Stefnir - 01.10.1951, Page 36
34
STEFNIR
ir annað að viðurkenna, að and-
stæðingar mínir höfðu haft rétt
fyrir sér í gagnrýni sinni á
kommúnismanum og að sjálf
þróunin hefði sannað, að ég hafði
rangt fyrir mér.
Framferði hinna sigursælu
rússnesku hersveita í Austur-
Evrópu og Þýzkalandi — þess-
ara hersveita, sem eru framleiðsla
okkar nýju öreigamenningar, -—-
hin ruddalega meðferð á bænda-
leiðtogunum í Póllandi, Búlgaríu
og fleiri löndum, allt þetta og
margt fleira, sem ég áður hafði
varið með tilvísun til þess, að
tilgangurinn helgaði meðalið,
byrjaði nú að angra mig, í stuttu
máli sagt, byrjaði ég á að líta á
gott og illt sem ákveðin verð-
mæti. Mér varð ljóst, að það er
ekki hægt að þroska mannkynið
með því að leita niður til ómenn-
ingarinnar, og að sú heimspeki,
sem réttlætti þetta, hlyti að vera
röng í grundvallaratriðum.
Ég missti hina kommúnistisku
trú mína af því að ég fann eða
komst í tengsli við trú, sem var
verðmætari og gildismeiri. Ég
óskaði ekki eftir að losa mig við
mína kommúnistisku trú, og barð-
ist gegn þeirri andlegu og vits-
munalegu þróun, sem ég fann
að var að gerast.
Þetta var ástæðan til þess, að
það liðu fimm ár, þar til ég var
reiðubúinn að yfirgefa að fullu
kommúnismann og alla þá, sem
höfðu verið vinir mínir og sam-
starfsmenn í svo mörg ár.
Það kostaði mig einnig mánað-
arlanga baráttu, áður en ég gat
að nýju farið að trúa á þann guð,
sem ég áður hafði afneitað. En
það endaði með því, að ég
beiddist upptöku í hina katólsku
kirkju, og þar á eftir kom svo
úrsögn úr flokknum.
Þetta var aðeins fáum vikum
eftir atburðina í Tékkóslóvakíu
og dauða Jan Masaryk. Þeir at-
burðir skelfdu alla, sem gátu
hugsað sjálfstætt.
ÞANN DAG, sem ég sagði mig
úr flokknum fannst mér ég vera
fullkomlega einangraður. Leiðin
frá Kreml að Vatikaninu var
löng og hlaðin prófraunum, og
mér fannst ég vera mjög einmana.
Þegar fréttin barst út með
blöðunum og á annan hátt, leið
ekki á löngu þar til mér barst
sægur af bréfum frá fólki sem
hafði svipaðar skoðanir og ég,
og sem sannfærðu mig um það,
að ég stóð ekki einn. Mér skildist,
að ómannúð og siðleysi komm-
únismanns hafði einnig sín áhrif
á fleiri en mig. Grundvallarvilla
hinna marxistisku skoðana var