Stefnir - 01.10.1951, Side 42
40
STEFNIR
steypustjórnirnar sitja að völd-
um. Þeir munu þvert á móti fá
vaxandi spillingu, þverrandi á-
byrgðartilfinningu og aukið los í
stjórnarframkvæmdir.
Þetta er engin hrakspá, aðeins
raunsæ ályktun, dregin af reynslu
okkar sjálfra og fleiri þjóða, sem
við slíkt skipulag hafa búið.
Alþingi kom að
Fjárlög þessu sinni saman
nœsta árs. 1. október. Höfuð-
verkefni þess til
þessa hafa verið fjármál og ut-
anríkismál.
Fjármálaráðherrann lagði frum-
varp til fjárlaga fyrir næsta ár
fram í þingbyrjun eins og lög gera
ráð fyrir. Varð það vel undirbú-
ið og rækilega eins og vænta
mátti. Er þar gert ráð fyrir að út-
gjöld ríkissjóðs á næsta ári hækki
um 60 millj. kr.
Flokkur fjármálaráðherra hafði
undanfarna mánuði deilt mjög
harðlega á meirihluta Sjálfstæð-
ismanna í bæjarstjórn Reykjavík-
ur fyrir hækkun útsvara með
framhaldsniðurjöfnun um 6 milj.
kr. Var sú gjaldheimta nauðsyn-
leg vegna hækkaðs kaupgjalds og
vaxandi dýrtíðar. Vegna afstöðu
Framsóknarmanna til þessarar
ráðstöfunar höfðu margir húizt
við mikilli sparnaðarviðleitni og
jafnvel lækkun skatta hjá fjár-
málaráðherra. En slík viðleitni
hefur ekki enn séð dagsins ljós í
fjármálaráðuneytinu. Þetta fjár-
lagafrumvarp ber óvíða með sér
sparnað, svo ekki sé sterkara að
orði komist. Viðskiptamálaráð-
hefur fækkað um 47 starfsmenn
í fjárhagsráði og útibúum þess.
Með því sparast 1,6 milj. kr. á
ári. Fjármálaráðherrann hefur
ekki treyst sér til að hefja neina
allsherjar sparnaðarheferð. Tím-
inn minnist nú alls ekki á nauð-
syn þess að ríkisbáknið sé fært
saman. Allir skattar og tollar fá
að lifa áfram. Hinsvegar er þjóð-
in hvött til þess að spara.
Alþingi fjallar nú um þetta
frumvarp. Trúlega hækkar það
um a. m. k. einum milljónatug í
meðferð þess. Væntanlega verða
fjárlög afgreidd fyrir jól og er
það vel. Munu þau verða rædd
hér nánar, þegar þau hafa verið
samþykkt.
Lýðræðisflokkarn-
Utanríkismál. ir á Alþingi hafa á
þessu þingi flutt
frumvarp, sem markar tímamót í
afstöðu þeirra til kommúnista.
Er þar lagt til að utanríkismála-
nefnd kjósi þriggja manna undir-
nefnd til þess að vera ríkisstjórn-
inni til ráðuneytis um utanríkis-
og öryggismál.
Með þessu er stefnt að því að