Stefnir - 01.10.1951, Blaðsíða 27
MENN OG MÁLEFNI
25
taka. Má í því sambandi geta
þess, að liann flutti fyrstur frum-
varp um sundskyldu í skólum,
og var hvatamaður að sund-
laugarbyggingu í Eyjum. Hann
var einnig fyrsti flutningsmað-
ur að frv. um, að gjafir til
vinnuheimilis Sambands ísl.
berklasjúklinga skyldu undan-
þegnar sköttum. Fékk hann það
mál samþykkt í þingdeild sinni,
enda þótt öll nefndin, sem um
það fjallaði væri því mótfallin.
Er það mjög óvenjulegt á þingi.
Var sá sigur ekki sízt að þakka
rösklegri og þróttmikilli mála-
fylgju Jóhanns Þ. Jósefssonar.
En þessi skattfríðindi urðu
ein sterkasta stoðin að hinu stór-
merka starfi S.Í.B.S. í baráttunni
gegn berklaveikinni. Það var
einnig fyrir ötula baráttu hans
að annað björgunar- og varðskip
Var keypt í stað gamla Þórs,
sem strandaði og eyðilagðist
norður við Húnaflóa. Björgunar-
og öryggismál hafa alla tíð notið
öflugs stuðnings Jóhanns og hann
oft staðið þar í fylkingarbrjósti,
og er þar skemmst að minnast
baráttu hans í flugöryggismál-
um.
Formaður nýbyggingaráðs
og ráðherra.
Einn hinn merkasti þáttur í af-
skiptum Jóhanns Þ. Jósefssonar
af opinberum málum er for-
mennska hans í Nýbyggingarráði.
Það kom í hlut þeirrar stofnun-
ar að hafa forystu um þær miklu
framkvæmdir, sem ríkisstjórn 01-
afs Thors, er mynduð var árið
1944, beitti sér fyrir. Ólafur
Thors þekkti starfhæfni Jóhanns
Þ. Jósefssonar, þekkingu hans
og reynslu á sviði atvinnumála.
Hann fékk hann því til þess að
taka að sér formennsku í Ný-
byggingarráði. Gegndi Jóhann
því starfi af áhuga og dugnaði
meðan sú stofnun var til eða til
árins 1947. Mun það mál allra
þeirra, er þangað leituðu vegna
margvíslegra framkvæmda, að
þeir hafi jafnan átt glöggum
skilningi að mæta hjá formanni
þess, ekki síður en öðrum nefnd-
armönnum. Vel má vera, að við
Islendingar höfum á þessu tíma-
bili verið helzt til stórhuga og
færzt of mikið í fang. En þeirri
staðreynd verður aldrei haggað,
að það starf, sem Nýbyggingarráð
vann undir forystu Jóhanns Þ.
Jósefssonar, hefur orðin þjóðinni
til mikillar blessunar og farsæld-
ar
Þegar ríkisstjórn Stefáns Jóh.
Stefánssonar var mynduð,
snemma árs 1947, varð Jóhann
Þ. Jósefsson fjármálaráðherra og