Gerðir kirkjuþings - 2018, Síða 92

Gerðir kirkjuþings - 2018, Síða 92
92 93 Almennt um A, B og C Stærsta verkfæri kirkjunnar er netið og þá sérstaklega Efnisveita kirkjustarfs sem er mikill fjársjóður. Á hverju ári þarf á markvissan hátt að kanna notkun Efnisveitunnar og samræma áframhaldandi vinnu væntingum og þörfum safnaða. Á hverju ári verði boðið upp á námskeið fyrir starfsfólk og leiðtoga til að uppbyggjast og endurnýjast í starfi. Fræðslusvið fylgist með nýjum fræðum og aðferðum í efnisgerð og kennslu og vinnur í nánu samstarfi við útgáfufélag þjóðkirkjunnar; Kirkjuhúsið-Skálholtsútgáfa. Kirkjuþing og kirkjuráð tryggir að Fræðslusvið hafi mannskap, fjármagn og aðstæður til að 1) halda við og þróa Efnisveituna áfram, 2) standa fyrir námskeiðshaldi sem mætir þörfum safnaða um allt land, 3) geti sótt námskeið og aflað sér þekkingar til framþróunar fræðsluefnis kirkjunnar. Almennt um fræðslu: Sóknin er grunneining safnaðarstarfs og að jafnaði er gert ráð fyrir því að grunnþjónusta kirkjunnar sé í boði í hverri sókn. Þar sem prestakall er samsett úr fleiri en einni sókn gengur skipulag starfsins út frá þeirri einingu. Enn fremur er eðlilegt að samstarfssvæði leggi krafta sína saman og eigi samstarf um þá fræðslu sem hagkvæmt þykir að bjóða fram í stærra samhengi. Hlutverk prófastsdæma Innan hvers prófastsdæmis er sett saman áætlun um fræðslumál. Skilgreint hvað gert er í hverri sókn eða prestakalli, hvað innan samstarfssvæðis og hvað á vettvangi prófastsdæmisins í heild. Prófastsdæmi sinni sérstökum verkefnum í unglingastarfi og ungmennastarfi eftir því sem aðstæður leyfa. Á vegum prófastsdæmis sé starfrækt fræðsla meðal fullorðinna í samvinnu við fræðslusvið biskupsstofu þar sem sókn eða prestakall hafa ekki bolmagn til þess. Í prófastsdæmum sé boðið upp á starfsmannaþjálfun svo og námskeið fyrir kennara og annað starfsfólk í fræðslu og uppeldismálum, í samvinnu við þjónustumiðstöð biskupsstofu. Prófastsdæmi geta myndað fræðslusvæði til að sinna fræðsluhlutverki sínu. Innan hvers prófastsdæmis eða fræðslusvæðis sé fræðslufulltrúi sem annist fræðsluna undir umsjón prófasts og í samvinnu við starfsfólk þjónustumiðstöðvar biskupsstofu. Þar sem starfsræktar eru kirkjumiðstöðvar geta þær með samþykki héraðsfunda og eða sókna tekið að sér einstaka fræðsluverkefni svo sem barnastarf á sumrin, skipuleggja fermingarbarnamót og fræðslu fullorðinna á svæðinu. Í Skálholti verði hugað að uppbyggingu miðstöðvar fyrir fræðslu og þjálfun starfsfólks. Þjónustumiðstöð biskupsstofu Starfsfólk þjónustumiðstöðvar biskupsstofu hefur það hlutverk að fylgja eftir
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111

x

Gerðir kirkjuþings

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.