Gerðir kirkjuþings - 2018, Blaðsíða 42
42 43
Kirkjumálasjóður
Áætlaðar heildartekjur sjóðsins eru rúmar 450 millj. kr. en þar af er framlag ríkisins um
316 millj. kr. Almennur rekstrarkostnaður sjóðsins er áætlaður um 54,7 millj. kr., framlög
sjóðsins til Tónskóla þjóðkirkjunnar og Skálholts eru um 29,7 millj. kr. en sú breyting er
á rekstri Tónskólans að rekstur söngmálastjóra hefur verið færður frá Tónskólanum yfir á
kirkjumálasjóð.
Reikna má með að launakostnaður starfsmanna, kirkjuþings, kirkjuráðs og nefnda
verði um 150 millj. kr. á árinu.
Fjárhagsáætlun kirkjumálasjóðs er unnin á þann hátt að eftir að búið er að reikna
rekstrarkostnað starfseminnar færist afgangsstærð á fasteignasvið, það er ekki raun
staða en brýnasta viðhaldsþörf fasteigna sjóðsins eru um 110 millj. kr. á næsta ári. Fastur
rekstrarkostnaður fasteigna er ekki undir 70 millj. kr. á ári.
Kristnisjóður
Áætlaðar tekjur sjóðsins eru 148,4 millj. kr. Kostnaður vegna almennrar starfsemi
er áætlaður 67,2 millj. kr. og veittir styrkir 69,5 millj. kr. Ekki er búið að afgreiða allar
styrkumsóknir í sjóðinn, óafgreiddar umsóknir eru 7,3 millj. kr. Reiknað er með að
sjóðurinn skili rekstrarafgangi á bilinu 4 -11 millj. kr. eftir að búið er að afgreiða allar
styrkumsóknir.
Rekstraráætlun er unnin í samræmi við verkáætlun sviða sjóðsins, launaliðir
eru hækkaðir vegna komandi kjarasamninga, annar kostnaður er hækkaður vegna
verðlagsbreytinga.
Jöfnunarsjóður sókna
Áætlaðar tekjur sjóðsins eru 405,5 millj. kr. Umsóknir í sjóðinn voru um 920,7 millj. kr.
Gerð er tillaga um að 334,9 millj. kr. verði úthlutað úr sjóðnum til sókna landsins, til starfa
erlendis og til æskulýðsmiðsvöðvar í Vatnaskógi. Áætlaður rekstrarkostnaður sjóðsins er
um 13 millj. kr. þar af er áætlað að smíði á umsóknarvef fyrir styrkumsóknir Jöfnunarsjóðs
kosti um 5 millj. kr. Tekjuafgangur sjóðsins leggst við úthlutunarsjóð næstu ára.
Ársreikningar stofnana og sjóða þjóðkirkjunnar fyrir árið 2017 eru lagðir fram sem
fylgiskjöl í þessu máli, þeir liggja líka á biskupsstofu öllum til skoðunar sem það vilja.
Vinsamlega pantið tíma hjá fjármálastjóra til að fá aðstoð við að lesa ársreikningana ef þið
teljið ykkur þurfa þess.