Gerðir kirkjuþings - 2018, Page 106
106 107
Til þess að auðvelda framsetningu og vinnslu máls er starfsfólk hvatt til þess að skrá hjá sér
atvik og hegðun þá sem um ræðir, þar sem fram koma tíma- og dagssetningar, nöfn þeirra
sem voru e.t.v. viðstaddir og aðstæður þegar atvik átti/áttu sér stað. Einnig að skrá ítarlega
ef viðkomandi hefur rætt við meintan geranda um hegðunina og hvað aðilum fór á milli.
Ferlið.
1. Tilkynning berst teymi.
2. Teymið ræðir við tilkynnanda.
3. Teymið gerir verkáætlun í samvinnu við tilkynnanda.
4. Teymið boðar til fundar meintan geranda og upplýsir hann um umkvörtunarefnið.
5. Teymið ræðir við aðra sem kunna að hafa upplýsingar eða vitneskju um málið eða
eru vitni í málinu.
6. Teymið skilar af sér greinagerð með rökstuddri niðurstöðu.
Öryggi og heilbrigði á vinnustað.
Til að koma í veg fyrir óviðeigandi hegðun og auka líkur á ánægju í starfi ber að gera
áhættumat á vinnustöðvum reglulega. Áhættumat er gert meðal annars með því að greina
áhættuþætti er varða:
• Hegðun á viðkomandi starfsstöð þar sem kirkjuleg yfirvöld og/eða starfsfólk geta átt
hlut að máli.
• Samskipti starfsfólks viðkomandi starfsstöðvar við einstaklinga sem ekki teljast til
starfsfólks staðarins en samskiptin eiga sér stað í tengslum við þá starfsemi sem
fram fer þar.
Áhættumat skal byggjast á öllum tiltækum upplýsingum þar sem m.a. skal tekið tillit til
andlegra og félagslegra þátta í tengslum við vinnuaðstæður á starfsstöð, þar sem litið skal
til eftirfarandi þátta:
• Fjölda starfsfólks
• Aldurs starfsfólks.
• Kynjahlutfalls meðal starfsfólks.
• Ólíks menningarlegs bakgrunns starfsfólks.
• Hugsanlegra örðugleika meðal starfsfólks í tengslum við talað og/eða ritað mál.
• Skipulags vinnutíma.
• Vinnuálags.
• Eðli starfs/starfa á starfsstöðinni.
• Hvar/hvernig vinnan fer fram.
Þjóðkirkjunni ber að vera með áætlun um heilsuvernd, sbr. 66. gr. laga um aðbúnað,
hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum nr. 46/1980, með síðari breytingum. Til
heilsuverndar telst verndun líkamlegar og andlegrar heilsu. Í áætlun um heilsuvernd er
því m.a. tekið á forvörnum og viðbrögðum til að koma í veg fyrir og til að bregðast við ef
upp koma mál tengd einelti, áreitni og ofbeldi.
Ofbeldi og einelti er ekki liðið á starfsstöðum þjóðkirkjunnar og allir eiga að njóta sín í
starfi og fólk á að geta leitað öruggt í þjónustu þjóðkirkjunnar.