Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1968, Side 92
1968
— 90 —
Neoplasma malignum telae conjunctivae et musculorum .............. 5 4
— — aliorum organorum s. non indicatorum 3 9
Lymphosarcoma. Reticulosarcoma ................................... 5 1
Lymphogranulomatosis maligna...................................... - 1
Myeloma multiplex ................................................ 1 2
Leuchaemia. Aleuchaemia .......................................... 6 9
219 288
507
D. Geðsjúkdómar. Áfengis- og deyfilyfjasjúklingar.
Töflur XV, XVI.
Á geðveikrahælunum lágu 1129 sjúklingar á árinu, en læknar telja
fram 216 geðsjúklinga á árinu utan Reykjavíkur, 37 áfengissjúklinga
og 5 deyfilyfjaneytendur (einnig utan Reykjavíkur). Þó að tölur þess-
ar séu birtar að gamalli venju, gefa þær enga hugmynd um raunveru-
lega tíðni þessara sjúkdóma.
Rvík. Engar ráðstafanir hafa verið gerðar til skráningar á áfengis-
og deyfilyfjasjúklingum.
Reykhóla. Áfengis- og deyfilyfjasjúklinga hefur læknir ekki orðið
var við.
Blönduós. Deyfilyfjasjúklingar ekki svo vitað sé í héraðinu.
ölafsfj. Drykkjuskapur eins og almennt gerist á Islandi, ég held þó
mun minni en í hinum stærri bæjum. Engir deyfilyfjasjúklingar. Mikið
um geðræna sjúkdóma í ýmsum myndum.
Esícifj. Ofdrykkjumenn fáir, en áfengisneyzla almenn. Deyfilyfja-
sjúklingar engir.
E. Atvinnusjúkdómar.
Töflur XV, XVI.
Með atvinnusjúkdóma eru taldir 16 sjúklingar utan Reykjavíkur,
allt karlar.
Rvík. 1 sambandi við eftirlit á vinnustöðum í ýmsum greinum iðn-
aðar var fólk tekið til rannsóknar af öryggisástæðum, þar sem líkur
bentu til, að það gæti hafa orðið fyrir óhollustuáhrifum. Rannsóknir
þessar leiddu í Ijós, að fólk þetta hafði ekki orðið fyrir teljandi skað-
legum áhrifum. Úr málmiðnaði voru teknir 16 manns til rannsóknar,
einkum í sambandi við vinnu með blý, og kom í ljós, að blýmagn í þvagi
þeirra fer minnkandi, ennfremur 2 menn af benzínstöðvum vegna
meintrar eitrunar. Athugaðir voru 13 menn í margs konar efnaiðnaði,