Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1938, Side 81
humeri 2 (önnur infraglenoidalis, hin subcoracoidea), 19 ára og 33
ura karlar, cubiti lateral. 1, 8 ára drengur, og radii 1, 6 ára stúlka.
tiontusiones et vuln. contus. 25. Distorsiones 13. Combustiones 4.
Vulnera 7.
Reyðarfi. Mörg smálys, eins og gerist og gengur. Af stærri slysum
má nefna, að maður missti auga í áflogum. A dansleik varð 2 drukkn-
um mönnum sundurorða, og þreif annar ölglas og henti í andlit
hins. Brotnaði glasið á andliti mannsins og skar augað þvert yfir
hulbus. Augað inficeraðist og' var tekið úr nokkru seinna. Fract.
cost. 4, claviculae 1, antibrachii complicata 1, cruris 1, columnae 1
(6. og 7. brjóstliður), scapulae 1, ossis zygomatici 1.
Beraf). Vinnupallur bilaði undan manni, og féll maðurinn niður á
borðrönd (ca. 1 metra fall). Kom niður með perineum og hlaut af
i'upt. urethrae. 2 duttu af hestbaki, og hlaut annar fract. tibiae, en
hinn fract. claviculae. Kona féll niður stiga og hlaut fract. costae.
12 ára drengur var að stíga upp í bát við fjöru og hélt á hlöðnum
riffli. Hljóp skotið úr rifflinum í handlegg föður hans (sem sat í
bátnum) ofan við úlnlið og renndi skáhallt upp að olnboga. Auk
þessa urðu um 13 smáslys.
Hornafj. Slysfarir fáar og flestar smáar. Fract. antibrachii 1, costae
1. Lux. cubiti 1. Rupt. musc. tibial. 1. Auk þess nokkrar distorsiones,
lielzt um ökla og úlnið, 1 um olnboga, smábrunar og sár, corpora
aliena, oftast í auga o. fl. smávegis.
Síðu. 2 unglingar dóu af slysum, drukknaði annar, en hinn varð
úti. Maður, sem var að skjóta kind, inissti skotið í lærið á sér fyrir
ofan hné. Tókst að skera eftir kúlunni að aftan frá og greri vel.
Mýrdals. Barn, 4 ára, datt ofan í pott með sjóðandi tólg og brennd-
ist allmikið. Virtist þó ekki banvænt lengi vel, en fékk svo ileus
paralyticus. Með klysma og inj. peristaltini fékkst peristaltilc í gang
um stund, en sótti brátt í saina horfið, og dó barnið. Vuln. sclopet.
1. Lux. antibrachii 1, humeri 1. Fract. Collesi 2.
Vestmannaeyja. Vélbáturinn Viðir fórst með allri áhöfn (5 manna)
í vertíðarbyrjun. Hinn 16. júní brunnu inni 3 rnenn: innheimtu-
maður, 50 ára, sonur hans, 11 ára, og dóttursonur, 7 ára. Eldsupp-
tök eru ókunn. Ýmis slys hafa orðið hér stærri og smærri, bæði á
sjó og landi. Sigla þau í kjölfar hins áhættusama atvinnurekstrar,
sem hér er rekinn. Sjómaður, 37 ára, skall í vélarúmi í undirsjó og
lenti á vinstri olnboga. Braut endann á olecranon. Kyndari á þýzk-
um togara var á leið fram þilfar til náða. Stórsjór lenti á honum,
er hann var kominn nokkuð áleiðis, og' skall hann niður. Hlaut af
þessu l’ract. peritroch. femoris dextr. Stýrimaður á þýzkum togara,
34 ára að aldri, var í aftakaveðrinu 3. marz um lágnættið á þilfari.
Stórsjór skall yfir skipið og skellti stýrimanninum á „vinduhaus-
inn“, og lenti höfuð hans þar á með miklu afli. Hann varð náfölur,
þegar hann kom i káetu, fékk ógleði og fór á salerni, en féll þar í
ómegin. Var hann fluttur í káetu og látinn i rúm sitt, þá meðvitundar-
laus, og seig stöðugt á hann þyngri svefnhöfgi. Togarinn kom hing'-
að að morgni hins 4. marz með sjúldinginn. Var hann í djúpu móki.
Skráma var á hægra gagnauga, vinstri hlið máttlítil og krampar