Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1938, Qupperneq 45
43
hreppum, sem um getur, ákvað berklaýfirlæknir að framkvæma
gegnlýsingar í stórum stíl og' styðjast við niðurstöður berklapróf-
anna við val á þeini einstaklingum og heimilum, sem skoðuð yrðu.
Var ákveðið að skoða fyrst og fremst allt fólk á þeim heimilum,
þar sem öll börn voru Pirquet eða Moro +> svo> eftir því sem við
yrði lcomið og tími ynnist til, alla á þeim heimilum, þar sem eitt-
hvert barn hafði reynzt tb. —j—, og loks ýrnsa grunsamlega einstakl-
inga, eftir því sem til næðist. Gegnlýsingar þessar voru svo fram-
kvæmdar hér á Eyrarbakka af berklayfirlækni um miðjan júní-
mánuð, en sökum þess, hve áliðið var sumars, reyndist torvelt að
ná öllum þeim til skoðunar, sem þurft hefði og ætlunin var. Alls
voru gegnlýstir 353 menn frá 113 heimilum. Hjá engum hinna skoð-
uðu sást „cavum“ með nokkurri vissu, en ákveðið var að gera sýlda-
rannsóknir á uppgangi frá öllum þeim, sem grunsamlegir þóttu, en
þær rannsóknir reyndust allar neikvæðar. Sú gáta var því enn óráð-
in, hver eða hverjir hefðu sáð út smitinu, og ekki varð séð, að
írekara væri unnt að aðhafast fyrst um sinn. Ég hélt þó áfram rann-
sóknum á uppgangi frá öllum þeim, sem nokkur minnsti grunur gat
heinzt að. í þessari lotu var uppgangur rannsakaður frá 29 alls og
ræktaður frá 5 af þeim. Þessi leit bar þann árangur, að hinn 17. júlí
fannst smit hjá 67 ára gömlum bónda í Gaulverjabæjarhreppi og
snemma í ágústmánuði hjá 9 ára gamalli telpu hér á Eyrarbakka og
loks hinn 10. október hjá fimmtugri bóndakonu í Gaulverjabæjarhreppi.
Nú reis sú spurning, hvort sjúkleiki sá, sem mestum ugg olli í þorp-
inu, gæti stafað af innanskólasmiti, og þá, hvort þessi litla stúlka
kynni að vera smitvaldurinn. Það, sem benti til þess, að um innan-
skólasmit væri að ræða, var sú staðreynd, að þeir, sem sýktust,
voru svo að segja einvörðungu börn á skólaaldri, og fyrst nú var
fundið smitandi skólabarn, þá virtist í fljótu bragði liggja beinast við
að rekja sýkinguna þangað, en ef ekkert skólabarnanna væri smit-
andi nema þessi eina litla stúlka, var þó sitt hvað, sem mælti gegn
þessu. Fyrst er þá þess að g'eta, að í 2. bekk, sem telpan var í, höfðu
ekki veikzt nema 4 börn, að henni meðtalinni, af 20 börnum, sem í
bekknum voru, en í 3. beklc höfðu aftur á móti veikzt 10 börn af 21.
í öðru lagi var það eftirtektarvert, að hjásætur hennar 2 voru vel
frískar, og það sem enn merkilegra var, báðar Moro -f- í vor sem leið.
Um sinn verður saga þessa máls ekki sög'ð lengra en til ársloka 1938.
Það, sem síðan hefir gerzt, tilheyrir væntanlegri skýrslu fyrir árið
1939. Þar til hún verður skráð, er þess að vænta, að eitthvað verði
ljóst af því, sem nú er hulið. 1 maímánuði var gert bei’klapróf í 4
hreppum, Eyrarbakka-, Stokkseyrar-, Sandvíkur- og Ölfuss-. Voru
prófuð öll börn á aldrinum 1—15 ára (incl.). Ymist var notað Moro-
cða Pirquetpróf eftir aldri barnanna, þó þannig, að í hinum 3 fyrst
töldu hreppum var Moropróf notað á aldrinum 1—12 ára (incl.), en í
Ölfushrepi 1—10. Breytingin var eingöngu gerð af því, að þegar í
Ölfusið kom, var túberkúlínsmyrslið á þrotum og meira ekki fáan-
legt. Árangur prófanna var allt af skoðaður eftir 72 klst.
Giimsnes. I haust gerði ég túberkúlínpróf á 87 skólabörnum í 4