Stefnir - 01.10.1951, Page 15

Stefnir - 01.10.1951, Page 15
ÚTBURÐURINN 13 fyrir þá tuggu. En þegar hann kom þangað sem fellið átti að vera, þá var þar ekkert fell, það reis þverhnýptur hamar upp af mýrinni í stað hinnar grasivöxnu brekku, ókleifur hamar grár af hrími og snjósalla. En það sem hann furðaði mest á, var reyndar ekki þetta, það var annað og miklu meira: I hamarinn var greypt stór mvnd af konu, — svo eðlileg að hún var næstum ekki eins og mynd; hún starði lifandi augum út úr berginu, út úr snjó og hrími, sem huldi hár hennar og andlit og tindraði dauflega í hinu guggna ljósi morg- unsins. En hún hreyfði sig ekki freka- en steinninn. því að steinn var hún þrátt fyrir allt, stein- runnin; í það minnsta samfrosta við steininn. Og allt í einu þótt- ist Greipur Finnbogason þekkja hana: þetta var konan frá í gær- kvöldi, Guðrún Þórðardóttir. Langa stund stóð hann í sömu sporum og starði upp til hennar. Hvers vegna var hún þarna? fannst honum hann hugsa, — hún hafði ætlað upp að Heiði. Hafði hún gengið í fellið, konan, í stað þess að klífa það, og fellið síðan steypt hamraþil og greypt gest sinn í það kvikan,öllum vegfar- endum til aðvörunar? Eða var hér verið að gera honum — Greipi Finnbogasyni frá Gullberastöðum — tækifæri til hetjudáðar? Til björgunarafreks? Var honum hér gefinn kostur á að frelsa líf? í stað þess lífs, sem hann hafði látið farast? Brjóta hamarinn utan af Guð- rúnu, svo að hann sjálfur losnaði úr sínum eigin hamri og fengi á ný þegnrétt í samfélagi mannanna? — Þetta þóttist hann í draumnum ígrunda langa hríð. En því lengur sem hann stóð hugsandi andspænis ráðgátunni, því þróttminni varð hann og úrræðalausari. Og allt í einu greip hann lamandi ótti, hann vissi ekki við hvað: við sjálfan sig? Við himin og jörð? Við konumyndina í hamrinum? — Einhver geig- vænleg hætta steðjaði að honum, svo mikið var víst, en þar sem hann Guðmimdur Daníelsson.

x

Stefnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.