Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1938, Qupperneq 107
105
loftrými kennslustofanna minnst 1,1 m3 og mest 9,3 m3 á barn, en jafn-
ar sig upp með 2,4 m3. í heimavistarskólunum 2,3—7,0 m3; meðaltal
3,3 m3. I hinum sérstöku kennsluherbergjum í íbúðarhúsum 2,3—5,2
m3; meðaltal 3,6 m3. í íbúðarherbergjum 2,1—7,5 m3; meðaltal 3,5
oi3, sem heimilisfólkið notar jafnframt. í hinum sérstöku skólahús-
iun, þar sem loftrýmið er minnst, er það oft drýgt með því að ltenna
börnunuin til skiptis í stofunum. Vatnssalerni eru til afnota í skólun-
um fyrir 9261 þessara barna eða 64,3%, forar- eða kaggasalerni fyrir
4643 börn eða 32,2%, og ekkert salerni hafa 499 börn eða 3,5%. Leik-
fimishús hafa 7976 barnanna eða 55,4% og bað 7520 börn eða 52,2% .
Leikvellir við þessa skóla eru taldir fyrir 7251 barn eða 50,3%.
Læknar telja skóla og skólastaði góða fyrir 10423 þessara barna eða
72,4%, viðunandi fvrir 3340 eða 23,2% og óviðunandi fyrir 640
eða 4,4%.
Læknar láta þessa getið:
Skipaskaga. Barnaskólahús reist á árinu á Heynesi í Innri-Akra-
neshreppi, steinsteypuhús með 1 skólastofu, kennaraherbergi og eld-
húsi. Skólastofan er 5,8 X 4,35 m, lofthæð 2,9 m. Upphitun með
ofnum. Salernið kaggasalerni. í Akraneskauptúni var ekki ráðinn
skólalæknir við barnaskólann, og fór skólaskoðun fram að haust-
inu á venjulegan hátt. Unglingaskóli var í sambandi við barnaskól-
ann, og voru nemendur 46. Þeir voru skoðaðir og' Pirquetprófaðir.
Iðnskóli og matreiðslunámsskeið voru einnig með nokkrum nem-
endum, og' voru þeir skoðaðir. Af skólabörnunum voru 234 vegin í
janúar 1939, og varð niðurstaðan sú, að 135 höfðu þyngst, 46 staðið
i stað, en 53 höfðu létzt um %—1% kg. Pirquetprófun var gerð á
nærri öllum skólabörnunum. Skólastofur barnaskólans eru 4, 2
þeirra 115 in3 hvor, en hinar 2 96 m3 hvor, lofthæð í stofunum er
3,10 m. Þær hafa, ásamt göngum, verið kalkaðar innan og málað
yfir síðan. Það reynist því ekki hægt að gera þær hreinar með þvotti,
því að kalkið hrynur af. Það ráð hefir því verið tekið að þilja stofurnar,
og eru 2 þeirra nú þiljaðar. Leikvöllur er enginn við barnaskól-
ann, en aðeins autt, ógirt svæði hjá honum, sem liggur milli tveggja
fjölfarinna gatna. Leikfiinishús er ekki heldur við skólann og leik-
l'imi því ekki kcnnd.
Borgarncs. Þar sem umferðarskólar eru, er húsnæðið víðast lítið,
en börnin eru þá líka fremur fá á hverjum stað. Lakast, að víða
vantar ýmis þægindi, svo sem hentug borð og stóla, sums staðar
ef til vill of langt fyrir börnin að ganga heim, böð hvergi og vanhús
léleg, og sums staðar vantar þau með öllu. Munu þá fjósin vera
notuð í þeirra stað, og er mjög erfitt að venja fólk af þessu.
Dala. Skólastaðir flestir hinir sömu og áður. Þeir beztu mega
teljast viðunandi. Erfiðleikum er oft bundið að fá því framgengt,
að aðeins beztu staðirnir séu notaðir til skólahalds, og er margt sem
veldur. Að því verður þó keppt, eftir því sem fært þykir. Mjólk
munu skólabörn hafa næga, og' auk þess er þeim víða gefið lýsi.
Flateyjar. Flateyjarbarnaskóli skoðaður þrisvar. Annars staðar
skoðað aðeins einu sinni. Hvergi skólahús nema í Flatey. Annars
staðar kennt í íbúðarherbergjum.
14