Gerðir kirkjuþings - 2018, Page 66

Gerðir kirkjuþings - 2018, Page 66
66 67 sé reglulega veitt fræðsla um þætti sem snúa að öryggismálum og persónuvernd, auk þess sem reglulega skulu fara fram áhættumat og innri úttektir. Allir starfsmenn innan íslensku þjóðkirkjunnar skulu skrifa undir þagnareið sem helst áfram sé látið af starfi. Þeir sjálfboðaliðar þjóðkirkjunnar sem umgangast persónugreinanleg gögn undirrita samskonar yfirlýsingu um trúnað. Þegar um viðkvæm skjöl er að ræða, sem þurfa að sendast í tölvupósti, skal leitast við að læsa þeim og senda lykilorð í öðrum tölvupósti eða með símaskilaboðum. Þó skal ávallt hafa hugfast að ekki er öruggt að senda viðkvæmar persónuupplýsingar með tölvupósti svo brýnt er að leita annarra leiða við afhendingu slíkra gagna. Gæta skal þess að vinnsluaðilar fylgi öryggiskröfum íslensku þjóðkirkjunnar með gerð vinnslusamninga, þar sem ítarlega er mælt fyrir um heimildir vinnsluaðila og skyldur. Lögð er áhersla á að tölvukerfi þjóðkirkjunnar tryggi viðeigandi tæknilegar og skipu- legar öryggisráðstafanir en komi upp öryggisbrestur við vinnslu persónuupplýsinga skal Persónuvernd tilkynnt um brestinn nema ósennilegt sé að brotið leiði til áhættu fyrir réttindi og frelsi einstaklinga. Sé öryggisbresturinn talinn líklegur til að leiða af sér mikla áhættu fyrir réttindi og frelsi einstaklingsins skal honum jafnframt tilkynnt um brestinn. Í öllum tilvikum skal persónuverndarfulltrúa tilkynnt um öryggisbrest og bresturinn færður á sérstaka skrá yfir öryggisbresti. Réttur einstaklingsins Einstaklingur getur hvenær sem er óskað upplýsinga um hvort íslenska þjóðkirkjan vinni um hann persónuupplýsingar og í slíkum tilfellum óskað frekari upplýsingar um vinnsluna, s.s. hvernig sú vinnsla fer fram og tilgang vinnslunnar. Hann getur óskað þess að fá aðgang að þeim persónuupplýsingum sem hann varða auk þess sem mögulegt er í ákveðnum tilvikum að einstaklingur geti óskað þess að fá upplýsingar um sig leiðréttar eða óskað takmörkunar á vinnslu. Þá getur einstaklingur óskað þess að persónuupplýsingum um sig verði eytt en rétt er þó að geta þess að sá réttur kann að sæta takmörkunum, t.a.m. þegar lög kveða á um skráningu og varðveislu persónuupplýsinga. Íslenska þjóðkirkjan er afhendingarskyldur aðili á grundvelli laga um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 og er því óheimilt að eyða hvers konar gögnum sem borist hafa þjóðkirkjunni. Ljóst er því að almennt eiga þessi réttindi ekki við hvað varðar vinnslu hjá íslensku þjóðkirkjunni. Sé um að ræða sjálfvirka vinnslu persónuupplýsinga sem byggist á samþykki á einstaklingur rétt á að fá upplýsingar sem hann varðar og sem hann hefur sjálfur látið íslensku þjóðkirkjunni í té, á skipulegu, algengu, tölvulesanlegu sniði og eigi rétt á að senda þessar upplýsingar til annars ábyrgðaraðila. Mögulega getur einstaklingur jafnframt átt rétt á að fá upplýsingarnar færðar beint frá einum ábyrgðaraðila til annars, sé það tæknilega framkvæmanlegt. Í þeim tilvikum þegar einstaklingur hefur veitt samþykki fyrir vinnslu upplýsinga, gefst honum kostur á að afturkalla samþykki fyrir vinnslunni, sé enginn lagalegur grundvöllur fyrir henni. Þá á einstaklingur rétt til að andmæla vinnslu persónulegra upplýsinga sem hann varða, vegna sérstakra aðstæðna sinna, byggi vinnslan á almannahagsmunum. Jafnframt getur einstaklingur átt rétt á því að vinnsla sé takmörkuð undir ákveðnum kringumstæðum, t.d. ef vefengt er að persónuupplýsingar sem unnið er með séu réttar.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.