Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1968, Blaðsíða 144
1968
— 142 —
Um 1. spurningu.
Ég tel, að allt bendi til þess, að húðbreytingar þær, sem komið hafa
í ljós hjá G. P-syni, séu kronisk röntgenskemmd. Til þess að geta gefið
nánara svar við spurningu 1 hef ég farið yfir þá kafla um geislameð-
ferð við húðsjúkdómum, sem prentuð er í: „Handbuch der gesamten
Strahlenheilkunde“, gefinni út af prófessor Paul Lazarus, Miinchen
1931. Þessi kennslubók er gefin út á þeim tíma, sem umræddar geisla-
meðferðir áttu sér stað. I þessari handbók er ekkert talað um, að fjöldi
geislameðferða megi ekki fara fram yfir ákveðið magn. Það er ekki
fyrr en seinna, sem menn gerðu sér grein fyrir hættunni við endur-
tekna geislakúra í sambandi við góðkynja húðsjúkdóma.
I þessu umrædda tilfelli er tala geislakúra mjög há. Samt sem áður
get ég ekki lýst því yfir, að þetta hafi verið óréttlætanlegt á þess tíma
mælikvarða. (Ég þekki persónulega svipað atvik frá um það bil sama
tíma í Noregi. 1 því tilfelli voru einnig endurteknir röntgenkúrar vegna
góðkynja sjúkdóms, og þar komu í ljós einkenni kroniskrar geisla-
skemmdar. Meðferðin var ekki talin óréttlætanleg, en sjúklingnum
voru dæmdar svokallaðar sanngirnisbætur).
Um 2. spurningu.
Þessari spurningu er ómögulegt að svara, þar sem mælingar á geisla-
magni voru á þessum tíma langt frá því að vera eins nákvæmar eins
og þær eru í dag. Ég tel mig þess vegna ekki geta umreiknað upp-
gefið geislamagn til nútíma talna. Svo mikið get ég þó sagt, að geisla-
magn það, sem notað hefur verið, er minnst tífalt miðað við það, sem
myndi vera notað í dag. Við hugsanlega geislameðferð á kronisku
eksemi í dag myndi ég gefa einn kúr, t. d. 4x15 R. Ef eða þegar
eksemið tæki sig upp aftur, mundi ég ekki endurtaka þessa meðferð.
Þetta magn væri aðeins smáhluti af því geislamagni, sem G. P-son
hefur fengið.
Um 3. spurningu.
Ef áður hafa verið reyndar ýmsar lækningaaðferðir án tilætlaðs
árangurs, tel ég forsendur fyrir því að reyna geislameðferð. Ég myndi
þó, eins og áður er nefnt hér að framan, aðeins gefa einn geislakúr. Ef
eksemið tæki sig upp aftur, myndi ég telja aðra geislameðferð tilgangs-
lausa, þar sem yfirgnæfandi líkur benda til þess, að sjúkdómurinn tæki
sig einnig upp aftur að öðrum geislakúr loknum.
Um U- spurningu.
Ég álít í dag, að geislameðferð sú, sem G. P-son fékk, sé óverjandi
og ókunnáttusamleg. Það er þó fyrst undir 1940 og eftir seinni heims-
styrjöldina, sem okkur varð að fullu ljós hættan í sambandi við endur-
tekna geislakúra við góðkynja húðsjúkdómum.