Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1967, Síða 149
147 —
1967
Málsatvik eru þessi:
Hinn 7. marz 1966 var stefnandi máls þessa, S. G-son, .......-
hreppi, Kjósarsýslu, að vinna um borð í vélskipinu Geirfugli GK 66
eign stefnda Fiskaness h.f., þar sem skipið var á veiðum um 14 sjómílur
ANA við öndverðarnes. Stefnandi var að vinna við línuspil, en festist
í því og handleggsbrotnaði.
1 málinu liggur fyrir örorkumat Stefáns Guðnasonar trygginga-
læknis, dags. 25. júlí 1967, svohljóðandi:
„Sjóvinnuslys 7. marz 1966.
Samkvæmt sjótjónsskýrslu varð slysið framan nefndan dag, kl. 17,30,
um borð í m/s Geirfugli GK 66 með þeim hætti, að slasaði, sem vann
við spilið, hrasaði, er kvika reið undir bátinn, lenti með vinstri hand-
hm í spilið og meiddist í honum.
Slasaði fór til rannsóknar og meðferðar í Slysavarðstofu Reykja-
víkur, og liggur fyrir vottorð .... læknis, dags. 19. apríl 1966, svo-
hljóðandi:
„Þann 8. marz s.l. kom hingað S. G-son sjóm., f. 26. 2. 1943, til
heimilis að....S. kemur hingað kl. 08,20, en daginn áður um kl. 15,00
hafði S. lent með vinstri handlegg í spili um borð í skipi því, sem hann
er starfandi á.
S. hefur glögg broteinkenni á vinstri framhandlegg, og sýnir rtg,-
Wynd, að sveifarbeinið er brotið í miðju, en hefur nær ekkert gengið
úr skorðum. Hann er því settur í gipsumbúðir, án þess að þurfi að hreyfa
við brotinu.
S. hefur síðan komið hingað til eftirlits fjórum sinnum og var hér
síðast 2. apríl s.l. Rtg.mynd sýndi þá, að brotið hefst vel við, situr
eðlilega og er að gróa. Hins vegar er brotið ekki fullgróið, enda hefur
S. einkenni án umbúða. Hann er því enn í gipsumbúðum. Svona brot
getur orðið allt að 12 vikur að gróa, og S. kemur hingað til eftirlits".
Slasaði hafði gipsumbúðir um handlegginn til 14. maí 1966 og kom
að sögn síðast í Slysavarðstofuna 28. maí 1966. Hann var óvinnufær
th 30. júní 1966, og eftir það gat hann aðeins unnið smádútl á heimili
sínu í sveit, kauplaust að sögn, og telur sig tæpast hafa verið matvinn-
ung. Hann fór svo 9. september 1966 að vinna sem háseti á m/s Laxá
°g hefur síðan unnið fulla vinnu á sjó og í sveit.
Fyrir liggur vottorð Friðriks Sveinssonar héraðslæknis, Reykjalundi,
hags. 20. janúar 1967, svohljóðandi:
„Undirritaður læknir hefur í dag skoðað hr. S. G-son, f. 26. 2. 1943,
Hann slasaðist þann 7. marz 1966, er v. framhandleggur lenti í
sPih, sem slasaði var að vinna við um borð í m/b Geirfugli GK 66 úti
u miðum.
Hann var stundaður af læknum Slysavarðstofu Reykjavíkur.