Stefnir - 01.10.1951, Síða 57

Stefnir - 01.10.1951, Síða 57
ELDGOSIÐ 55 sýkja svo öndunarfærin, að fyrr eða síðar myndum við verða gripin svima og falla og kveljast til dauða. Djúpt undir fótum okkar heyrðum við allt í einu dimm- ar skruðningar og við snarstönz- uðum. Daufur brestur og síðan sömu skruðningarnar aftur. Ég leit á fölt andlit Mary og reyndi að lesa úr augum hennar hvað þessi hávaða boðaði. Þá greip hún hönd mína. „Fljótt“, sagði hún, „við verð- um að flýta okkur yfir hraunið. Eftir stutta stund opnast fjallið og það gerir það fyrst þar sem skorpan er þynnsst. Komið! Eitr- uð brennisteinsgufan gaus upp og vindurinn bar gufuna á móti okk- ur. Við fundum til sviða í munni og nefkoki. Það var aðeins um eitt að ræða, meðan við höfðum þunna hraun- lagið framundan okkur — taka til fótanna, í hvert skifti, sem vindurinn bar gufuský á móti okkur, og hlaupa þvert í gegnum það, með hendurnar fyrir munni og nefi. Fyrst þegar við vorum komin yfir hraunlagið var vind- urinn okkur til hagræðis, því þá feykti hann gufunni í áttina frá okkur. Að lokum komum við að 180 metra beltinu, sem var hið eigin- lega hættusvæði. Mér fannst hraunið brenna undir fótum mér. Gúmmíhælarnir á stígvélunum mínum bráðnuðu og klesstust fastir í grjótið. Tíu metra frá okkur til hægri, gaus upp í loftið þunnur, heitur gufustrókur. Vindurinn feykti honum yfir stíginn að baki okkar. Það fór hrollur um mig. Á því andartaki, sem slíkur gufustrókur gysi upp fyrir framan okkur, myndum við ganga beint inn í dauðann. Undir þunnri jarðvegs- skorpunni heyrðum við þrumur af eldi og sjóðandi hraunleðju og dimmir skruðningar í brenn- andi grjóthnullungunum, sem skullu saman. Fimmtíu metrar — fimmtíu metra enn. Svo hnaut ég. Meðan ég lá með andlitið niður við brennandi heitt hraunið fann ég brennisteinsfýluna fylla lung- un. Ég fann til svima og þyngsla í höfðinu, reis upp, skjögraði og féll aftur. Hóstandi reis ég upp á ný og samtímis sá ég Mary skjögra tvo metra fyrir franan mig og með hásri stunu hneig hún niður í gufuskýið, sem steig upp um sprungu á hrauninu undir fótum hennar. Ég lyfti henni upp og sá að hún hafði misst meðvitundina. Meðan ég hélt áfram yfir hraunið með Mary í fanginu, gusu upp tvær gufu-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Stefnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.