Gerðir kirkjuþings - 2018, Síða 100

Gerðir kirkjuþings - 2018, Síða 100
100 101 opinskárra umræðna á öllum starfsstöðum kirkjunnar og veita almenna fræðslu um eineltismál. Stefnan er jafnframt birt á innri og ytri vef þjóðkirkjunnar. Starfsfólk, sem með framkomu sinni orðum, viðmóti eða atferli beitir samstarfsfélaga sína eða þá sem leita til þjóðkirkjunnar um þjónustu, ofbeldi hvort sem um er að ræða einstakt tilvik eða ítrekað telst brjóta grundvallarreglur samskipta. Slík hegðun getur m.a. leitt til áminningar, tilfærslu í starfi eða eftir atvikum brottvikningar. Stefna þjóðkirkjunnar. Stefna þjóðkirkjunnar við að vinna gegn einelti, áreitni og ofbeldi er að kirkjan verði ætíð fjölbreyttur vinnustaður sem leggur áherslu á að skapa og viðhalda starfsumhverfi þar sem gagnkvæm virðing, traust, heiðarleiki og faglegt viðmót er í hávegum haft í öllum samskiptum. Allt starfsfólk og allir þeir sem njóta þjónustu þjóðkirkjunnar skuli njóta jafnræðis án tilllits til uppruna, þjóðernis, litarháttar, trúarbragða, stjórnmálaskoðana, kynferðis, kyntjáningar, kynhneigðar, aldurs, efnahags, ætternis, fötlunar, heilsufars eða annarrar stöðu. Markmið. Innan þjóðkirkjunnar líðst ekki einelti, kynferðislegt áreitni, kynbundið áreitni og ofbeldi í starfsumhverfi hennar né gagnvart þeim sem njóta þjónustu kirkjunnar. Þjóðkirkjan ásetur sér að vinna að eftirfarandi meginmarkmiðum: • Tryggja og viðhalda heilbrigðu og öruggu starfsumhverfi fyrir allt starfsfólk og alla þá sem hagsmuna hafa að gæta og njóta þjónustu þjóðkirkjunnar. • Vinna að forvörnum gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi af hvers lags tagi t.d. með fræðslu og vitundarvakningu. • Bregðast skjótt við kvörtunum og tilkynningum sem berast og varða einelti, áreitni og ofbeldi á vinnustöðum kirkjunnar samkvæmt verkferlum um málshraða. Leggja skal áherslu á að ljúka vinnslu tilkynningar eins fljótt og auðið er. • Vinna eftir samræmdum verkferlum um einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni og ofbeldi, á faglegan og óhlutdrægan hátt. • Gæta jafnræðis og nærgætni í öllum aðgerðum hvort heldur gagnvart þeim sem tilkynnir um ofbeldi sem og þeim sem kvartað er yfir. Forvarnir. Einelti og áreitni getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir heilsu og líðan fólks. Þær afleiðingar geta komið fram sem andlegir og/eða líkamlegir kvillar eða breytingar í hegðun hjá þeim sem verða fyrir einelti eða öðru ofbeldi. Sé ekki gripið inn í aðstæður og ferli eineltis eða áreitnis stöðvuð, er hætta á að skaðinn verði bæði langvinnur og djúpstæður. Mikilvægt er að bregðast fljótt og markvisst við kvörtunum um einelti og áreitni á vinnustað til að tryggja vellíðan einstaklingsins. Við gerð áætlunar um heilsuvernd skal þjóðkirkjan gera áætlun um forvarnir þar sem meðal annars kemur fram til hvaða aðgerða skuli gripið í því skyni að koma í veg fyrir einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni og ofbeldi á vinnustað. Í því sambandi
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111

x

Gerðir kirkjuþings

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.