Stefnir - 01.10.1951, Qupperneq 31
MENN OG MÁLEFNI
29
borið hefur gæfu til forystu um
margvíslegar umbætur og fram-
farir ekki aðeins í því byggSar-
lagi, sem hann hefur veriS full-
trúi fyrir á Alþingi í rúman ald-
arfjórSung, heldur fyrir þjóSina
í heild. Hæfileikar hans hafa skip-
aS honum í sveit fremstu stjórn-
málamanna þjóSarinnar. Hann er
einn þeirra manna, sem hafizt
hafa af sjálfum sér, skapaS sér
sjálfum menntun sína og lífs-
gengi. Allt frá því, aS hann vann
fiskvinnu í Eyjum í æsku sinni
fyrir 8 aura á klst., og til þess er
honum voru falin hin þýSingar-
mestu störf fyrir þjóS sína, hefur
hann gengiS aS vinnu sinni af
dugnaSi og ötulleik.
Jóhann Þ. Jósefsson er nú orS-
inn 65 ára. En starfsþrek hans er
óbilaS. Hann á enn mörg áhuga-
mál, sem hann mun halda áfram
aS berjast fyrir af áhuga og
einbeitni, byggSarlagi hans og
þjóSfélagi til vegs og farsældar.
S. Bj.
MAÐUR nokkur kom inn í rakarastofu með lítinn snáða með sér.
MaSurinn settist í stólinn og var klipptur, rakaður, þveginn og
ilmborinn eftir öllum kúnstarinnar reglum og stóð síðan á fætur
til að borga. „Ég þarf að skjótast burtu, en kem aftur eftir stund-
arfjórðung,“ sagði hann, „en á meðan getið þér klippt þennan
snáða. Rakarinn gerði það, en síðan liðu þrír stundarfjórðungar, og
enginn „pabbi“ lét sjá sig. „Kemur faðir þinn ekki bráðum aftur,
spurði hann að lokum. „Þetta var ekki faðir minn,“ svaraði stráksi.
„Það var bara maður, sem spurði mig, hvort mig langaði ekki til
þess að fá ókeypis klippingu.“