Stefnir - 01.10.1951, Side 21

Stefnir - 01.10.1951, Side 21
ÚTBURÐURINN 19 bauð hér heim einferlismanni og útburði hans. Hingað bar hann byrði sína, inn í eitt dýpsta gjögrið, þangað sem bringa fellsins var brotin upp. „Hér,“ sagði hann upphátt og lagði barnskroppinn frá sér. Hann var nú staddur inni í fellinu. Skútinn var eins og lmefi, sem holaður hefur verið að innan; eins og brjóst þar sem hjartað hefur verið sniðið burt. Ávalt brjóst og hjartalaust, ha-ha! og fram úr kross- sprungu þar inni sytraði lítil vatnsrás skrafandi eitthvað við örður og hnökra farvegsins, tautandi sjálfs síns þanka við tómlátt um- hverfið, eins og ellin blind meðan hún þreifar í kringum sig eftir grafarbarminum sínum. „Hér,“ sagði Greipur Finnbogason öðru sinni og huldi útburðinn. Hann dysjaði hann nakinn milli steina og safnaði öllum smástein- um skútans á einn stað: yfir og allt um kring glæp Guðrúnar Þórð- ardóttur, og sinn eigin fjársjóð. En koddaverinu hennar stakk hann í töskuna. Og gekk á brott. Hann þurfti heim eins og aðrir ■—■ heim á Gullberastað. MAÐUR nokkur, sem hélt á stól í hendinni, kom til eigandans í fornverzlun, og spurði hvers virði stóllinn væri. „Fimmtíu króna virði,“ svaraði fornsalinn. Ungi maðurinn setti upp undrunarsvip. „Er hann áreiðanlega ekki meira virði?“ „Fimmtíu krónur er hámarkið, vinur minn,“ svaraði fornsalinn og hristi höfuðið. „Sjáðu þetta?“ Hann benti á brotalöm á einum stólfætinum. — „Og síðan hérna, þar sem málningin er farin að mást af.“ „Jæja, það er ágætt,“ sagði ungi maðurinn og tók upp veski sitt. „Ég sá þenna stól hérna fram við dyrnar og sá hann var merktur 160 krónur, en ég hélt það hlyti að vera mistök. En fyrir 50 krónur vil ég kaupa hann.

x

Stefnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.