Gerðir kirkjuþings - 2018, Page 37
37
Að láta foreldra velja ritningarvers fyrir barnið sitt. Góð reynsla af því.
Fer vel á að láta eldri systkini fara með og velja fallega bæn.
Kynningarorð skýr.
Leikmenn lesa ritningarlestra.
Hlutverk guðforeldra má efla, biðja sérstaklega fyrir þeim ásamt foreldrum.
Eftir skírn
Ef barnið er ekki skírt í messu, þá er ástæða til að minnast skírnarbarnsins í næstu messu.
Kveikja á kerti við altarið. Bjóða foreldrum/fjölskyldu að koma þá.
Messa skírnarbarna ársins – nafnið þeirra ritað á eitthvað sérstakt kort (epli á tré) og fá
það svo afhent í skírnarmessu ársins.
Feisbókarsíða eða annað sem eftirfylgd við skírnina. Þar gætu birst frásagnir, góðar
hugmyndir um barnauppeldi, föndur o.fl. sem styrkir samband skírnarbarna/foreldra og
safnaðar.
Margt gott verið að gera í tengslum við skírn í söfnuðum landsins, en væri gott að vinna
betur hugmyndabanka, efnisveitu fyrir góðar hugmyndir.
Kirkjan þarf alltaf að vera lifandi og skapandi varðandi skírnina sem er grundvöllurinn
að samfélagi kirkjunnar.
Það þarf að rækta hana stöðugt, skírnin er ein, en á að vera lifandi veruleiki í lífi hins
kristna einstaklings.
Skírnarhópurinn vill vinna áfram að þessu verkefni í samráði við biskupsstofu og
verkefnisstjóra fræðslumála kirkjunnar.
Starfshópur um skírnarfræðslu hefur verið:
Sr. Kristján Valur Ingólfsson, Drífa Hjartardóttir og sr. Sjöfn Jóhannesdóttir sem er
formaður.
Meðfylgjandi er:
• Mynd af skírnarklúti. Prjónaður í kvenfélögum eða eldri borgara starfi og gefin
skírnarbarni. Hann er með trúartáknunum t.d.: Trú, von og kærleikur. Verkefni sem
hófst í Danmörku og hefur reynst mjög vel.
• Heimasíða: Dabskluden.dk
• Nýjar áherslur í skírnarathöfninni sem sr. Kristján Valur tók saman.
F. h. skírnarhópsins,
Sjöfn Jóhannesdóttir