Stefnir - 01.10.1951, Blaðsíða 18

Stefnir - 01.10.1951, Blaðsíða 18
56 STEFNIR Allt í einu rankaði maðurinn við sér. Ein stök hugsun fló hvöss og lýsandi gegnum meðvitund hans‘ „Glæpur.“ „Ekki hefði Guðrún Þórðardóttir falið afkvæmi sitt hér í nótt og yfirgefið það, ef ekki væri um ódæðisverk að ræða,“ hugsaði maður- inn ennfremur. Hann minntist þess og sem sagt er, að djölullinn hjálpi þeim konum í harnsnauð, sem illt hafi í hyggju, og fyrir hans fulltyngi megni þær að losa sig við þungann líkt og búpeningur- inn: án sængurlegu eða sýnilegra áhrifa á líkamlega heilsu. „En þetta gerir þó engin kona, nema hún finni sig til þess neydda,“ datt honum allt í einu í hug. „Það skyldi þó ekki vera að Jón Hafliða- son ætti sökina, — ég og Jón fóstri?“ Greipur Finnbogason laut niður, vafði handklæðinu á ný utan um barnslíkið og kom því fyrir í klettasmuginni á sama hátt og það hafði áður verið, nema-hvað hann byrgði opið nú betur, svo hvorki kæmist í bráð að því hundur eða hræfugl; hann ætlaði að halda áfram ujjp að Heiði og vita hvers hann yrði vísari. Hann hafði þá kynlegu tilfinningu á göngu sinni upp eftir mýr- inni, að hann væri ekki lengur einn síns liðs, heldur hefði eignazt félaga. Hundrað sinnum hafði hann gengið þessa leið undanfarin tólf ár, allt frá því hann keypti lausamannsbréfið og flutti reitur sínar til Hafliða bróður síns á Gullberastöðum, úthrópaður sem hálfgildings morðingi, eins og hann líka var, þó að lögum yrði ekki yfir hann komið; maður dæmdur til einsemdar af öllum. En nú fannst honum Guðrún Þórðardóttir með einhverjum hætti vera til sín komin, þramma hér þegjandi við hlið sér, albúin til ævilangrar fylgdar. Hún bar eitthvað á bakinu eins og hann, gekk lotin undir byrði. Þungur hafði Hjörtur Bjarnason reynzt-Greipi undangengin ár, en varla mundi útburðurinn á sauðafellinu verða Guðrúnu léttbærari. Það er fótaferð á Heiði, þegar Greip ber að Garði, — allir á fót- um. Ketill Hjálmarsson farinn út í fjós til gegninga, Elísabet tekin að sýsla við matseld í búri og eldhúsi. Séra Hjálmar hefur alla tíð verið árrisull, en nú i elli hans er þessi dyggð að verða honum hvimleiður heilsubrestur og börnum hans tveimur, þeim Katli og Elísabetu, þreytandi raun. Þau hafa ekki svefnfrið þegar á nóttina líður, þrusk og umgangur öldungsins fyllir gamla timburhúsið og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Stefnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.