Stefnir - 01.10.1951, Síða 43
INNLEND STJÓRNMÁL
41
koma í veg fyrir að kommúnistar
fái aðstöðu til þess að misnota
ýmsa vitneskju um ráðstafanir um
öryggismál þjóðarinnar, sem ut-
anríkisnefnd er í té látin.
Aliar vestrænar lýðræðisþjóðir
ir líta nú á kommúnista sem
skemmdarvarga og brennumenn.
Með þessu frumvarpi er sú skoð-
un staðfest, að þeim sé enginn
trúnaður sýnandi, þegar um hin
örlagaríkustu mál er að ræða. Hér
er því um miklu stærra spor að
ræða en virðast kann í fljótu
bragði. Kommúnistar hafa í raun
og veru verið settir utan garðs.
Þar munu þeir verða um allan
aldur ef lán þessarar þjóðar er
meira en gæfuleysi.
24/11. ’51. — S. Bj.
FILIPUS, Makedoniukonungur, efndi oft til samkeppni við hirð
sína milli hinna frægustu listamanna þeirra tíma. Ein slík keppni
var á milli málaranna Zeuxis og Parrhasius.
Zeuxis málaði vínberjaklasa, sem var svo eðlilegur, að fuglar
reyndu að éta vínberin. Dómararnir voru stórhrifnir, og Zeuxis,
sem nú var viss um sigur sinn, snéri sér stoltur að keppinaut sín-
um og bað hann að draga til hliðar flauelstjaldið, sem huldi mynd
hans. Parrhasius brosti, því að tjaldið, sem Zeuxis áleit raunveru-
legt, var einmitt myndin sjálf.
★
MÁLGEFINN rakari hafði mælt með ýmiskonar snyrtingu við mann-
inn í rakarastólnum, en árangurslaust. Viðskiptavinurinn hélt því
fram, að hann þyrfti hvorki höfuðbað, handsnyrtingu né rakstur —
heldur aðeins klippingu.
Eftir að rakarinn hafði nokkra stund þagað við að klippa hann,
sagði hann: „Hár yðar er byrjað að grána dálítið, herra.“
„Mér kemur það ekkert á óvart,“ hreytti viðskiptavinurinn út úr
sér. „Hvers vegna reynið þér ekki að halda betur áfram?“
★
Engin vinna er eins þreytandi og iðjuleysið, því að þá er aldrei
hægt að hvíla sig.