Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1967, Blaðsíða 110
1967
108 —
Greining veirusjúkdóma í mönnum.
Þegar frá er tekinn mislingafaraldurinn, sem gekk 1967, bar ekki
mikið á veirusóttum í mönnum. Á árinu voru send sýni til rannsóknar
frá 140 sjúklingum, flestum á sjúkrahúsum. Flest voru sýnin send
vegna einkenna frá öndunarfærum. Tókst að greina með mótefnamæl-
ingum lungnabólgu af völdum mycoplasma, sýkingu af RS-veiru
(Respiratory Syncytial) og parainflúenzu í nokkrum tilfellum. Ekki
fundust nein spor eftir psittacosis eða hvísótt á árinu.
Úr saursýnum ræktuðust reovirus og Coxsackie B4, en ekki gerðu
þessar veirur teljandi usla, og tókst ekki að sanna, að þessi B4 stofn
hafi valdið meningitis, myositis epidemica eða myocarditis á árinu.
Þá fundust einnig spor eftir adenoveiru og hettusóttarveiru.
Ur tveimur börnum voru send sýni vegna gruns um mænusótt. 1
öðru tilfellinu var um alvarlegan lömunarsjúkdóm að ræða. Frá þeim
sjúklingi óx herpesveira úr hálsi, en ekkert úr mænuvökva eða saur.
Ræktunartilraunir fyrir mænusótt á sýnum frá báðum þessum sjúkling-
um voru neikvæðar. Engar mænusóttarveirur ræktuðust á árinu og
engar inflúenzuveirur. Rannsóknir þessar hafa mjög takmarkazt við
sjúkrahúsin og gefa því mjög ófullnægjandi upplýsingar um gang
bráðra veirusótta. Væri æskilegt, að þessar rannsóknir næðu til fleiri
bráðra sjúkdómstilfella, sem starfandi læknar sjá í heimahúsum.
E. Heilsuverndarstöðvar.
Berklavarnir heilsuverndarstö(iva.
"3 o 5 ,íi 111 XSeí O ••o M I sl X “< O i|.a •s S'a x Sx Heilsu- veradarstöð Siglufjaröar Heiisu- veradarstöö Akureyrar S f t i|3 ■5 S 8 S 2Z Heilsu- veradarstöö Vestm.eyja •s i
Fjöldi rannsak. einstakl... 14329 216 160 173 962 160 16000
Rannsóknir samtals 15796 225 208 195 1282 210 17916
Undir eftirliti 1248 - - - 34 _ 1282
Með virka lungnaberkla .. 24 - - 1 9 - 34
Þar af smitandi 9 _ — 1 3 - 13
Með aðra virka berkla ... 5 - - 1 1 _ aJ 7
% með virka berkla 0,20 - - 1,16 1,04 - c -
Skyggningar 8735 205 198 195 863 - 10196
Skyggnimyndir 7061 - - - - - 7061
Röntgenmyndir 1922 1 - 12 - - '1 1935
Sýklaranns. án ræktunar . 166 - - 10 10 - 186
Sýklaræktun 300 - - - 5 - 305
Blóðsökk 323 - - - 27 - 350
Berklapróf 2946 - 10 388 _ 3344
Ótilgreindar rannsóknir .. - 228 - 217 - _ 445
BCG-bólusetning 271 - - - 26 - 297
Vfsað á hæli eða sjúkrahús 16 “ 2 4 “ 22