Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1967, Síða 153

Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1967, Síða 153
— 151 — 1967 Nú er að sjá af upplýsingum af málskjölum, að G. sé oft langtímum saman á afgreiðslu vörubifreiðastöðvarinnar á kvöldin við öldrykkju og gefi sig talsvert að unglingum, sem þangað sækja til gosdrykkja- kaupa. Ekki hefur hann þó fram að þessu verið orðaður við ósæmilega áleitni á þá fyrr en þá nú. Eins og rakið er í málskjölum, var fyrst farið að hreyfa þessu máli, er tæplega 15 ára drengur var tekinn við vörubifreiðastöð .... 21. 9. s.l. upp úr klukkan 22 um kvöldið mjög ölvaður. Er næstum að sjá, að óvíst sé, hvenær — eða jafnvel hvort þetta ftiál hefði komizt í hámæli, ef þessar ytri aðstæður hefðu ekki gefið tilefnið. Um málsatvik er G. margsaga, gerir ýmist að játa næstum allt, sem hver hafa vill, ef svo mætti segja, eða kenna drengnum um meginpartinn og allt frumkvæðið, sem máli skiptir. Skýringuna á því, hvers vegna hann hafi játað á sig frumkvæðið við yfirheyrslurnar á • •.., segir hann þá, að hann hafi ekkert getað verið að þvarga þetta við þá, „hann hefði ekki neinar taugar til slíks“. Þeir hafi bara sagt: „Þú ert eldri, þú hlýtur að hafa byrjað“, og þá hafi verið bezt að hafa það svo. Minnir G. oft í þessum orðaskiptum á stúrinn krakka, sem fer í fýlu, þegar verið er að jagast í honum um hluti, sem honum finnst ekki þess verðir eða bara til leiðinda. Ekki er ástæða til að rekja hér nákvæmlega sögu sambands þeirra G. og drengsins: Fram kemur, að þeir kynnast eitthvað snemma s.l. vor, er G. var að hjálpa eldri kunningja drengsins við viðgerð á bif- veið hans. Einum til tveim mánuðum síðar hafi G. svo boðið drengnum upp í jeppa til sín undir því yfirskini að aka eitthvað um bæinn, en farið svo út fyrir bæinn og gerzt þá þegar nokkuð nærgöngull við hann. Síðan er að sjá, að G. hafi ein sex skipti leitað á drenginn á oiismunandi hátt og oftast komið fram vilja sínum að einhverju leyti að roinnsta kosti, en einu sinni að auki gefið drengnum áfengi, svo að hann varð ölvaður. Varð það til þess að koma upp um þessi samskipti. Ekki liggur það þó með öllu ljóst fyrir, hvort drengurinn hefur beðið G. um að mega smakka á eða G. hafi boðið honum það eða haldið því að honum, en alla vega lá áfengið á lausu. Það er heldur ekki með öllu 1 jóst, hvort þetta er í einasta skiptið, sem drengurinn verður ölvaður fram að þessu. Vill hann svo vera láta, en góðkunningi hans 4—5 árum eldri segir, „að G. þykist oft vera ölvaður, þótt hann hafi ekki smakkað vín eða mjög lítið“. Mök þeirra G. og drengsins hafa alltaf verið í bifreið G. rétt utan við byggð á .... eða í sambandi við ferðir, sem drengurinn hefur farið með G., aðallega í malarflutningum innan úr .... eða ofan úr ....Er ýmist, að G. hefur sent eftir honum eða rekizt á hann í bænum, jafnvel að þeir hafi svo mælt sér mót. Er svo að sjá, að hann hafi verið farinn að ná valdi á drengnum, sem ekki verður séð fyrir, hvert hefði leitt, ef ytri atvik hefðu ekki komið þessu upp.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184

x

Heilbrigðisskýrslur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.