Stefnir - 01.10.1951, Page 7

Stefnir - 01.10.1951, Page 7
VÍÐSJÁ 5 mjög hverfulir og breytilegir eftir árstíðum. íslenzk fiskiskip sækja lítt á mið annarra þjóða. íslendingar biðjast þess eins að fá að hafa í friði fiskimiðin við strendur sínar, sem eftir bæði guðs og manna lögum hljóta fyrst og fremst að vera eign þeirrar þjóðar, sem Island bygg- ir. ísland er skýrt afmarkað frá öðrum löndum, og landgrunnið umhverfis landið er einnig skýrt armarkað. Það er því í alla staði réttlátt, að þetta landgrunn sé innan íslenzkrar landhelgi. Það er líka sú krafa, sem íslendingar munu ekki hvika frá — að allir firðir og flóar og landgrunnið allt verði talið innan íslenzkrar landhelgi og eign Islendinga einna. Með þeirri kröfu sinni eru íslendingar ekki að ganga á rétt nokkurrar þjóðar. Því miður skortir þá máttinn til þess að á- kveða slíka stækkun landhelg- innar með einhliða yfirlýsingu eins og Rússar og Bandaríkja- menn, en þeir geta ekki trúað því, að nokkur réttsýn og sann- gjörn þjóð standi gegn þessu rétt- lætismáli þeirra, því afi líf þjó'ð- arinnar og efnahagslegt sjálf- stœSi hennar er í veði, ef þessit fœst ekki framgengt innan skamms. Rússar og íslenzk landhelgi. Bretar geta þó vitnað til þess kröfum sínum til stuðnings, að þeir verji sjálfir aðeins þriggja mílna fiskveiðilandhelgi fyrir sínu landi, en þar gegnir öðru máli með Rússana. Þeir banna öllum veiðiskipum og reyndar öRum skipum að koma nær sín- um ströndum en 12 mílur. Þrátt fyrir það hafa þeir hvað eftir annað farið inn í íslenzka land- helgi og jafnan haft í frammi mótmæli, er íslenzk varðskip hafa tekið þá. Þar sannast sem oftar, að kommúnistum finnst sjálfsagt, að um þá gildi önnur lög en aðra menn. Islenzkir kommúnistar hafa lika talið það hlægilegt, er ágengi Rússa hefur verið átalin, því að ekki hefur mátt móðga herra-þjóðina. Þeir eru alltaf samir við sig með und- irlægjuháttinn við Rússa. Frjdls verzlun. I næstum tvo áratugi hafa margvíslegar hömlur verið á innflutningsverzlun íslendinga. Frameóknarmenn eru höfundar verzlunarhaftanna og nutu þar dyggilegs stuðnings sálufélaga sinna, kratanna. Nú hafa hins vegar verzlunarhöftin gengið sér svo til húðar, að Framsóknarmenn

x

Stefnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.