið með nefndinni. Brýnt þykir okkur að gera gott efni til kynningar á vefsíðu og skv. upplýsingum kemur ný vefsíða fljótlega og þá er ástæða til að kynna vel skírnina með fallegum og góðum texta, fallegum myndum og myndböndum, sem söfnuðir geta deilt á vefsíður sínar og feisbókarsíður. Við teljum að gott sé að hafa til hliðsjónar góðar vefsíður dönsku og norsku þjóðkirkjunnar, þar sem eru skýrir og góðir textar og fallegar myndir og myndbönd. Við höfum hafið þessa vinnu sem vonandi getur haldið áfram sem allra fyrst. Margir íslenskir söfnuðir sem hafa vefsíður fjalla vel um skírnina á heimasíðum sínum. Á vefsíðu þjóðkirkjunnar væri einnig fjallað um rökin fyrir og gegn skírn. Hvers vegna að skíra barnið? Einnig að veita sem bestu upplýsingar um athöfnina, guðforeldra og annað sem viðkemur skírninni og spurningar sem vakna hjá foreldrum. Hafa einnig góðar greinar og frásagnir sem birst hafa um skírn. Skírnarathöfnin og þýðing hennar og bent á skírnarsálma og aðra sálma sem fer vel á að syngja við skírn. Umhverfið í dag Í dag er skírnin miklu meira val en var og mörgum foreldrum finnst sem þeir séu að taka ákvörðun fyrir barnið sitt, sem barnið sjálft á frekar að taka síðar. Kirkjan þarf að mæta nýjum aðstæðum. Hvernig skírir hún unglinga, eldra fólk? Í nágrannakirkjum hefur aukist mjög skírn hinna eldri. Það þarf meira skírnarfræðsluefni fyrir þá sem eru komnir yfir fermingaraldurinn. Sérstök afhöfn „minning skírnarinnar“ er gjarnan höfð við pílagrímagöngur, en mætti hafa oftar við hinar ýmsu bænastundir. Skírnarkveðjan sem foreldrum er færð við skírn núna miðast við ungabarn. Þurfa að vera fleiri form á þessari kveðju. „Drop in“ skírnir hafa gefið góða raun í Danmörku. Rökin eru þau, að þar séu háu þröskuldarnir inn í kirkjuna lækkaðir. Hvernig getur kirkjan komið á framfæri skírn og samfélagi kirkjunnar til nýbakaðra foreldra? Margir eru einir í dag með foreldrahlutverkið, ekki alltaf stuðningur af fjölskyldu. Á kirkjan þar eitthvað erindi? Á kirkjan að bjóða upp á samfélag fyrir fæðingu barnsins
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.