Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1968, Blaðsíða 149
— 147 —
1968
1968 til 13. ágúst 1968, hugsanlegur getnaðartími frá 15. maí 1968 til
7. sept. 1968.“
Þá liggur fyrir læknisvottorð Jóns Sigurðssonar, borgarlæknis í
Reykjavík, dags. 17. nóvember 1969, svohljóðandi:
„Þér hafið, herra bæjarfógeti, með bréfi, dags. 5. þ. m., óskað álits-
gerðar minnar um hugsanlegan getnaðartíma barns þess, sem baras-
faðemismálið: X gegn Y er risið af.
Af vottorði ljósmóður, dags. 13. ágúst 1969, má ráða, að barnið hafi
verið fullburða, er það fæddist. Meðalmeðgöngutími fullburða barna er
talinn vera 271 dagur, með 11 daga misvísun til eða frá. Samkvæmt því
ættu mestar líkur að vera til, að umrætt barn sé getið á tímabilinu 3.
til 27. júlí 1968.
Sé höfð hliðsjón af þyngd barnsins og lengd við fæðingu, getur það
samkvæmt dreifingartöflum F. J. Lindners, Málmey, verið komið undir
einhvern tíma á tímabilinu 17. maí til 22. ágúst 1968. Samkvæmt sömu
töflum eru 865% líkur til, að barnið sé getið á tímabilinu 14. júní til
27. júlí sama ár.
Málsskjöl þau, er fylgdu bréfi yðar, endursendast hér með.“
Máliö er lagt fyrir læknaráð á þá leiö,
að beiðzt er svars við eftirfarandi spurningum:
1. Er læknaráð sammála því áliti dr. med. Jóns Sigurðssonar, að barn
það, er hér um ræðir, „geti veriö kornið undir einhvern tíma á tíma-
bilinu 17. maí til 22. ágúst 1968?“
2. Getur barn það, er hér um ræðir, verið komið undir um mánaða-
mótin ágúst — september 1968 ?
Tillaga réttarmáladeildar um
Ályktun læknaráös:
Ad 1. Töflur Lindners eru miðaðar við 1. dag síðustu tíða. Ef gert
er ráð fyrir, að tíminn frá þeim degi til getnaðar séu 10
dagar, sem er meðaltal, er mögulegur getnaðartími um-
rædds bams frá 27. maí til 1. september 1968, ef miðað er
við fæðingarþyngd barnsins.
Ad 2. Sjá 1.
Greinargerð og ályktunartillaga réttarmáladeildar, dags. 1. júní
1970, staðfest af forseta og ritara 12. nóvember s. á. sem álitsgerð og
úrskurður læknaráðs.
Málsúrslit eru enn óorðin.
5/1970
Yfirborgardómari í Reykjavík hefur með bréfi, dags. 17. marz 1970,
skv. úrskurði, kveðnum upp á bæjarþingi Reykjavíkur 16. s. m., leitað